Leik lokið: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik 15. apríl 2026 20:57 Valur - Fram undanúrslit kvenna í bikarnum HSÍ 2025 Valur er komið í 1-0 á móti Fram eftir endurkomusigur í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handbolta. Framkonur áttu frábæran fyrri hálfleik og leiddu 16-12 eftir hann. Þær voru 22-19 yfir þegar níu mínútur voru eftir en Valsliðið vann lokakafla leiksins 7-2 og tryggði sér sigur. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaeinvígið en næsti leikur er á heimavelli Framliðsins. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Olís-deild kvenna Valur Fram