Uppgjörið: Grindavík - Valur 109-82 | Grindvíkingar í úrslit eftir sannfærandi sigur Siggeir Ævarsson skrifar 6. maí 2026 19:32 Grindvíkingar fagna saman í leikslok Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Það var alvöru oddaleiksstemming í troðfullri HS Orku höll í kvöld. Eftir algjört orkuleysi og lítinn ákafa í síðasta leik komu Grindvíkingar trítilóðir til leiks í kvöld, í það minnsta eftir fyrsta leikhluta og unnu að lokum mjög sannfærandi sigur. Það var mikil gleði í troðfullri stúkunni í kvöldVísir/Guðmundur Þórlaugarson Gestirnir fóru engu að síður betur af stað og virtust vera að ná einhverju taki á Grindvíkingum sem voru að hitta afar illa eins og svo oft áður í þessu einvígi. Valsmenn leiddu 20-28 eftir fyrsta leikhluta og hefur eflaust farið um marga Grindvíkinga eftir hæga byrjun. Munaði þar mikið um að Jeremy Pargo var einfaldlega farþegi fyrstu tíu mínúturnar og stigalaus. Á því varð þó breyting í 2. leikhluta þar sem hann skoraði 13 stig en Grindvíkingar snéru leiknum algjörlega við og unnu leikhlutann 30-12. Var það ekki síst innkomu Unnsteins Rúnars Kárasonar að þakka sem spilaði frábæra vörn á Kára Jónsson en Grindavík var +15 þær tæpu sex mínútur sem hann spilaði í leikhlutanum. Kane stelur boltanum. Barátta Grindvíkinga var til fyrirmyndar í ca 29 mínútur í kvöld.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Staðan 50-40 í hálfleik og Grindvíkingar eflaust nokkuð kokhraustir á þeim tímapunkti og máttu vera það en það gekk eiginlega allt upp hjá þeim næstu tíu mínúturnar. Þeir ýttu muninum upp í 20 stig og voru að spila frábærlega á báðum endum vallarins. Baráttan einkenndi leik Grindvíkinga en þeir voru með 16 sóknarfráköst á þessum tímapunkti, aðeins einu færra en varnafráköst, sem er lygileg tölfræði. Þar af var Kristófer Breki með sjö sóknarfráköst sem er sömuleiðis mögnuð tölfræði. Kristófer Breki spilaði stífa vörn á Kára í kvöld en reif líka niður átta sóknarfráköst.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Grindvíkingar tóku fótinn ekki af bensíngjöfinni í fjórða og leyfðu Valsmönnum aldrei að komast í sinn takt. Ragnar Örn Bragson fór mikinn með skærbleikt hár en hann setti sex þrista áður en hann lauk leik með fimm villur um miðjan fjórða leikhluta. Unnsteinn kórónaði svo sinn leik með þristi sem kom Grindavík í 104-77 þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Jordan Semple og Kristó takast á undir körfunni.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Úrslitin ráðin og bæði lið tæmdu bekkina og leyfðu minni spámönnum aðeins að sprikla. Lykilmenn Grindvíkinga hvíldinni eflaust fegnir enda úrslitaeinvígi gegn Tindastóli framundan. Atvik leiksins Innkoma Unnsteins Rúnars Kárasonar í upphafi annars leikhluta breytti hreinlega leiknum. Hann spilaði stífa og ákafa vörn á Kára Jónsson allan völlinn og var algjörlega óhræddur í öllum sínum aðgerðum. Hann skoraði að lokum níu stig en Grindavík var +23 þær tæpu tólf mínútur sem hann spilaði. Unnsteinn var vítamínsprautan sem Grindvíkingar þurftu á að halda að þessu sinni.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Orkan og ákafinn smitaði greinilega út frá sér og var nákvæmlega það sem Grindvíkingar þurftu á að halda eftir hæga byrjun. Stjörnur og skúrkar Hér er af mörgu að taka. DeAndre Kane var stigahæstur Grindvíkinga með 29 stig og bætti við 14 fráköstum og sjö stoðsendingum. Hann var ótrúlega áræðinn og hætti aldrei að ógna og keyra á körfuna. Besti maður vallarins í kvöld. Jeremy Pargo átti sömuleiðis góðan leik ef frá er talinn fyrsti leikhluti. 25 stig og níu stoðsendingar og fimm þristar í öllum regnbogans litum. Innkoma Unnsteins hefur áður verið nefnd en það má ekki gleyma Ragnari Bragasyni sem setti sex þrista í níu skotum og barðist eins og ljón í vörninni. Maður leiksins að mati stúkunnar, Ragnar Örn Bragason, sem kom inn af bekknum og setti sex þrista.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Kristófer Breki var einnig ótrúlega drjúgur með átta sóknarfráköst sem skiluðu að ég held öll körfum. Hann fékk einnig það hlutverk að líma sig á Kára Jónsson sem var afar mikilvægt hlutverk í kvöld. Hjá Val var Keyshawn Woods stigahæstur með 22 stig en DeAndre Kane lét hann hafa mikið fyrir öllu því sem hann gerði á vellinum í kvöld. Keyshawn Woods var í strangri gæslu DeAndre Kane allan leikinn en skilaði engu að síður 22 stigum í hús.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Igor Maric kom sjóðheitur inn af bekknum í byrjun leiks og setti tvo þrista en skoraði svo bara tvö stig til viðbótar. Kári Jónsson átti sömuleiðis mjög erfitt uppdráttar í kvöld og tók aðeins fjögur skot og má segja að leikplan Grindavíkur gegn honum hafi gengið fullkomlega upp. Unnsteinn lætur Kára vinna fyrir kaupinu sínu.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Dómarar Sigmundur Már Herbertsson, Bjarki Þór Davíðsson og Davíð Hreiðarsson dæmdu leikinn í kvöld og komust vel frá verkefninu. Línan skýr og flæðið gott. Þeir Kane og Woods áttu snörp orðaskipti á einum tímapunkti og Simma sagði bara hingað og ekki lengra.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Stemming og umgjörð Það var hreinlega allt upp á tíu í Grindavík í kvöld. Húsið opnaði snemma þar sem áhorfendur söfnuðust saman í „Fan zone“ og svo troðfylltist stúkan upp í rjáfur þar sem stuðningsmenn beggja liða létu vel í sér heyra. Grindvíkingar eiga hrós skilið fyrir umgjörðina í kvöld og hlakka án vafa til að endurtaka leikinn í það minnsta tvisvar enn. Hiti í húsinuVísir/Guðmundur Þórlaugarson Valsmenn létu sitt ekki eftir liggja í stúkunni og létu vel í sér heyraVísir/Guðmundur Þórlaugarson Viðtöl Finnur Freyr: „Í seinni hálfleiknum þá bara voru þeir frábærir“ Finnur Freyr og félagar eru farnir í sumarfrí en Finnur gengur nokkuð sáttur frá tímabilinu þrátt fyrir allt.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, var mættur í viðtal til Andra Más eftir leik. Hann var nokkuð brattur þrátt fyrir tapið og sagði að Grindavík hefði einfaldlega verið betra liðið í kvöld. „Við fórum vel af stað og okkur leið vel en svo skrúfa þeir bara upp orkuna og ákafann og skora einhver 15 stig eftir sóknarfráköst í öðrum leikhluta og ná þessari forystu. Við svolítið bara bognum undan henni. En svo verður bara að segjast eins og er að í seinni hálfleiknum þá bara voru þeir frábærir. Drullugóðir og settu skotin sín.“ „Það er kannski aðeins auðveldara fyrir þessa minni spámenn að setja þessi skot þegar það er minni pressa og 15 stigum yfir. Seinni hálfleikur var bara Grindavík miklu betra lið og ég óska þeim bara til hamingju með sigurinn og óska þeim góðs gengis í úrslitunum.“ Finnur nefndi sérstaklega sóknarfráköst Grindavíkur en Grindvíkingar voru nánast með jafn mörg sóknarfráköst í hálfleik og þeir voru með varnarfráköst. „Eitthvað er af því að við erum að taka séns og koma djúpt inn og menn fá flugbraut. En sérstaklega í öðrum leikhluta voru þetta 50/50 boltar og þeir bara urðu ofan á í baráttunni. Lögðu meiri vinnu í það en við og uppskáru eftir því.“ Þrátt fyrir allt horfir Finnur nokkuð sáttur á tímabilið en fyrsti leikurinn í viðureigninni, sem Grindavík vann á dramatískan hátt með einu stigi, situr þó aðeins í hinum. „Rússíbanareið svona framan af. Við áttum góða og mjög slæma kafla inn á milli. Mér fannst við vaxa sem lið í Keflavíkurseríunni og mér leið ágætlega að fara inn í þessa seríu á móti Grindavík. Svona að horfa til baka þá svíður svolítið fyrsti leikurinn. Mér fannst það leikur sem við hefðum átt að vinna. Reyna að ná frumkvæði í seríunni.“ „En svo þegar það er komið í svona oddaleik getur allt gerst og betra liðið vann í dag. Heilt yfir stoltur af orkunni. Við lendum eins og fleiri lið í áföllum og á versta tímapunkti. Þriðja árið í röð sem við erum að missa lykilmenn út í meiðsli í úrslitakeppninni. Það er alltaf erfitt en við gáfum allt í þetta og börðumst til síðustu sekúndu en mættum ofjarli í dag.“ Finnur svaraði nokkuð afdráttarlaust þegar hann var spurður að því hvort hann yrði áfram með liðið. Hann notaði tækifærið og dældi út þökkum til allra sem koma að körfuboltanum á Íslandi. „Ég er ekki að fara neitt. Mér líður vel á Hlíðarenda. Þetta er sjötta tímabilið og við unnum stóran titil öll síðustu fjögur ár. Ég er búinn að koma okkur í úrslitakeppnina og skapa frábærar stundir á Hlíðarenda sem mig langar að taka þátt í áfram.“ „En svo vil ég bara nota tækifærið og þakka leikmönnum og þjálfarateyminu, stjórninni, aðdáendum og dómurum og öllum sem eru búnir að koma að þessu, og ykkur. Búin að vera frábær frammistaða hjá ykkur á Sýn enn og aftur. Það er rosalega skemmtilegt að taka þátt í þessu eins erfitt og þetta er. Það er súrt að vera að detta út en stundum tapar maður í þessu og stundum er hitt liðið betra og mér fannst Grindavík bara betra, sérstaklega í seinni hálfleiknum.“ Andri spurði Finn að lokum hvort hann reiknaði með því að Kári og Kristó yrðu áfram í Val á næsta tímabili. „Ég ætla rétt að vona það. Við teljum okkur vera með góða blöndu og ég hef trú á því að ef við verðum heilir allt tímabilið getum við gert töluvert betur en í dag.“ Hann endað svo á því að óska Grindvíkingum alls hins besta í komandi úrslitaeinvígi. „Svo verður bara að segjast eins og er, deildin er gríðarlega sterk og liðið eru gríðarlega vel mönnuð. Þetta Grindavíkurlið var alltaf með tvo bestu leikmennina í vellinum í Pargo og Kane án þess að tala einhverja aðra niður. Þeir eru að fara í frábæra seríu á móti Tindastóli. Þetta eru liðin sem enduðu í 1. og 2. sæti og eru bara vel að því komin að vera mætt í úrslitin.“ Helgi Magg var bara nokkuð léttur á bárunni að þessu sinni. Þessi mynd tengist viðtölunum ekki beint, hún varð bara að fá að fylgja.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Bónus-deild karla Grindavík Valur
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti