Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. maí 2026 14:00 Scott Bray, þáverandi yfirmaður leyniþjónustu sjóhersins, fóru yfir myndbönd af óútskýrðum fyrirbærum í bandaríska þinginu árið 2022. Getty Yfirvöld á Vesturlöndum hafa á undanförnum árum gjörbreytt nálgun sinni á fljúgandi furðuhluti. Lengi vel þótti umræðan fóðra langsóttar samsæriskenningar um að yfirvöld leyndu tilvist geimfara frá fjarlægum hnöttum. Ýmsar aðgerðir stjórnvalda til þess að gera lítið úr slíkum grunsemdum, oft með því að gera þær að beinu athlægi, gerðu hins vegar illt verra og mögnuðu upp slíkar kenningar.
Prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann taka fyrir geimverur og fljúgandi furðuhluti í tveimur þáttum í Skuggavaldinu. Fyrri þátturinn fjallaði um sögu fljúgandi furðuhluta og hvernig umræða um þá hefur þróast síðustu áratugina. Sjá einnig: Fljúgandi furðuhlutir, leyndarhyggja og samsæriskenningar Seinni þátturinn fjallar um hvernig stjórnvöld viðurkenna núorðið frekar að þau geti ekki útskýrt margt sem virðist vera á sveimi yfir höfðum okkar og jafnvel á ferð undir fótum okkar í hafinu. Varpað er ljósi á hvernig umræðan færðist úr skuggum fáránleikans yfir í að vera tekin fyrir af fullri alvöru í bandarískum þingnefndum, studd nýjum lögum og opinberum fjárveitingum. Orð eru vopn Kjarni þessarar viðhorfsbreytingar er ekki að yfirvöld telji nú að geimverur hafi heimsótt jörðina, heldur í þeirri einföldu nálgun að viðurkenna að við getum ekki enn útskýrt allt sem sést hefur á himni. Vísindalega er enda ómögulegt að sanna að ekkert utanaðkomandi líf hafi nokkru sinni nálgast lofthjúp jarðar. Nú er búið að kasta hugtakinu UFO (e. unidentified flying objects) fyrir róða og skammstöfunin UAP (e. unidentified anomalous phenomena) tekin upp í staðin til að ljá viðfangsefninu vísindalegri áru. „Orð eru vopn í stjórnmálum,“ segir Hulda í þættinum. „Fljúgandi furðuhlutir kalla fram myndir af litlum grænum körlum og lélegum bíómyndum. En óþekkt fráviksfyrirbæri er nokkuð sem jafnvel virðulegur þingmaður getur rætt í nefnd án þess að vera álitinn fáráðlingur,“ bætir hún við. Atvikið í Chicago Til að skilja hugarfarsbreytingu yfirvalda er gagnlegt að skilja hvernig kerfið brást áður við tilkynningum um tortryggilega hluti á himni. Á O'Hare-flugvellinum í Chicago árið 2006 urðu tólf reyndir og trúverðugir flugvallarstarfsmenn, þar á meðal flugmenn og flugumferðarstjórar, vitni að gráum, hringlaga hlut sem sveif hljóðlaust yfir hliði C-17. Hluturinn skaust síðan skyndilega upp og skildi eftir sig sýnilegt gat í skýjaþykkninu. Þrátt fyrir trúverðugleika og fjölda vitnanna sögðust bæði Flugmálastjórn Bandaríkjanna (FAA) og United Airlines ekki hafa fengið neina tilkynningu um málið. Síðar komu fram innanhússgögn sem sýndu að þrátt fyrir að sjónarvottar hafi sannarlega tilkynnt og rætt atvikið af mikilli alvöru, þá rataði tilkynningin aldrei ofar í stjórnkerfið. Helsta ástæðan var ótti yfirmanna við háð, stimplun og jafnvel útskúfun í starfi. Þetta er skólabókardæmi um þöggun í gegnum skömm, þar sem stofnanir komu í veg fyrir formlegar rannsóknir árum saman án þess að þurfa að beita beinum hótunum. Sögulegur vendipunktur Straumhvörf urðu í desember árið 2017 þegar bandaríska dagblaðið The New York Times birti forsíðufrétt um leynilega áætlun Pentagon um rannsóknir á óþekktum fráviksfyrirbærum. Samhliða fréttinni voru birt þrjú myndbönd sem sýndu hluti sem virtust hreyfast á skjön við öll þekkt lögmál eðlisfræðinnar, án sýnilegra vængja eða drifbúnaðar. Eftir sjötíu ára sögu af þöggun og útúrsnúningum var þessi viðurkenning varnarmálaráðuneytisins söguleg, því í fyrsta sinn viðurkenndi herinn opinberlega að hafa orðið var við eitthvað torkennilegt sem hann gæti ekki skýrt. Sálfræði óreiðunnar Þessi tilfærsla, frá afneitun yfir í viðurkenningu á vangetu til að skýra öll fyrirbæri, þýðir þó ekki að menn séu farnir að trúa á tilvist geimvera eða tækni utan úr geimnum á jörðinni. En líkt og oft hefur verið rætt í Skuggavaldinu nærast samsæriskenningar á einmitt slíkri óvissu. Mannshugurinn er þannig gerður að hann leitar stöðugt að mynstrum til að greiða úr óreiðu og þolir illa óvissuástand og erfitt getur verið að sætta sig við að botna lítið í hlutunum en einmitt þar er oft hin vísindalega staða mála. Nú er hægt að hlusta á báða þætti Skuggavaldsins um fljúgandi furðuhluti í helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Geimurinn Bandaríkin Tengdar fréttir Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Bandaríska varnarmálaráðuneytið birti í dag myndskeið af því þegar flugmaður bandarískrar orrustuþotu skaut niður fljúgandi furðuhlut yfir Húronvatni í febrúar 2023. 22. maí 2026 23:34 Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Starfsmenn Landamæraeftirlits Bandaríkjanna fengu mjög kröftugan leisgeisla lánaðan hjá varnarmálaráðuneytinu en notkun hans í El Paso leiddi til þess að Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna (FAA) tilkynnti óvænt að alþjóðaflugvellinum í borginni yrði lokað í tíu daga. 12. febrúar 2026 11:33 Dularfull brotlending nærri Area 51 Lofthelginni yfir hinni leynilegu flugstöð „Area 51“ í Nevada í Bandaríkjunum var lokað í síðasta mánuði eftir að ótilgreint flugfar brotlenti þar nærri. Engan mun hafa sakað en mikil leynd hvílir yfir slysinu og hafa hernaðaryfirvöld varist allra frétta. 7. október 2025 23:55 Mest lesið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Lífið Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Eldfimt 50+: Tengdamömmusögur Áskorun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Fleiri fréttir Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Sjá meira
Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Bandaríska varnarmálaráðuneytið birti í dag myndskeið af því þegar flugmaður bandarískrar orrustuþotu skaut niður fljúgandi furðuhlut yfir Húronvatni í febrúar 2023. 22. maí 2026 23:34
Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Starfsmenn Landamæraeftirlits Bandaríkjanna fengu mjög kröftugan leisgeisla lánaðan hjá varnarmálaráðuneytinu en notkun hans í El Paso leiddi til þess að Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna (FAA) tilkynnti óvænt að alþjóðaflugvellinum í borginni yrði lokað í tíu daga. 12. febrúar 2026 11:33
Dularfull brotlending nærri Area 51 Lofthelginni yfir hinni leynilegu flugstöð „Area 51“ í Nevada í Bandaríkjunum var lokað í síðasta mánuði eftir að ótilgreint flugfar brotlenti þar nærri. Engan mun hafa sakað en mikil leynd hvílir yfir slysinu og hafa hernaðaryfirvöld varist allra frétta. 7. október 2025 23:55