Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Siggeir Ævarsson skrifar 19. apríl 2026 19:15 Isabella Ósk Sigurðardóttir átti mjög góðan leik og skoraði 22 stig fyrir Grindavík í kvöld. Vísir/Anton Brink Það voru tvö funheit lið sem mættust í Ice Mar höllinni í dag í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna. Bæði Njarðvík og Grindavík sópuðu sínum viðureignum í 8-liða úrslitum og því allar forsendur til staðar fyrir alvöru Suðurnesjaslag hér. Leikurinn var nokkuð jafn í byrjun og staðan 18-22 fyrir Grindavík þar sem þær Brittany Dinkins og Danielle Rodriguez voru búnar að skora öll stig Njarðvíkur, níu stig hvor, sem er varla sjálfbært til lengri tíma litið. Hjá Grindavík voru aftur á móti sex leikmenn komnir á blað eftir fyrstu tíu mínúturnar. Grindvíkingar voru öllu beittari í öðrum leikhluta og komust tólf stigum þegar mest var. Þær voru að leita mikið inn í teig og spiluðu þétta vörn sem gaf þeim ódýrar körfur. Það færðist töluverð harka í leiknn á þessum tímapunkti sem virtist fara aðeins í taugarnar á Njarðvík. Staðan í hálfleik 34-44. Gestirnir byrjuðu á að koma muninum upp í 14 stig en þá hrukku Njarðvíkingar í gang og voru einfaldlega miklu betri næstu níu mínútur eða svo. Dinksins og Dani héldu áfram að gera Grindvíkingum erfitt fyrir í vörninni og staðan eftir þrjá leikhluta 58-61 þar sem allt virtist vera að falla með Njarðvíkingum. Njarðvíkingar héldu uppteknum hætti í upphafi fjórða og komust fljótlega yfir en tveir þristar í röð frá gestunum snéru leiknum aftur og þegar fjórar mínútur voru eftir var staðan 71-71 og allt í járnum. Sóknarleikur Grindavíkur var mjög stirður framan af seinni hálfleik en þær hrukku loks í gírinn á lokakaflanum og keyrðu þennan sigur heim að lokum. Lokatölur í Njarðvík í spennandi leik 81-87. Stjörnur og skúrkar Farhiya Abdi og Isabella Ósk Sigurðardóttir fóru fyrir sókninni hjá Grindavík í kvöld með 24 og 22 stig. Isabella bætti við átta fráköstum, þar af fjórum sóknarfráköstum en hún klikkaði aðeins úr tveimur af ellefu skotum sínum í leiknum. Abby Beeman gældi við þrefalda tvennu með níu stig, átta fráköst og níu stoðsendingar. Þá kom Emilie Hessedal sterk inn af bekknum og skilaði 13 stigum og tíu fráköstum. Hjá Njarðvík voru þær Brittany Dinkins og Danielle Rodriguez í algjörum sérflokki. 31 stig frá Dinksins og 24 frá Dani. Dinkins hársbreidd frá þrefaldri tvennu með níu fráköst og níu stoðsendingar að auki. Enginn annar leikmaður Njarðvíkur rauf tíu stiga múrinn og ljóst að fleiri verða að leggja í púkkið sóknarlega í næstu leikjum. Dómarar Kristinn Óskarsson, Davíð Kristján Hreiðarsson og Sófus Bender voru á flautunum í kvöld. Þeir komust þokkalega frá þessu í leik þar sem stundum var tekist nokkuð hart á. Það komu þó tvö mjög skrítnir dómar frá Sófusi við endalínuna þar sem leikmenn Njarðvíkur voru útaf vellinum með boltann en Sófus dæmdi þeim boltann í bæði skiptin. Seinna skiptið var sérstaklega skrautlegt þar sem boltinn kom fljúgandi í blaðamannastúkuna og lenti á tölvu sessunauts blaðamanns. Áhættustarf sem við vinnum. Stemming og umgjörð Það er ekki yfir neinu að kvarta þegar kemur að umgjörð í Njarðvík í kvöld. Burgers fyrir leik og ljósin slökkt og læti í leikmannakynningum. Allt upp á tíu þar. En stemmingin, maður minn. Stúkan varla hálf og algjör þögn í húsinu á köflum. Trommusveit Njarðvíkinga reyndi aðeins að keyra upp stemminguna á köflum en Stinningskaldi var greinilega í fríi í dag. Viðtöl Þorleifur: „Virkilega stoltur af stelpunum að klára þetta“ Þorleifur Ólafsson er þjálfari GrindavíkurVísir/Pawel Cieslikiewicz Eftir að hafa verið komnar fjórtán stigum yfir í upphafi þriðja leikhluta kom slæmur kafli hjá Grindvíkingum þar sem sóknarleikurinn hreinlega fraus. Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, kannast vel við þennan slæma kafla en var sáttur með það hvernig hans konur brugðust við mótlætinu í kvöld. „Þetta er bara gamla góða. Við vorum að þröngva hlutunum og ekki láta boltann ganga. Þetta hefur svona verið okkar Akkilesarhæll í vetur. Duttum bara í þann pakka og mjög slæman. En frábært hjá stelpunum. Þetta var mjög lélegur kafli í svona 5-6 mínútur en við komum til baka og gerðum mjög vel að klára þetta.“ Mætti kannski segja að Njarðvík hafi ýtt Grindavíkurkonum út úr því sem þær vildu gera? „Njarðvík gerði bara mjög vel. Voru bara að spila hörkuvörn og settu svolítið línuna. Við vorum komin í gott forskot í þriðja en svo bara fraus allt. Við þurfum að gera betur og stytta þessa tíma, þetta var alltof langt hjá okkur.“ Það má kannski kalla þetta karaktersigur, að bogna en ekki brotna? „Klárlega og bara virkilega stoltur af stelpunum að klára þetta. Stóðu sig vel og við vorum svolítið að ráðast á það sem var að virka. Aftur og aftur og aftur sem er mikil framför. Vel gert hjá þeim að stýra þessu. Ég vil svolítið mikið að þær séu að stjórna þessu og þær séu að taka ákvarðanir. Við erum búnar að gera hluti á æfingu og þær gerðu bara mjög vel.“ Það mætti jafnvel segja að þið hafið verið sterkari á svellinu í kvöld? „Klárlega, eins og maðurinn sagði! Heldur betur.“ - Sagði Þorleifur léttur að lokum. Einar Árni: „Við vissum alveg sem væri að við værum að fara í ruddaseríu“ Einar Árni Jóhannsson þjáflari NjarðvíkurAnton Brink/Vísir Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, hefur í mörg horn að líta fyrir næsta leik liðanna. Eftir frábæra endurkomu í seinni hálfleik náðu hans konur ekki að láta kné fylgja kviði að þessu sinni. Hann tíndi eitt og annað til sem útskýrði tapið að þessu sinni. „Bara barningur og barátta. Auðvelt að benda á að þær skoða 17 stig eftir „second chances“, það stingur. Í fyrri hálfleik voru fjögur sóknarfráköst sem öll skila körfu. Svo koma þarna móment þar sem við erum að gera vel varnarlega, erum að brenna þær á skotklukku en þær vinna boltann til baka. Skora körfu. Svona lítil atriði, bara eins og leikurinn er.“ Það virðist vera ákveðið bras, í það minnsta sóknarlega, á miðherjum Njarðvíkur. Sofia Roma skoraði ekki stig í kvöld og Paulina Hersler hitti aðeins úr tveimur af átta skotum sínum. Einar vildi þó meina að meiðslin væru ekkert að angra hana lengur. „Það ekki verið upplegg að Sofia sé að skila okkur einhverjum hlutum sóknarlega. Hún er varnarmaður fyrst og síðast og frákastari. Paulina er náttúrulega búin að vera í burtu í þrjá mánuði. Hún er fín í höndunum ef þú ert að spá í því. Það er ekki vandamálið. En eðilega er hún ekki í sínu toppformi eftir að hafa verið í burtu í þrjá mánuði.“ Njarðvíkingar fengu lítið framlag sóknarlega frá flestum leikmönnum í kvöld. „Sérstaklega í fyrri hálfleik. Það voru fáir að leggja til málana, Krista var í rauninni eina fyrir utan þær tvær sem kom með eitthvað að borðinu í stigaskori í fyrri hálfleik. Það var strax meira líf, bæði Sara og Helena settu skotin sín í hornunum. Auðvitað þurfum við að fá úr fleiri áttum, engin spurning. Á sama tíma þá hrópar það líka á okkur hvað þær eru á hárri prósentu stóru stelpurnar þeirra. Isabella, Farhiya og Em eru svolítið lykillinn að sigrinum í dag.“ Einar er þó alls ekki af baki dottinn þrátt fyrir tap í þessum fyrsta leik. „Við höfum bara tröllatrú á þessu liði. Við vissum alveg sem væri að við værum að fara í ruddaseríu og þyrftum að spila toppleiki til að vinna. Það er 1-0 og áfram gakk. Við bara mætum með fítónskraft í leik tvö og ætlum okkur ekkert annað sigur þar.“ Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík UMF Grindavík