Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Bjarki Sigurðsson skrifar 30. júní 2026 22:45 Fjóla Kim Björnsdóttir er ein af eigendum Holtsels. Vísir/Bjarki Í Eyjafjarðarsveit má finna eina af framsæknustu ísgerðum landsins. Mímósuísinn sló í gegn en Jagermeisterísinn var aðeins of sterkur.
Kúabúið Holtsel er einn vinsælasti áningarstaður Eyjafjarðarsveitar en þar er rekin ísbúðin Holtsels Hnoss. Ísinn er búinn til á staðnum og úr mjólk þeirra sextíu mjólkurkúa sem þar eru. „Við erum svolítið háð veðrinu þannig að við vonumst alltaf eftir góðu sumri. En við elskum að fá fólk til okkar á sumrin, erum með opið í tvo til þrjá mánuði, en seljum ísinn í matvöruverslunum allan ársins hring,“ segir Fjóla Kim Björnsdóttir, ein af eigendum Holtsels. Ísinn er framleiddur einu sinni til tvisvar í viku og bragðtegundirnar eru gríðarlega margar. „Við notum eins mikið íslenskt og hægt er. Ef við gerum bjórís notum við bjór frá Kalda, ef við gerum rababaraís er hann héðan úr garðinum og ef það eru berjaístegundir reynum við að kaupa berin á næstu bæjum,“ segir Fjóla. Tegundirnar eru gríðarlega margar. „Í uppskriftabókinni okkar eru yfir þrjú hundruð uppskriftir. Svo erum við alltaf að prófa okkur áfram. Við höfum gert mímósu- og freyðivínssorbet fyrir brúðkaup. Við höfum gert hvítlauksís fyrir veitingastaði og bjórís,“ segir Fjóla. Hvernig er mímósuísinn? „Hann er aðeins of góður.“ Hann hljómar nefnilega afar ljúffengur. En er einhver bragðtegund sem hefur ekki slegið í gegn? „Ég gerði mitt besta fyrir félag hérna úr sveitinni við að gera Jagermeister-ís. En ég geri hann aldrei aftur,“ segir Fjóla. „Hann var aðeins of kröftugur.“ Á fallegum degi er hægt að borða ísinn úti á bekk þar sem hænurnar, endurnar og hundarnir bjóða upp á heimsklassa félagsskap. Þá er hægt að kíkja í fjósið þar sem kýrnar sem framleiða mjólkina í ísinn eru.
Eyjafjarðarsveit Ís Matur Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira