„Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Freyja Þórisdóttir skrifar 19. júní 2026 10:55 Önnu Kristjánsdóttur þarf vart að kynna en nú, 74 ára gömul, segist hún sátt við lífið og stefnir ótrauð á að verða 100 ára. Í nýjasta þætti Ísland í dag náði Hödd Vilhjálmsdóttir tali af Önnu Kristjánsdóttur, sem er nýflutt aftur til Íslands eftir sjö ára dvöl á Tenerife. Anna, sem er nú 74 ára gömul, varð landsþekkt sem fyrsta íslenska trans konan er steig fram undir eigin nafni. Síðan hefur hún verið áberandi í íslenskri umræðu og birtir reglulega Facebook-pistla þar sem hennar ríki húmor og beitti húmor vekja gjarnan mikla athygli. „
Hugurinn leitaði alltaf heim þótt ég væri stödd annars staðar, fyrst í mörg ár í Svíþjóð og seinna núna á Tenerife,“ segir Anna sem er nýflutt heim frá Tenerife. Hún segist helst sakna hitans en að hann hafi einmitt verið það sem heillaði mest og varð til þess að hún fluttist til eyjunnar fögru þegar hún hætti að vinna árið 2019. Það fyrsta sem hún keypti sér að borða við heimkomuna var ýsa í raspi sem reyndist svo vera þorskur. Hún segir frá því að á meðan hún bjó úti hafi henni reglulega verið send íslensk ýsa, „það var ekki eins og ég væri að svelta“. Anna segist hafa orðið að losa sig við bókasafnið sitt þegar hún flutti erlendis en hún var áður fyrr „á kafi í ættfræði“ og segist sakna safnsins mjög. „Ég spyr ekki beint „hverra manna ert þú?“ en það líður aldrei á löngu uns ég veit hverra manna fólk er,“ segir hún og bætir við að það sé oft ótrúlegasta fólk sem reynist vera náskylt henni. Finnst þér gaman að hreiðra um þig? „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr,“ segir Anna en hún segir enn langt í land með að gera nýju íbúðina nógu heimilislega. Hún segir eftirlaunin sín vera nógu góð til þess að hún þurfi ekki að hafa áhyggjur af peningum, enda var hún þrældugleg alla ævi að vinna. Hún var lengi til sjós og segir sinn besta tíma í starfi hafa verið eftir að hún hóf stórf í stjórnstöð Orkuveitunnar. Það hafi verið erfitt á köflum og mikið álag, enda vaktavinna allan sólarhringinn, en að hún hafi notið sín vel og haft gaman af. Í þættinum, sem sjá má í spilara hér fyrir ofan, opnar Anna sig um það að geta notið sín ein og hvernig henni þyki gott að vera ein heima á kvöldin og ljúga að alþjóð í gegnum tölvuna.
Ísland í dag Spánn Matur Kanaríeyjar Íslendingar erlendis Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Sjá meira