Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Lovísa Arnardóttir skrifar 11. júní 2026 07:55 Á myndinni eru Hrannar Björn Arnarson, Stein Olav Romslo, Sabine Leskopf, Oddný Harðardóttir og Stefán Jón Hafstein. Samsett Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar í aðsendri grein á vef Vísis í dag. 55 skrifa undir greinina og mótmæla lagasetningunni og krefjast þess að framkvæmdin verði stöðvuð. Þau segja „krappa hægri beygju“ í stefnu flokksins ekki hafa verið rædda á vettvangi hans og hún sé, að þeirra mati, í andstöðu við meginstefnu hans og grundvallarsjónarmið.
Hópurinn krefst þess að Samfylkingin taki málið til formlegrar umræðu á vettvangi flokksins og endurskoði afstöðu sína í samræmi við samþykkta stefnu flokksins um mannúð, réttaröryggi og mannhelgi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Meðal þeirra sem skrifa undir greinina eru Oddný Harðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingar og ráðherra, Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar RÚV, Stein Olav Romslo borgarfulltrúi, Sabine Leskopf fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Hrannar Björn Arnarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi forsætisráðherra og formanns flokksins. Segja þetta ekki eiga að vera nálgun flokksins Í grein sinni benda þau á að fjöldi umsagna mannréttindasamtaka hafi borist þinginu í aðdraganda lagasetningar þar sem þessum áformum var mótmælt og bent á önnur vægari úrræði. Þá segja þau samþykktina stríða gegn stefnu Samfylkingarinnar sem samþykkt var á síðasta landsfundi flokksins. Þar segi að „nálgun flokksins í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd skuli vera „út frá grunngildum jafnaðarstefnunnar með mannúð og virðingu fyrir mannréttindum að leiðarljósi““ og að Samfylkingin leggi áherslu á „réttaröryggi og mannhelgi umsækjenda um alþjóðlega vernd og þeirra sem hafa fengið synjun, þ.m.t. einstaklinga í umborinni dvöl, og leggist gegn varðhaldsvistun nema í undantekningartilvikum þegar nauðsyn ber til og engin önnur úrræði duga“.“ Hópurinn segir ótækt að sjá að þingflokkur Samfylkingarinnar hafi samþykkt lög sem innleiða „varðhaldsvistun í þessum málaflokki, en lögin fjalla ekkert um „önnur úrræði“ sem grípa mætti til áður en til varðhaldsvistunar kemur“. Hópurinn segir gagnrýni að miklu leyti hafa snúist um að fangelsa ætti börn og að í lokaútgáfu hafi því verið breytt og bætt við að „útbúa skyldi sérstakar brottvísunarbúðir fyrir barnafjölskyldur.“ Hópurinn segir það engu breyta. „… um frelsissviptingu barna er að ræða, sem brýtur gegn ákvæðum Barnasáttmálans eins og fjöldi samtaka á borð við Barnaheill og UNICEF hafa bent á.“ Hópurinn bendir sömuleiðis á að í stefnu flokksins sé fjallað um umsækjendur um alþjóðlega vernd og að mikilvægt sé að tekið sé tillit til þarfa og aðstæðna barna í samræmi við Barnasáttmálann. Kröpp hægri beygja „Þessi krappa hægri beygja í stefnu flokksins hefur ekki verið rædd á vettvangi flokksins og er að okkar mati í andstöðu við meginstefnu hans og grundvallarsjónarmið. Þá er rétt að doka við og íhuga pólitíska vegferð sem er í andstöðu við sjónarmið mannréttindasamtaka, sjónarmið mannúðar og mildi – á meðan þingmenn Sjálfstæðisflokksins hrósa Samfylkingunni fyrir „sinnaskiptin“,“ segir í greininni. Með sameiginlegu bréfi sínu mótmæla þau lagasetningunni og krefjast þess að framkvæmd þeirra verði stöðvuð þar til tryggt hefur verið að börn verði ekki frelsissvipt vegna stöðu foreldra. „Við krefjumst þess jafnframt að Samfylkingin taki málið til formlegrar umræðu á vettvangi flokksins og endurskoði afstöðu sína í samræmi við samþykkta stefnu flokksins um mannúð, réttaröryggi og mannhelgi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett,“ segja þau að lokum. Fréttin og aðalmynd hefur verið leiðrétt. Fyrst kom fram að Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, hefði skrifað undir en það er alnafna hennar sem er í Samfylkingarfélagi í Reykjavík. Leiðrétt 08:28.
Samfylkingin Brottfararstöð fyrir útlendinga Hælisleitendur Innflytjendamál Flóttafólk á Íslandi Mannréttindi Réttindi barna Tengdar fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður. 9. júní 2026 16:08 „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Þriðja umræða fer fram á Alþingi í dag um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og meðlimur í allsherjar- og menntamálanefnd, segir brottfararstöðina eiga að tryggja mannúð í ömurlegum aðstæðum. Gert sé ráð fyrir því að fjölskyldur verði vistaðar á sérsvæði í úrræðinu en hann segist þó vona að vægari úrræði verði notuð áður. Gert sé ráð fyrir því í lögunum. 9. júní 2026 08:06 „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Framkvæmdastjóri Barnaheilla gagnrýnir stjórnvöld fyrir að veita heimild til að frelsissvipta börn í sérstakri brottfararstöð vegna gjörða foreldra þeirra. Þingmaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld reyna að gera gott úr erfiðri stöðu. Hann vonar að úrræðið verði aldrei nýtt. 8. júní 2026 19:50 Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Sjá meira
Umdeild brottfararstöð leidd í lög Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður. 9. júní 2026 16:08
„Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Þriðja umræða fer fram á Alþingi í dag um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og meðlimur í allsherjar- og menntamálanefnd, segir brottfararstöðina eiga að tryggja mannúð í ömurlegum aðstæðum. Gert sé ráð fyrir því að fjölskyldur verði vistaðar á sérsvæði í úrræðinu en hann segist þó vona að vægari úrræði verði notuð áður. Gert sé ráð fyrir því í lögunum. 9. júní 2026 08:06
„Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Framkvæmdastjóri Barnaheilla gagnrýnir stjórnvöld fyrir að veita heimild til að frelsissvipta börn í sérstakri brottfararstöð vegna gjörða foreldra þeirra. Þingmaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld reyna að gera gott úr erfiðri stöðu. Hann vonar að úrræðið verði aldrei nýtt. 8. júní 2026 19:50