Innlent

Loka­tölur í Skaga­firði: Byggðalistinn vinnur stórt en meiri­hlutinn heldur

Ritstjórn skrifar
Ný sveitarstjórn Skagafjarðar.
Ný sveitarstjórn Skagafjarðar. vísir/sara

Byggðalistinn bætti við sig fulltrúa í sveitarstjórn Skagafjarðar en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks heldur velli. Þessir síðarnefndu skiptast þó á einum fulltrúa.

Á kjörskrá í Sveitarfélaginu Skagafirði eru 3.297 manns. Níu bæjarfulltrúar eiga sæti í sveitarstjórn.

Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 var myndaður meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks en Sigfús Ingi Sigfússon hefur gegnt embætti sveitarstjóra frá árinu 2018.

Atkvæðin dreifðust þannig:

  • B listi - Framsóknarflokkurinn: 22,9% með 2 fulltrúa
  • D listi - Sjálfstæðisflokkurinn: 30,7% með 3 fulltrúa
  • L listi - Byggðalistinn: 33,6% með 3 fulltrúa
  • M listi - Miðflokkurinn: 12,8% með 1 fulltrúa

Eftirfarandi náðu kjöri: 

  • Eyþór Fannar Sveinsson (L)
  • Jóhanna Ey Harðardóttir (L)
  • Sveinn Úlfarsson (L)
  • Magnús Barðdal (D)
  • Sólborg S. Borgarsdóttir (D)
  • Guðlaugur Skúlason (D)
  • Einar Eðvald Einarsson (B)
  • Hrund Pétursdóttir (B)
  • Högni Elfar Gylfason (M)
Á kjörskrá í Sveitarfélaginu Skagafirði eru 3.297 manns.Vísir


Tengdar fréttir

Lokatölur úr Fjalla­byggð: Meirihlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Lokatölur í Suður­nesja­bæ: Samfylkingin stærst

Listi Samfylkingar og óháðra fær þrjá bæjarfulltrúa í Suðurnesjabæ og listi Framsókn tvo samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkur fá tvo fulltrúa hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×