Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. júní 2026 21:01 Jökull Júlíusson, söngvari Kaleo, og Bubbi Morthens, söngvari og skáld. vísir/bjarni/vilhelm Allt er að verða tilbúið fyrir stórtónleika Kaleo sem fara fram á morgun. Meðlimir Kaleo hvetja gesti til að skemmta sér fallega og skora á Bubba Morthens að taka sér pásu frá laxveiði til að kíkja á hátíðina.
Á Þingvöllum í dag var lokahönd lögð á undirbúning fyrir stórtónleika Kaleo og félaga undir yfirskriftinni Bergmál. Reiknað er með að túnið steinsnar frá Almannagjá fyllist af tuttugu þúsund tónleikagestum á morgun. Svipmyndir frá deginum og tónleikasvæðið má berja augum í spilaranum hér að neðan. „Það er mjög gaman að koma á Þingvelli núna. Það er rosa gaman að koma og sjá umgjörðina. Þannig já maður fær fiðringinn,“ segir Jökull Júlíusson, söngvari Kaelo. „Mér finnst þetta hálf óraunverulegt. Þetta er búið að vera hugmynd lengi og það er búin að vera mikil vinna að koma þessu á. Þetta er alveg sturlað,“ segir Davíð Antonsson, trommari Kaleo. „Eitthvað mjög rómantískt við það“ Fyrirhöfnin er þó nokkur og er búið að flytja tækjabúnað og annað í tonnatali á Þingvelli. Til að mynda er búið að koma fyrir stærðarinnar tjöldum og þá eru þar kamrar í tuga- ef ekki hundraðatali. Þá verður komið fyrir öðru sviði hjá gamla Valhallarplaninu þar sem fjölskyldudagskrá hátíðarinnar mun fara fram en ekki þarf að greiða aðgangseyri til að njóta tónlistarinnar þar. „Við erum að smala Íslendingum saman aftur og búa til minningar á Þingvöllum. Það er eitthvað mjög rómantískt við það,“ segir Jökull. Eins og frægt er héldu Kaleo tónleika í Vaglaskógi á Norðurlandi síðasta sumar með góðum árangri. Núna taka þeir stökk fram á við með tónleikum á Þingvöllum. Spurðir hvort það sé hægt að toppa tónleikana í ár eða hvort þeir verði toppaðir segir Jökull: „Nei, þetta er svona einn stærsti draumur sem maður er búinn að eiga lengi. Þessar sumarnætur og þetta tímabil er náttúrulega þannig að maður getur ekki beðið um meira.“ Endursalan leiðinleg en lítið hægt að gera Borið hefur á því að miðar hafi farið í endursölu á Facebook og gagnrýndu sumir miðahafar að ekki mætti taka með stóla og regnhlífar. „Þetta er leiðinlegt, þessi endursala, en það er voða lítið sem við getum gert í því. Auðvitað erum við alls ekkert hrifnir af því en nei nei okkur hlakkar til. Það eru allir mjög spenntir að koma. Mikið af okkar fólki og mikið af útlendingum líka, vinum okkar,“ segir Jökull. Og fyrir þá sem höfðu áhyggjur af því að ekki mætti taka með tjaldstóla er búið að koma fyrir aðstöðu á tónleikasvæðinu til að fá sér sæti. „Þetta verður bara eins og risaættarmót og það er nóg sætapláss fyrir alla. Það eru bara reglur frá lögreglunni af öryggisástæðum sem við náttúrulega fylgjum bara en það verður alveg nóg um sæti. Fólk getur alveg sest,“ segir Davíð. Jökull ítrekar að um stórt svæði sé að ræða og tekur fram að samgöngurnar séu góðar. Hann er fullviss um að það verði enginn troðningur á morgun. Hann hvetur fólk til að skemmta sér fallega og vonast til að fólk komi með börnin sín. „Þetta fór mjög fallega fram í fyrra og við vonum að það verði raunin í ár,“ segir hann. Meiri pressa að spila fyrir framan Íslendinga Kaleo hefur spilað á sumum stærstu tónleikastöðum heims fyrir framan mörg þúsund manns. Jökull og Davíð segja það þó engu líkt að spila fyrir framan Íslendinga. „Að sjálfsögðu. Auðvitað er það þannig að ef það gerir enginn neitt þá gerist ekki neitt. Það hefur verið smá hræðsla á Íslandi við að búa til einhverja viðburði. Okkur langar náttúrulega að gera eitthvað einstakt og erum í stöðu til þess. Svo við erum að nýta okkur það. Það er mjög gaman að fá þessa listamenn til liðs við okkur,“ segir Jökull. „Mér finnst alveg töluvert öðruvísi að spila hér heima. Þegar maður þekkir alla í salnum þá er þetta öðruvísi tilfinning. Aðeins meiri pressa.“ Gæti þetta orðið árlegur viðburður? „Ég held að þú verðir að tala við lögregluna á Selfossi um það. Ég hef eiginlega ekkert um það að segja. Við lítum allavega björtum augum á að þetta verði eitthvað mjög einstakt.“ Ýmsir aðrir tónlistarmenn koma einnig fram en þar á meðal er Jakob Frímann ásamt Stuðmönnum. „Þetta er helgur blettur sem þjóðinni þykir afar vænt um og við göngum fallega um og skiljum vel við og síðan tökum við vonandi í framhaldinu ákvörðun um hvernig Þingvelli við viljum sjá til frambúðar,“ segir Jakob. Afmæli og ættarmót og Bubbi velkominn Í raun er um tíu ára afmæli plötunnar AB að ræða en hún sló í gegn bæði innan sem utan landsteinanna. „Þetta er einstakur viðburður fyrir okkur. Að fá að vera hérna í eigin þjóðgarði er magnað,“ segir Jökull. „Ég held að það megi búast við huggulegum fýling hérna á milli hljómsveita. Það er alveg von á því að einhverjir hoppi upp á svið með hinum og þessum,“ segir Davíð. Spurðir hvort það megi vænta einhverra leynigesta við þetta tilefni segja þeir: „Leynigestir eru allavega velkomnir ef einhver vill kíkja,“ segir Jökull. „Ef Bubbi er að horfa,“ segir Davíð kíminn og blikkar. „Ég er búinn að bjóða Bubba en hann er svo mikið í laxveiði núna en hann er allavega mjög velkominn að kíkja,“ bætir Jökull við brosandi.
Kaleo Þingvellir Bláskógabyggð Tónleikar á Íslandi Tónlist Menning Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Tengdar fréttir Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Hamína, Sky og Kaleo eru meðal þeirra nafna sem Mannanafnanefnd samþykkti á fundi sínum í vikunni. Þá má einnig heita Anída, Silfurregn og Dúni. 15. ágúst 2025 10:58 Mest lesið Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? Innlent Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Fleiri fréttir Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Sjá meira
Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Hamína, Sky og Kaleo eru meðal þeirra nafna sem Mannanafnanefnd samþykkti á fundi sínum í vikunni. Þá má einnig heita Anída, Silfurregn og Dúni. 15. ágúst 2025 10:58