Golf

Gunn­laugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson spilaði frábærlega í dag og lét ekki eina slæma holu stoppa sig.
Gunnlaugur Árni Sveinsson spilaði frábærlega í dag og lét ekki eina slæma holu stoppa sig. mynd/LSU

Gunnlaugur Árni Sveinsson verður meðal þátttakenda á U.S. Open risamótinu í golfi í ár eftir að hafa komist í gegnum bráðabana í kvöld. Hann er fyrstur Íslendinga til að tryggja sig inn á Opna bandaríska meistaramótið í karlaflokki.

Fjögur sæti voru í boði en fjórir voru jafnir í öðru sætinu og því þurfti bráðabana til að skera úr um það hverjir komast á risamótið.

Úrslitin réðust strax á fyrstu holu bráðabanans þar sem Gunnlaugur Árni hélt haus og kláraði sitt. Þetta er þvílíkur árangur hjá okkar manni sem verður á meðal keppenda á Shinnecock Hills vellinum í næstu viku.

Gunnlaugur Árni spilaði frábært golf á lokaúrtökumótinu í Ohio í dag þar sem spilaðar voru 36 holur og endaði Íslendingurinn knái, sem er á meðal bestu háskólakylfinga í heimi, á níu höggum undir pari líkt og þrír aðrir kylfingar.

Hér fyrir neðan má sjá útsendingu frá bráðabananum á samfélagsmiðlum Golfsambands Íslands.

Gunnlaugur lék fyrri hringinn á 67 höggum en þann seinni á 68 höggum. Gunnlaugur Árni var um tíma í öðru sæti á seinni hringnum en varð fyrir áfalli þegar hann fékk skramba á fyrstu holu á seinni níu.

Gunnlaugur byrjaði hringinn sinn á tíundu holu og það var því fyrsta hola vallarins sem reyndist honum svo skeinuhætt. Hann lék par fjögur holuna á sex höggum.

Gunnlaugur datt niður töfluna en lét þetta áfall ekki buga sig heldur svaraði með tveimur fuglum í röð og þremur fuglum á næstu fjórum holum.

Fyrir vikið hoppaði hann aftur upp fyrir línu og var meðal fjögurra efstu þegar þrjár holur voru eftir. Taugarnar héldu og hann paraði síðustu fjórar holurnar sem tryggði honum sæti í umspilinu.

Aðeins efsti kylfingur umrædds móts hafði þá tryggt sér farmiða í gegnum lokaúrtökumótið á Opna bandaríska meistaramótið en Gunnlaugur og þrír aðrir kylfingar börðust um þá þrjá farmiða á mótið í bráðabananum.

Þar lenti einn af þessum fjórum í vandræðum og setti boltann í vatnið. Hann náði ekki að bjarga sér og á sama tíma kláruðu hinir þrír sitt.

Gunnlaugur Árni náði góðu teighöggi í bráðabananum og var í góðum málum eftir það. Hann komst upp með að missa stutt pútt en gerði nóg til að tryggja sig inn á opna bandaríska meistaramótið og skrifa nýjan kafla í íslensku golfsöguna.

Gunnlaugur Árni verður fyrsti karlmaðurinn til að keppa á opna bandaríska risamótinu en Ólafía Þórunn Kristinsdóttir keppti tvisvar sinnum á opna bandaríska kvennamótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×