Vætusamt veður fram á mánudag Lovísa Arnardóttir skrifar 22. maí 2026 07:20 Það verður einhver rigning um helgina. Vísir/Anton Brink Í dag er spáð austlægri eða breytilegri átt, 5-13 m/s og rigningu með köflum, einkum sunnantil, en súld austanlands og norðanlands með kvöldinu. Hiti 4 til 15 stig, svalast austanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að næstu daga, og fram á mánudag, sé útlit fyrir fremur vætusamt veður á landinu, einkum sunnan- og vestantil, vegna lægðar sem stödd er suður af Hvarfi sem. Hún muni senda okkur nokkra úrkomubakka yfir landið á leið sinni norðvestur. Í hugleiðingum segir að vindur verði yfirleitt fremur hægur víðast hvar en á sunnudag gæti farið að hvessa við ströndina um landið austanvert. Hitatölur verði á bilinu 4 til 14 stig en á laugardag fari að hlýna norðaustanlands en austanlands á sunnudag með hita að 12 stigum. Samkvæmt veðurfræðingi ætti lægðin svo að vera komin norðvestur fyrir land á þriðjudag og er þá útlit fyrir fremur milt veður, hægar suðvestlægar áttir og dálitla vætu vestanlands, en annars bjart með köflum. Greiðfært er víðast hvar um land en víða holur og mikið um holuviðgerðir. Einnig er vinna við vegaframkvæmdir víða um land og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar á vinnusvæðum. Nánar um færð og stöðu einstakra vega á vef Vegagerðarinnar og um veður á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðaustan og austan 5-13 m/s og rigning með köflum, hiti 7 til 12 stig. Lengst af þurrt norðaustanlands með hita að 15 stigum. Suðvestlægari sunnantil um kvöldið. Á sunnudag (hvítasunnudagur): Suðvestan og sunnan 5-13 og skúrir, en léttir til á Norður- og Austurlandi síðdegis og lægir víða. Heldur svalara. Á mánudag (annar í hvítasunnu): Fremur hæg breytileg og síðar vestlæg átt og skúrir, en úrkomuminna norðanlands fram eftir degi. Hiti víða 7 til 14 stig. Á þriðjudag: Suðvestanátt og stöku skúrir en dálítil rigning vestantil. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðlæga átt og rigningu í öllum landshlutum, einkum suðvestanlands. Áfram milt veður. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðlægar áttir og skúrir, en bjart að mestu suðvestanlands. Kólnar heldur.
Veður Færð á vegum Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira