Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Kjartan Kjartansson skrifar 22. apríl 2026 09:00 Sólveig Annar Jónsdóttir, formaður Eflingar, (t.v.) og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, (t.h.) eru báðar varaforsetar ASÍ. Vísir Formaður Eflingar lýsir formanni VR sem „ómerkilegum popúlista“ sem hafi tekið sér stöðu með hálauna og forréttindafólki. Þá hafi hann „hrokafulla og heimskulega“ afstöðu til embætta varaforseta Alþýðusambandsins.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, heldur áfram að ausa úr skálum reiði sinnar yfir Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, í aðsendri grein á Vísi í morgun. Greinin er viðbrögð við Facebook-færslu Höllu þar sem sú síðarnefnda svaraði gagnrýni Sólveigar Önnu á launamál hennar. „Formaður VR hefur með framferði sínu stillt sér upp við hlið hálauna og forréttindafólks samfélagsins og með því afhjúpast sem ómerkilegur popúlisti. Hvernig hún ætlar að fara að því að leiða kjarabaráttu vinnandi fólks á þessu landi sem einn valda og fyrirferðamesti einstaklingur íslenskrar verkalýðshreyfingar er mér hulin ráðgáta,“ skrifar Sólveig Anna í dag. Upphafleg gagnrýni Sólveigar Önnu beindist að ákvörðun stjórnar VR um að hækka laun formannsins um tólf prósent í síðustu viku. Hún hélt því ennfremur fram að Alþýðusamband Íslands (ASÍ), sem Efling greiðir til, niðurgreiddi laun formanns VR þar sem þóknun sem hann fær fyrir að vera varaforseti ASÍ teldist hluti af heildarlaunum hans hjá VR. Halla sagði það ekki koma Sólveigu Önnu eða Eflingu við hvernig stjórn VR hagaði launakjörum formanns og að það hefði engin áhrif á ASÍ í færslunni sem hún skrifaði í gær. Þar rakti hún einnig ætlaða óvild Sólveigar Önnu í hennar garð í gegnum tíðina. „Mér líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli. Ef ég tjái mig er líklegt að næsta frétt á eftir verði upp úr einhverjum Facebook-orðaflaumi Sólveigar Önnu,“ skrifaði Halla meðal annars. Aðför að umboði Í nýjustu ádrepu sinni um Höllu gerir Sólveig Anna orð starfssystur sinnar um eðli embætta varaforseta ASÍ að umfjöllunarefni. Halla sagði Sólveigu Önnu hafa barist fyrir því að varaforsetunum yrði fjölgað en að þeir hefðu enga sérstaka lagalega stöðu hjá ASÍ. Störf varaforseta fælust helst í tveimur stuttum fundum á mánuði og að vera staðgenglar forseta. Á þessu er Sólveig Anna hneyksluð. Varaforsetarnir eigi sæti í miðstjórn ASÍ sem sé æðsta stjórn sambandsins á milli þinga. Fjöldi funda sem þeir sæki segi ekkert til um stjórnskipulega stöðu varaforsetanna. „Afstaða fomanns VR til embættisins er ekki aðeins hrokafull og heimskuleg, heldur líka aðför að því lýðræðislega umboði sem þing ASÍ veitir þeim sem þar eru kjörnir til að fara með stjórn sambandsins.“ Opinberun launatölu réttlæti þau ekki Halla vísaði til þess að ákvörðun stjórnar VR um kjör hennar væri ætlað að auka gagnsæi sem hefði verið ábótavant. Benti hún á að laun formanns VR væri opinber í ársskýrslum, öfugt við kjör formanns Eflingar. Sólveig Anna gefur ekkert út á hvers vegna Efling birti ekki launakjör formanns en segir að ekki dugi að vísa í gagnsæi eitt og sér. „Það að birta launtölu formanns í ársskýrslu, líkt og VR gerir, eru ekki töfrar sem gera launin sjálfkrafa réttlætanlega. Nei, þau verða að standast siðferðilegt og verkalýðs-pólitískt mat,“ skrifar Sólveig Anna.
Stéttarfélög Kjaramál ASÍ Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira