Konungur Norðursins sækir að Starmer Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 19. júní 2026 08:11 Burnham vann þægilegan sigur í Makerfield. Christopher Furlong/Getty Images Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester og rísandi stjarna innan breska Verkamannaflokksins tryggði sér sæti á breska þinginu í aukakosningu sem fram fór í Makerfield kjördæminu í gær.
Burnham, sem er einnig fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fékk 55% atkvæða og níuþúsund atkvæðum meira en hans helsti keppinautur, Robert Kenyon úr flokki Nigels Farage, Reform. Kjör hins 56 ára gamla Burnhams þýðir að nú aukast líkurnar á því að hann skori núverandi leiðtoga flokksins, Keir Starmer forsætisráðherra á hólm og sækist eftir því að leiða flokkinn á þingi. Til að það megi gerast þarf hann stuðning frá áttatíu og einum þingmanni Verkamannaflokksins en Burnham er talinn líklegastur til að taka við af Starmer, sem verður æ valtari í sessi með hverri vikunni sem líður. Andy Burnham hefur skotist upp á stjörnuhiminn breskra stjórnmála síðustu misserin en hann þótti standa sig einstaklega vel í starfi borgarstjóra Manchester og naut hann mikilla vinsælda langt út fyrir raðir verkamannaflokksins. Þar fékk hann viðurnefnið „King of the North,“ eða „konungur norðursins“.
Bretland Kosningar í Bretlandi England Tengdar fréttir Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer David Lammy, dómsmálaráðherra Bretlands, segir forsætisráðherrann Keir Starmer ekki hafa í hyggju að segja af sér né leggja fram drög að áætlun um að víkja. Lammy, sem er varaforsætisráðherra og einn nánasti bandamaður Starmer, hefur hvatt flokkssystkin sín til að hætta að hugsa um mögulegt leiðtogakjör og segir umræðuna um það „sjálfsmark“. 18. maí 2026 08:19 Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Wes Streeting, fráfarandi heilbrigðisráðherra Bretlands, segist munu sækjast eftir því að verða næsti formaður Verkamannaflokksins ef til formannskjörs kemur. Hann vill að Bretar gangi aftur í Evrópusabandið. 17. maí 2026 07:53 Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Taumhald Keirs Starmer forsætisráðherra Bretlands á Verkamannaflokkinum virðist ætla að renna honum úr greipum og stemningin innanbúðar nálgast suðupunkt eftir afhroð í sveitarstjórnarkosningum í vikunni. Fyrrverandi ráðherra hefur nú gengið fram fyrir skjöldu og skorað á Starmer að víkja. 10. maí 2026 10:27 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira
Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer David Lammy, dómsmálaráðherra Bretlands, segir forsætisráðherrann Keir Starmer ekki hafa í hyggju að segja af sér né leggja fram drög að áætlun um að víkja. Lammy, sem er varaforsætisráðherra og einn nánasti bandamaður Starmer, hefur hvatt flokkssystkin sín til að hætta að hugsa um mögulegt leiðtogakjör og segir umræðuna um það „sjálfsmark“. 18. maí 2026 08:19
Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Wes Streeting, fráfarandi heilbrigðisráðherra Bretlands, segist munu sækjast eftir því að verða næsti formaður Verkamannaflokksins ef til formannskjörs kemur. Hann vill að Bretar gangi aftur í Evrópusabandið. 17. maí 2026 07:53
Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Taumhald Keirs Starmer forsætisráðherra Bretlands á Verkamannaflokkinum virðist ætla að renna honum úr greipum og stemningin innanbúðar nálgast suðupunkt eftir afhroð í sveitarstjórnarkosningum í vikunni. Fyrrverandi ráðherra hefur nú gengið fram fyrir skjöldu og skorað á Starmer að víkja. 10. maí 2026 10:27