Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Atli Ísleifsson skrifar 24. júní 2026 14:56 Slysið varð í september 2024. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í fjögurra mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi í þegar hann ók á rúmlega 130 kílómetra hraða á gangandi vegfaranda á Sæbraut í Reykjavík aðfararnótt sunnudagsins 29. september 2024. Ung kona lést í slysinu.
Dómurinn féll í febrúar síðastliðnum en var fyrst birtur í dag eftir fyrirspurnir frá fréttastofu. Í dómsorðum segir að fresta beri fullnustu refsingarinnar, haldi maðurinn almennt skilorð í tvö ár. Í ákæru sagði að maðurinn hafi ekið bíl sínum norður Sæbraut við gatnamót Súðarvogs, án nægilegrar aðgæslu og varúðar, á allt að 132 kílómetra hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 60. Það hafi verið of hratt miðað við aðstæður og almenn hraðatakmörk. Bleyta hafi verið á veginum og myrkur og hann farið yfir á gulu umferðarljósi á gatnamótunum, þar sem umferð gangandi vegfarenda er, með þeim afleiðingum að bílnum var ekið á gangandi vegfaranda á göngubrautinni. Konan lést samstundis við áreksturinn. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust og féllst hann á bótaskyldu í málinu. Í dómi segir að maðurinn hafi sýnt fram á hreint sakavottorð og var horft til þess við ákvörðun refsingar, auk skýlausrar játningar. „Á hinn bóginn hefur ákærði með háttsemi sinni sýnt af sér stórfellt gáleysi með því að aka án nægilegrar aðgæslu og varúðar á miklum hraða, líkt og lýst er í ákæru, og sýndi með háttsemi sinni af sér stórfellt gáleysi sem leiddi til dauða gangandi vegfaranda.“ Dómari mat hæfilega refsingu fjögurra mánaða fangelsi en að fresta skyldi fullnustu refsingarinnar haldi maðurinn almennt skilorð. Móðir og bróðir konunnar sem lést kröfðust þess bæði, hvort um sig, að ákærði maðurinn yrði dæmdur til að greiða þeim fjórar milljónir króna í miskabætur. Dómari dæmdi hæfilegt að láta manninn greiða móðurinni tvær milljónir króna í miskabætur en ekki að ekki væru fyrir hendi lagaskilyrði til að greiða miskabætur til bróðurins. Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða lögmanns- og sakarkostnað, samtals um fjórar milljónir króna.
Banaslys við Sæbraut Reykjavík Dómsmál Samgönguslys Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira