Lífið

Sigga Ósk er Ung­frú Ís­land

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sigga Ósk sigraði Ungfrú Ísland.
Sigga Ósk sigraði Ungfrú Ísland. Arnór Trausti

Sigga Ósk sigraði Ungfrú Ísland 2026. 

Nítján stúlkur kepptust um að fá titilinn Ungfrú Ísland í Gamla Bíó nú í kvöld. Þær gengu meðal annars um á sundfötunum, svöruðu spurningum um málefni líðandi stundar og ræddu málefni sem brenna á þeim. 

Sigga Ósk, sem heitir í raun Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, er 26 ára söngkona, kennari og leikkona með B.Ed-gráðu í kennslufræðum og diplómugráðu frá tónsmíðaskólanum LIMPI.

Hægt verður að horfa á keppnina í heild innan skamms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.