Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. apríl 2026 08:22 Afganirnir hafa dvalið í Katar í ár. Bandaríski herinn/Jimmie Baker Stjórnvöld vestanhafs eru sögð velta því fyrir sér að senda 1.100 manns frá Afganistan, þar af 400 börn, til Kongó. Um er að ræða einstaklinga sem störfuðu fyrir Bandaríkjamenn í Afganistan og fjölskyldur þeirra.
Bandaríkjamenn og Bretar lögðu nokkra áherslu á það þegar hersveitir þeirra yfirgáfu Afganistan og landið komst aftur undir stjórn Talíbana að bjarga þaðan einstaklingum sem höfðu starfað fyrir þá og áttu þannig mögulega von á hefndaraðgerðum. Til stóð að leyfa umræddum einstaklingum að hefja nýtt líf í Bandaríkjunum en þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti komst til valda féll hann frá fyrirætlununum, enda efst á forgangslistanum að halda útlendingum frá landinu. Umræddur hópur hefur þannig verið fastur í Katar síðasta árið. Samkvæmt New York Times er um að ræða túlka, fyrrverandi liðsmenn afganskra öryggissveita og fjölskyldumeðlimir bandarískra hermanna. Miðillinn hefur eftir Shawn VanDiver, forseta hjálparsamtakanna AfghanEvac, að honum hafi verið tjáð af embættismönnum innan utanríkisráðuneytisins að til standi að láta fólkið velja á milli þess að verða sent aftur til Afganistan eða til Kongó, þar sem átök standa yfir við Rúanda og um 600 þúsund flóttamenn búa við ömurlegar aðstæður. VanDiver segist telja um að ræða bragð af hálfu Bandaríkjastjórnar til að koma fólkinu aftur til Afganistan, þar sem litlar líkur séu á að það velji að fara til Kongó. Yfir 190 þúsund Afganir sem veittu Bandaríkjaher aðstoð í Afganistan hafa fengið dvalarleyfi í Bandaríkjunum frá 2021. Embættismenn í ríkisstjórn Trump hafa fordæmt þess ákvörðun Joe Biden, fyrrverandi forseta, og segja hana hafa komið niður á bandarísku þjóðinni. „Hver ætlar að berjast við hlið Bandaríkjanna þegar Bandaríkin svíkja þá sem hafa staðið með þeim?“ segir Rina Amiri, fyrrverandi sendifulltrúi í málefnum Afganistan.
Bandaríkin Donald Trump Afganistan Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Sjá meira