Gífurleg fagnaðarlæti yfir sigurræðu Almars Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. maí 2026 00:37 Almar var sigurreifur. Almar Guðmundsson bæjarstjóri í Garðabæ og oddviti Sjálfstæðisflokksins var vel fagnað þegar hann hélt sigurræðu í kosningateiti flokksins. Hann segist telja að vinna flokksins hafi fyrst og fremst skilað árangri í kosningunum en flokkurinn bætir við sig manni miðað við fyrstu tölur.
Flokkurinn er með 58 prósent fylgi í bænum miðað við þær. Bætir við sig áttunda manni. Garðabæjarlisti og Samfylking ná einnig mönnum inn. Almar var vígreifur þegar hann hélt ræðu fyrir sinn hóp. Vinnan skilað árangri „Vá hvað er gaman að vera með ykkur hérna, ég ætla bara að þakka ykkur öllum fyrir þessa vinnu, því þetta gerist ekkert öðruvísi en að fólk mætir á skrifstofuna og vinni þá vinnu sem þarf að vinna þegar við erum í kosningabaráttu. Þannig að takk þið öll, þetta er breiðfylking og þið eigið þetta öll skilið og auðvitað allir 21 þúsund og sirka 300 íbúar Garðabæjar eiga okkur bara innilega skilið!“ Almar sagði í samtali við Elísabet Ingu fréttakonu Sýnar að framboðið hefði fundið fyrir meðbyr í kosningabaráttunni. „Íbúarnir eru bara að segja, allir grunnþættirnir í Garðabæ eru að virka og við treystum þeim sem hafa verið með meirihlutann.“ Þá vék Almar sérstaklega að Önnu Möller, formanni Félags eldri borgara í Garðabæ sem er áttundi maður Sjálfstæðisflokksins inn í bæjarstjórn miðað við fyrstu tölur. Hann segist telja þetta sæta tíðindum. „Ef þetta gengur eftir að hún sé inni í bæjarstjórn. Það er ekki algengt að fólk sem er komið á eftirlaunaaldur sé í bæjarstjórn. Ég er glaður og sérstaklega glaður því það er svo mikið af ungu fólki að fagna með okkur.“ Þú þarft ekki að mynda meirihluta með neinum nema eigin flokki? „Nei við gerum það ekki, en eins og við höfum gert á kjörtímabilinu þá reynum við að vinna vel með öllum, það skiptir máli þegar einn flokkur er langstærstur. Næstu fjögur ár verða frábær í Garðabæ.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Garðabær Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira