Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Agnar Már Másson skrifar 30. júní 2026 14:08 Einn hefur verið handtekinn. Vísir/Jói K. Amfetamín, kókaín, ketamín, kristalmetanfetamín og „bleikt kókaín“ var meðal þess sem lögregla fann í húsbíl sem kom hingað til lands með Norrænu.
Í lögreglutilkynningu er greint frá því að 56 kílógrömm af amfetamíni hafi komið til Íslands með Norrænu og falin í húsbíl, sem lögreglan hafi fylgt eftir. Ökumaðurinn, sem sé erlendur ríkisborgari á sextugsaldri, hafi verið handtekinn á Norðurlandi fyrr í mánuðinum, en í bílnum hafi einnig fundist átta kíló af kókaíni, þrjú kíló af ketamíni, eitt kíló af kristal metamfetamíni og kíló af „bleiku kókaíni“, sem er blanda af ketamíni og MDMA. Sjá einnig: Norræna Í sömu tilkynningu var greint frá öðru máli er varðar smygl á 108 kílóum af kókaíni til landsins í gegnum Straumsvík en það má væntanlega teljast stærsta kókaínsmygl sögunnar; þar eru níu í varðhaldi en aðeins einn í þessu máli. Rannsókn málanna beggja, sem eru óskyld að sögn lögreglu, er sögð miða ágætlega og þau unnin í samstarfi nokkurra lögregluliða, auk Tollgæslunnar. Þá hafi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu enn fremur notið aðstoðar Europol, en vegna þessa komu þaðan tveir fulltrúar til Íslands. Embættið hafi sömuleiðis notið aðstoðar tengslafulltrúa Íslands hjá Europol vegna samskipta við önnur lögreglulið í Evrópu og utan hennar. Fjöldi mála hefur komið upp frá byrjun árs vegna smygls í Norrænu. Fimm voru handteknir í byrjun sumars vegna meints fíkniefnasmygls í ferjunni. Skömmu síðar var par handtekið á Seyðisfirði er þau voru á leið úr landi með Norrænu, grunuð um tilraun til smygls – en ekki á fíkniefnum, heldur rúmlega hundrað fuglaeggjum.
Norræna Fíkniefnabrot Lögreglumál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira