Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Stefán Árni Pálsson skrifar 16. júní 2026 18:06 Styrmir Jónasson er orðinn leikmaður Ármanns Mynd: Ármann Ármenningar hafa samið við Skagamanninn Styrmi Jónasson en félagið tilkynnti um vistaskiptin rétt í þessu. Styrmir var valinn besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Bónus-deild karla en hann féll með ÍA niður í fyrstu deildina á síðasta tímabili. Styrmir lék virkilega vel með Skagaliðinu en hann lék alla 22 leikina í deildinni og skoraði 11 stig að meðaltali í leik. Ármann var nýliði á síðasta tímabili en liðið hélt sér uppi í deildinni með frábærri frammistöðu eftir áramót. „Við erum mjög ánægð með að fá Styrmi til liðs við okkur. Hann hefur sýnt að hann getur látið til sín taka í Bónus deildinni og við teljum að Ármann sé rétti staðurinn fyrir hann til að halda áfram að vaxa sem leikmaður. Við Ármenningar vitum líka að körfuboltatímabilið er ekki stuttur sprettur, heldur meira í líkingu við Vasagönguna sænsku — það þarf þolinmæði, úthald og rétt hugarfar alla leið. Við höfum trú á að Styrmir verði mikilvægur hluti af því sem þarf í þá vegferð.“ segir Steinar Kaldal þjálfari liðsins. Frá handsölun samningsins í LaugardalshöllMynd: Ármann Styrmir segist spenntur fyrir nýju verkefni í Laugardalnum. „Þetta er frábært tækifæri fyrir mig að þróast sem leikmaður og taka þátt í öflugu starfi félagsins. Ég hlakka mikið til komandi tímabils!“
Styrmir var valinn besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Bónus-deild karla en hann féll með ÍA niður í fyrstu deildina á síðasta tímabili. Styrmir lék virkilega vel með Skagaliðinu en hann lék alla 22 leikina í deildinni og skoraði 11 stig að meðaltali í leik. Ármann var nýliði á síðasta tímabili en liðið hélt sér uppi í deildinni með frábærri frammistöðu eftir áramót. „Við erum mjög ánægð með að fá Styrmi til liðs við okkur. Hann hefur sýnt að hann getur látið til sín taka í Bónus deildinni og við teljum að Ármann sé rétti staðurinn fyrir hann til að halda áfram að vaxa sem leikmaður. Við Ármenningar vitum líka að körfuboltatímabilið er ekki stuttur sprettur, heldur meira í líkingu við Vasagönguna sænsku — það þarf þolinmæði, úthald og rétt hugarfar alla leið. Við höfum trú á að Styrmir verði mikilvægur hluti af því sem þarf í þá vegferð.“ segir Steinar Kaldal þjálfari liðsins. Frá handsölun samningsins í LaugardalshöllMynd: Ármann Styrmir segist spenntur fyrir nýju verkefni í Laugardalnum. „Þetta er frábært tækifæri fyrir mig að þróast sem leikmaður og taka þátt í öflugu starfi félagsins. Ég hlakka mikið til komandi tímabils!“ Fréttatilkynning Ármanns í heild sinni: Besti ungi leikmaðurinn til Ármanns Körfuknattleiksdeild Ármanns hefur samið við Styrmi Jónasson um að ganga til liðs við félagið og leika með liðinu í Bónus deild karla á komandi tímabili. Styrmir er tvítugur bakvörður sem kemur eftir öflugt tímabil með ÍA þar sem hann vakti verðskuldaða athygli fyrir leik sinn. Hann lék alla 22 leiki ÍA í Bónus deildinni á síðasta tímabili, spilaði stórt hlutverk í liðinu og skoraði að meðaltali 11 stig í leik. Í lok tímabilsins var Styrmir valinn besti ungi leikmaður Bónus deildar karla, sem undirstrikar hversu stórt skref hann tók á sínu fyrsta tímabili í efstu deild. Styrmir er uppalinn Skagamaður og hefur undanfarin ár byggt upp orðspor sem einn af efnilegustu leikmönnum landsins. Hann er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst fleiri en eina stöðu og býr yfir eiginleikum sem falla vel að þeim leikstíl og þeirri stefnu sem Ármann vill vinna eftir. Hann hefur einnig komið við sögu með yngri landsliðum Íslands, meðal annars á FIBA U20 EuroBasket, og kemur því með mikilvæga reynslu þrátt fyrir ungan aldur. Koma Styrmis er stórt skref fyrir Ármann þegar liðið undirbýr sig fyrir krefjandi verkefni í Bónus deildinni. Félagið hefur lagt áherslu á að styrkja leikmannahópinn með ungum metnaðarfullum, sem vilja taka næsta skref í sínum ferli. Styrmir fellur vel að þeirri mynd og er leikmaður sem við bindum miklar vonir við til framtíðar. „Við erum mjög ánægð með að fá Styrmi til liðs við okkur. Hann hefur sýnt að hann getur látið til sín taka í Bónus deildinni og við teljum að Ármann sé rétti staðurinn fyrir hann til að halda áfram að vaxa sem leikmaður. Við Ármenningar vitum líka að körfuboltatímabilið er ekki stuttur sprettur, heldur meira í líkingu við Vasagönguna sænsku — það þarf þolinmæði, úthald og rétt hugarfar alla leið. Við höfum trú á að Styrmir verði mikilvægur hluti af því sem þarf í þá vegferð.“ segir Steinar Kaldal þjálfari liðsins. Styrmir segist spenntur fyrir nýju verkefni í Laugardalnum. „Ég er mjög spenntur að vera kominn í Ármann. Þetta er frábært tækifæri fyrir mig að þróast sem leikmann og taka þátt í öflugu starfi félagsins. Ég hlakka mikið til komandi tímabils! Áfram Ármann“ Ármann býður Styrmi hjartanlega velkominn í félagið og hlakkar til að sjá hann í búningi félagsins á komandi tímabili.
Fréttatilkynning Ármanns í heild sinni: Besti ungi leikmaðurinn til Ármanns Körfuknattleiksdeild Ármanns hefur samið við Styrmi Jónasson um að ganga til liðs við félagið og leika með liðinu í Bónus deild karla á komandi tímabili. Styrmir er tvítugur bakvörður sem kemur eftir öflugt tímabil með ÍA þar sem hann vakti verðskuldaða athygli fyrir leik sinn. Hann lék alla 22 leiki ÍA í Bónus deildinni á síðasta tímabili, spilaði stórt hlutverk í liðinu og skoraði að meðaltali 11 stig í leik. Í lok tímabilsins var Styrmir valinn besti ungi leikmaður Bónus deildar karla, sem undirstrikar hversu stórt skref hann tók á sínu fyrsta tímabili í efstu deild. Styrmir er uppalinn Skagamaður og hefur undanfarin ár byggt upp orðspor sem einn af efnilegustu leikmönnum landsins. Hann er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst fleiri en eina stöðu og býr yfir eiginleikum sem falla vel að þeim leikstíl og þeirri stefnu sem Ármann vill vinna eftir. Hann hefur einnig komið við sögu með yngri landsliðum Íslands, meðal annars á FIBA U20 EuroBasket, og kemur því með mikilvæga reynslu þrátt fyrir ungan aldur. Koma Styrmis er stórt skref fyrir Ármann þegar liðið undirbýr sig fyrir krefjandi verkefni í Bónus deildinni. Félagið hefur lagt áherslu á að styrkja leikmannahópinn með ungum metnaðarfullum, sem vilja taka næsta skref í sínum ferli. Styrmir fellur vel að þeirri mynd og er leikmaður sem við bindum miklar vonir við til framtíðar. „Við erum mjög ánægð með að fá Styrmi til liðs við okkur. Hann hefur sýnt að hann getur látið til sín taka í Bónus deildinni og við teljum að Ármann sé rétti staðurinn fyrir hann til að halda áfram að vaxa sem leikmaður. Við Ármenningar vitum líka að körfuboltatímabilið er ekki stuttur sprettur, heldur meira í líkingu við Vasagönguna sænsku — það þarf þolinmæði, úthald og rétt hugarfar alla leið. Við höfum trú á að Styrmir verði mikilvægur hluti af því sem þarf í þá vegferð.“ segir Steinar Kaldal þjálfari liðsins. Styrmir segist spenntur fyrir nýju verkefni í Laugardalnum. „Ég er mjög spenntur að vera kominn í Ármann. Þetta er frábært tækifæri fyrir mig að þróast sem leikmann og taka þátt í öflugu starfi félagsins. Ég hlakka mikið til komandi tímabils! Áfram Ármann“ Ármann býður Styrmi hjartanlega velkominn í félagið og hlakkar til að sjá hann í búningi félagsins á komandi tímabili.
Bónus-deild karla ÍA Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Man. City - Coventry | Lampard á kunnuglegum slóðum Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Sjá meira