„Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Smári Jökull Jónsson skrifar 18. júní 2026 19:55 Rætt var við þá Jónas Atla Gunnarsson og Pál Pálsson um húsnæðismarkaðinn í kvöldfréttum Sýnar. Vísir/Vilhelm/Bjarni Sjaldan hafa verið jafn góðar aðstæður fyrir kaupendur að koma sér inn á fasteignamarkaðinn og nú að mati fasteignasala. Um fjórðungur íbúða hefur verið til sölu í eitt ár eða lengur og sölutíminn lengist sífellt.
Samkvæmt mánaðarskýrslu HMS hafa íbúðir sem nú eru á söluskrá verið þar lengur samanborið við síðustu ár. 23% íbúða sem nú eru auglýstar hafa verið til sölu í að minnsta kosti ár en þetta hlutfall var 9% fyrir tveimur árum síðan. Þá hafa 5% íbúða verið á markaði í tvö ár eða lengur. Tæplega fjórðungur íbúða var enn til sölu eftir ár nú í júní en sama hlutfall var 9% fyrir tveimur árum síðan.Vísir/Sara „Það er áhyggjuefni að kaupendur og seljendur nái ekki saman ef það er til lengri tíma. Þetta hefur verið ágætis stöðugleiki á markaðnum á þessum tíma þrátt fyrir að íbúðirnar hafi ekki selst vel,“ sagði Jónas Atli Gunnarsson yfirhagfræðingur HMS. Tækifæri fyrir kaupendur Í skýrslu HMS kemur fram að langflestir fasteignasalar telja markaðinn vera svokallaðan kaupendamarkað. „Frá því að ég byrjaði að starfa í þessu fyrir tólf árum síðan, þá hefur sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur að gera eitthvað í þessu og koma sér inn á markaðinn eins og hefur verið með fyrstu kaupendurna,“ segir Páll Pálsson fasteignasali. Að mati fasteignasala er markaðurinn nú svokallaður kaupendamarkaður.Vísir/Sara Í skýrslunni kemur nefnilega fram að hlutfall fyrstu kaupenda á fasteignamarkaði fer hækkandi og hefur í raun ekki verið hærra síðan í febrúar 2021. Hlutfall nýrra íbúða af seldum íbúðum hefur í rúm tvö ár verið á bilinu 15-20% sem Páll segir að þurfi að vera um 25% svo nýbyggingamarkaður þyki eðlilegur. Hlutfall fyrstu kaupenda á fasteignamarkaði hefur ekki verið jafn hátt síðan í febrúar 2021.Vísir/Sara „Það eru nokkrar vísbendingar um einhverja lítilsháttar kólnun á byggingamarkaði. Það eru ekki mörg rauð flögg eins og er í hagtölunum,“ segir Jónas Atli. „Þarf að bregðast við því núna“ Samdráttir verði þó ekki eins mikill og margir óttist. Þegar margir séu að halda að sér höndum á fasteignamarkaði eru uppi áhyggjur um hvað gerist þegar lager nýrra íbúða seljist upp. „Það eru bæði aðilar frá SI og greinignardeild ISB sem hafa lýst því yfir að það væri raunverulega hætta á skorti ef ekkert verður að gert núna til að halda áfram fjárfestingum í nýbyggingaiðnaði.“ Þegar losnar um, þá er kannski ástæða til að hafa áhyggjur. „Já og það þarf að bregðast við því núna,“ segir Páll.
Húsnæðismál Lánamál Efnahagsmál Byggingariðnaður Fasteignamarkaður Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Sjá meira