Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Árni Sæberg skrifar 30. apríl 2026 10:22 Leikskólabörn að leik. Vísir/Vilhelm Hærra hlutfall þeirra sem starfa í leikskólum býr við verri fjárhagsstöðu en annað launafólk í ASÍ og BSRB. Starfsfólk í grunnskólum býr að jafnaði einnig við verri fjárhagsstöðu en annað launafólk.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Vörðu – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins um fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði og heilsu starfsfólks í leik- og grunnskólum í samanburði við annað launafólk. Þriðjungjur býr við skort Þar segir að hátt hlutfall leikskólastarfsfólks, 49 prósent, gæti ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Hið sama eigi við um tæplega fjóra af hverjum tíu þeirra sem starfa í grunnskólum, 37 prósent. Hlutfallið sé 30 prósent þegar litið er til annars launafólks innan ASÍ og BSRB. Í könnun, sem framkvæmd var fyrir skýrsluna, hafi verið spurt um þrettán þætti sem Hagstofa Evrópusambandsins notar til að mæla efnahagslega og félagslega stöðu fólks. Þættirnir sem spurt er um varði rekstur heimilis en einnig einstaklingsbundna þætti. Niðurstöðurnar sýni að umtalvert hærra hlutfall, sér í lagi þeirra sem starfa í leikskóla, búi samkvæmt skilgreiningu við félags- og efnislegan skort. Það eigi við um 34 prósent þeirra. Af þeim séu 18 prósent sem búa við verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum. Fjórðungur þeirra sem starfa í grunnskólum falli undir sömu skilgreiningu en sama eigi við um ríflega fimmtung almennt meðal launafólks, eða 22 prósent. Fjórir af hverjum tíu með slæma andlega heilsu Þá segir að hátt hlutfall leikskólastarfsfólks mælist með slæma andlega heilsu eða fjórir af hverjum tíu, 38 prósent, en sama eigi við mun lægra hlutfall þeirra sem starfa í grunnskólum, eða tæplega fjórðung, 23 prósent. Tæplega helmingur, 48 prósent, þeirra sem starfa í leikskóla finni meira en helming tímans eða daglega fyrir þreytu og orkuleysi. Tæplega þremur af hverjum tíu, 28 prósent, líði illa með sjálfan sig eða finnist að þeir hafi ekki staðið sig í stykkinu gagnvart sjálfum sér eða fjölskyldu sinni.
Leikskólar Vinnumarkaður ASÍ Fjármál heimilisins Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira