Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 26. apríl 2026 07:03 Þeim sem selja nikótínpúða hefur fjölgað hratt. Vísir/Egill Sölustaðir nikótínpúða hafa margfaldast á aðeins örfáum árum og eru nú ríflega þrjú hundruð. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun berast reglulega tilkynningar um að börnum séu seldir nikótínpúðar.
Notkun landsmanna á nikótínpúðum hefur farið vaxandi á síðustu árum. Ríflega þrjú hundruð verslanir hafa í dag leyfi til að selja nikótínpúða en fyrir um hálfu ári voru þær tvö hundruð og fimmtíu. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur eftirlit með sölu nikótínpúðanna en samkvæmt tölum frá henni voru árið 2022 seldar ríflega fimm milljónir dósa af nikótínpúðum og sex milljónir árið eftir. Árið 2024 voru svo töluvert fleiri dósir seldar eða hátt í níu milljónir og fimm hundruð þúsund. Í fyrra fækkaði þeim aftur en þá voru tæplega sex milljónir dósa seldar. Það eru ríflega sextán þúsund dósir á dag eða tvöfalt meira en fyrir fimm árum. Um áramótin 2024 og 2025 var sérstakur skattur settur á nikótínpúða og hækkaði verðið á púðunum nokkuð við það. Skarphéðinn Grétarsson, sérfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, telur erfitt að fullyrða strax hvort skattlagningin hafi haft áhrif. „Þetta bendir til þess að annaðhvort hafi verið orðin svakaleg sprengja 2024 og allir viljað fá sér nikótínpúða sem hafa síðan minnkað úr 2025. Eða þá að, eða þá að eins og þessir, sem sagt, skattar á nikótínpúðana hafi náð að, sem sagt, minnka neyslu á þeim. Þú veist, að skattarnir hafi skilað þeim árangri að fólk sé síður að nota þessar vörur. Eða þá að það séu sölustaðir sem hafa hamstrað í raun og veru vörurnar inn og lager hjá sér, átt birgðir áður en að skattlagningin átti sér stað og það myndi þá skila sér í aukinni sölu 2024 og minni sölu 2025. En við erum náttúrulega ekkert alveg klárar á því nákvæmlega af hverju tölurnar eru svona,“ segir Skarphéðinn. Þá voru seldar 1,5 milljónir einnota rafretta og 400.000 áfyllingar fyrir rafrettur í fyrra sem er svipað og árin áður. Verslunum sem selja nikótínpúða gæti fjölgað á næstunni þar sem nokkrar til viðbótar hafa sótt um leyfi. Skarphéðinn segir að reglulega berist tilkynningar um að börnum séu seldar rafrettur eða nikótínpúðar. „Það má náttúrulega alls ekki selja börnum þessar vörur. Og við náttúrulega erum frekar ströng á því og fylgjum því eftir ef það koma ábendingar um að það sé verið að selja börnum. Þá gefum við ekkert eftir og svo er sýnileiki líka. Vörurnar mega ekki vera sýnilegar á sölustöðvum. Þær eiga að vera þá faldar í einhvers konar skápum eða skúffum. Þegar ég kem inn í búð að kaupa mjólk, þá á ég ekkert að sjá nikótínvörur eða rafrettur.“ Verslunum sem selja nikótínpúða gæti fjölgað á næstunni þar sem nokkrar til viðbótar hafa sótt um leyfi. Skarphéðinn segir að reglulega berist tilkynningar um að börnum séu seldar rafrettur eða nikótínpúðar. „Það má náttúrulega alls ekki selja börnum þessar vörur. Og við náttúrulega erum frekar ströng á því og fylgjum því eftir ef það koma ábendingar um að það sé verið að selja börnum. Þá gefum við ekkert eftir og svo er sýnileiki líka. Vörurnar mega ekki vera sýnilegar á sölustöðvum. Þær eiga að vera þá faldar í einhvers konar skápum eða skúffum. Þegar ég kem inn í búð að kaupa mjólk, þá á ég ekkert að sjá nikótínvörur eða rafrettur.“
Heilsa Nikótínpúðar Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira