Upp­gjör: Njarð­vík - Grinda­vík 83-72 | Njarð­víkingar sigldu í úrslitaeinvígið

Árni Jóhannsson skrifar
KR - Njarðvík Bónus deild kvenna Vetur 2026
KR - Njarðvík Bónus deild kvenna Vetur 2026 vísir/Diego

Njarðvík leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Farseðillinn var tryggður eftir oddaleik gegn Grindavík í kvöld í IceMar höllinni. Njarðvík kafsigldi Grindavík á löngum köflum og uppskar verðskuldaðan 83-72 sigur.

Leikurinn byrjaði fullkomlega fyrir heimakonur í Njarðvík sem skoruðu fyrstu 10 stig leiksins en eins og góðum oddaleik sæmir kom sæmileg sveifla því svar Grindvíkinga var fullkomið. Þær skoruðu 11 næstu stig og voru komnar yfir 10-11 þegar um sjö mínútur voru liðnar af leiknum. Þá tóku Njarðvíkingar aftur við sér en bæði lið höfðu upplifað frost í sóknarleik sínum. Njarðvíkingar unnu síðustu mínútur leiksins 10-3 og leiddu með sex stigum eftir fyrsta leikhlutann. Brittany Dinkins var komin með 12 stig eftir fyrsta leikhlutann.

Njarðvík byrjaði annan leikhlutann af krafti og virtust vera komnar með lykilinn að því að vinna Grindavík. Þær tvídekkuðu á ansi mörgum stöðum á vellinum og voru farnar að finna leiðir að körfunni hjá Grindavík og nýttu sér þær að fullnustu. Staðan var orðin 33-19 þegar annar leikhlutinn var hálfnaður og ekkert virtist vera að virka hjá Grindavík og þær virkuðu þreyttar. Heimakonur náðu mest 18 stiga forskoti í fyrri hálfleik en Grindavík náði að laga stöðuna aðeins fyrir lok hálfleiksins og staðan 44-31 þegar gengið var til búningsherbergja.

Njarðvík hafði sett niður sjö þriggja stiga skot í 12 tilraunum en Grindavík hafði hitt úr einu af 12 þriggja stiga skotum. Þar var stór ástæða fyrir muninum sem var í hálfleik. Brittany Dinkins var með 12 stig í hálfleik og Dani Rodriguez með 11 stig. Abbi Beeman var með 11 stig á þeim tímapunkti.

Grindavík náði að byrja á ótrúlegum krafti og nöguðu niður forskot Njarðvíkinga niður og það virtist sem frost væri komið í körfurnar í IceMar höllinni. Grindavík komst yfir þegar þriðji leikhlutinn var hálfnaður og staðan 48-49 og stuðið að sveiflast til Grindavíkur. Njarðvík vaknaði þá og fór að fá körfur. Þá kom í ljós að ekki var mikið eftir á bensíntankinum hjá Grindavík því Njarðvík náði að finna körfuna og komst í sjö stiga forskot þegar þriðja leikhlutanum var lokið. Staðan 58-51 þegar einn leikhluti var eftir.

Njarðvíkingar kafsigldu síðan Grindvíkinga í fjórða leikhluta og fullkomnuðu endurkomuna og sigurinn í einvíginu eftir að hafa lent 2-0 undir. Vörnin small og sóknin fylgdi og allt í einu var munurinn orðinn 20 stig 76-56. Grindavík reyndu eins og þær gátu til að snúa þessu við en krafturinn og tíminn rann út fyrir þær. Lokastaðan 83-72 og Njarðvík fær tækifæri til að hefna fyrir úrslitaeinvígið í fyrra. Haukar bíða og eru klárar að verja Íslandsmeistaratitilinn sem þær unnu í oddaleik gegn Njarðvík.

Þema leiksins

Þema leiksins var þannig að Njarðvíkingar fundu á löngum köflum kraft í varnarleik sínum. Þær gerðu allt erfitt fyrir Grindavík og þreyttu þær. Grindavík náði að eyða síðustu bensíndropunum sínum í þriðja leikhlutann en höfðu ekki erindi sem erfiði.

Stjörnur og skúrkar

Þegar á þurfti að halda drógu Dani Rodriguez og Brittany Dinkins vagninn fyrir heimakonur en framlag frá rulluspilurunum skipti heldur betur máli. Það má segja að Njarðvík hafi spilað frábæran liðsbolta og verið með liðsheild sem unnu leikinn.

Hjá Grindavík var Ellen Nyström stigahæst með 22 stig. Allt var samt erfitt fyrir Grindavík í sóknarleiknum og það sýndi sig berlega að þær voru fámennari en Njarðvíkingar.

Umgjörð og stemmning

Vel mætt, 504 skv. KKÍ, og vel sungið. Umgjörðin er góð í IceMar og flott að það hús verði í einvíginu um titilinn.

Dómarar

Hefðbundin úrslitakeppnisdómgæsla. Mikið leyft og stundum dæmt á lítil atriði. Ekkert yfir tríóinu að kvarta.

Einar Árni: Við áttum meira á tankinum

„Það er hægt að tína ýmislegt til“, sagði þjálfari Njarðvíkinga Einar Árni Jóhannsson þegar hann var spurður að því hvernig Njarðvík kom sér í úrslitaeinvígið.

„Við áttum Meira á tanknum. Klárlega. Við héldum uppi okkar tempói og ég tek mitt fyrsta leikhlé þegar 2:18 eru eftir. Mér fannst þetta vera kvöld þar sem andstæðingurinn þurfti að blása. Mér fannst við vera á fullu gasi. Ég hrósa Grindavík samt. Þetta er hörkulið sem náði að koma til baka eftir að hafa lent 19 undir. Endalaust hrós á mínar stelpur fyrir það hvernig þær lokuðu þriðja leikhluta. Komu sér aftur upp sjö stig og stýra þessu í fjórða.“

Hvað gerðist þegar Njarðvíkingar kveiktu í forskotinu sem þær höfðu í hálfleik?

„Við vorum 18 stigum fyrir rétt fyrir hálfleik og það eru hlutir þar sem voru ekki nógu góðir. Við bjuggum til skot sem fóru ekki ofan í en við töluðum bara um að halda í trúna og það sem við vorum að gera. Við þurftum líka að koma okkur í þann varnarleik sem hafði komið okkur á þennan góða stað. Þannig vannst leikurinn svo. Með varnarleik.“

Afhverju tók Einar ekki leikhlé þegar Grindavík komst yfir á þessum mikla sprett?

„Þetta var svona moment sem við hefðum tekið leikhlé í venjulegu árferði. Við vorum samt með ferska fætur og vorum að rótera liðinu vel þannig að ég bara treysti þeim til að vinna þennan kafla. Ég lít út fyrir að vera rosaklár núna en spurningin er góð. Hvað ef? En ég hafði trú á því að batteríið þeirra myndi klárast og það gerðist.“

„Við vorum búnir að tala um þetta fyrir leik og þetta gerðist líka í leik þrjú og fjögur. Við ætluðum að halda í hátt hraðastig í sóknarleiknum og það kallar stundum á villt skot og einhverja tapaða bolta. Ég er ánægður með ákvörðunina núna en hún skilar okkur þessum ótrúlega sæta sigri sem fyllir mig gríðarlegu stolti af þessum stelpum.“

Njarðvíkingar fá nú tækifæri til að hefna fyrir einvígið í fyrra. Hvernig list Einari á það?

„Bara hrikalega vel. Tvö frábær lið og ég tel þetta vera tvö bestu liðin á Íslandi í dag. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að verkefnið er erfitt og þetta verður allt öðruvísi körfubolti í því einvígi. Ég er fullur tilhlökkunar og verð að nota tækifærið til að hrósa okkar fólki fyrir stuðninginn og ég treysti á það að þau mæti á föstudaginn á Ásvelli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira