„Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Smári Jökull Jónsson skrifar 31. maí 2026 20:03 Guðmundur Ármann Pétursson er formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. Vísir/Þroskahjálp Formaður Þroskahjálpar segir vonbrigði hversu lítið tillit velferðarnefnd Alþingis tók til ábendinga samtakanna í tengslum við gerð frumvarps um réttindavernd fatlaðs fólks. Með með niðurlagningu undanþágunefndar sé afgreiðslu mála er varðar beitingu nauðungar hraðað á kostnað fagmennsku.
Velferðarnefnd Alþingis hefur skilað meirihlutaáliti um frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks. Landssamtökin Þroskahjálp sendu inn umsögn um frumvarpið og formaður Þroskahjálpar segir vonbrigði hversu lítið tillit nefndin tók til ábendinga samtakanna en frumvarpið fer næst til annarrar umræðu á þingi. Réttindagæsla mun samkvæmt frumvarpinu heyra undir Mannréttindastofnun Íslands. „Við höfum meiri áhyggjur af umgjörðinni og lögunum, hvernig þau eru unnin og það eru okkur vonbrigði hversu lítið tillit var tekið til þeirra ábendinga sem við lögðum fyrir velferðarnefnd í þessu máli,“ segir Guðmundur Ármann Pétursson formaður landsamtakanna Þroskahjálpar. „Ekki nógu vel passað upp á að hún sé tryggð með þessum lögum“ Þó séu jákvæð atriði að finna í breyttu frumvarpi og nefnir sem dæmi að orðalag um sjálfsákvörðunarrétt einstaklingsins sé styrkt. Þá tekur Guðmundur fram að hjá Mannréttindatofnun starfi gott fólk sem sé vel fært að sinna réttindagæslu. „Það er mjög stór veikleiki í framkvæmdinni að það eru annars vegar allt of fáir réttindagæslumenn starfandi og það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni. Lögin tækla ekki nógu vel að tryggja það.“ Þá þurfi sérstaklega að huga að frumkvæðisskyldu réttargæslunnar. „Það er ekki nógu vel passað upp á að hún sé tryggð með þessum lögum, það er til dæmis engin skylda til vettvangsheimsókna og virkrar eftirfylgni.“ Segir dregið úr sérfræðiþekkingu til að hraða málsmeðferð Guðmundur segir að velferðarnefnd hafi verið gert grein fyrir að einstaklingsmálum sem komi á borð Þroskahjálpar hafi fjölgað gríðarlega síðustu misseri. „Við höfum bara miklar áhyggjur af stöðunni og réttindagæslan er fyrir marga í rauninni síðasta haldreipið. Það þarf að vera þétt og það þarf að vera sterkt og við erum mjög hrædd um að það sé ekki í raun í þessari umgjörð sem er núna verið að skapa.“ Um sé að ræða viðkvæmasta hóp samfélagsins. Þá hefur Guðmundur áhyggjur af niðurlagningu nefndar sem úrskurðað hefur um hvort beita eigi einstakling nauðung. „Biðtíminn eftir ákvörðun sérfræðinefndarinnar hefur verið allt of langur og ég held að það séu allir sammála um það að það þarf að gera betur þar. Það er í rauninni verið að draga úr sérþekkingunni til þess að hraða málsmeðferðinni.“ Hefði viljað sjá velferðarnefnd taka skrefið Einnig nefnir Guðmundur að athugasemdir um orðalag varðandi persónulega talsmenn fatlaðs fólks hafi ekki verið teknar til greina. „Við erum að vinna með þeim hætti að við erum að valdefla fatlað fólk og tryggja að það sé sinn eigin talsmaður. Við lögðum það til við nefndina að þessu hugtaki yrði breytt og að talað sé um persónulegan aðstoðarmann því löggjöfin á ekki að draga úr þinni valdeflingu með því að skipa þér talsmann.“ „Nefndin tekur undir þetta en sendir svo góðlátlega beiðni til ráðuneytisins sem eru ákveðin vonbrigði, við hefðum viljað sjá skrefið tekið og hugtakið fært til samtímans. Því fatlað fólk þarf ekki talsmenn.“
Málefni fatlaðs fólks Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira