Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. apríl 2026 20:41 Hópurinn þykir víst ekkert sérstaklega merkilegur og honum hefur því verið skipt út. Skipuleggjendum K-Pop Infinity tónleika sem áttu að fara fram í Eldborgarsal Hörpu sunnudaginn 19. apríl hafa ákveðið að skipta út listamönnunum þar sem atriðið þykir ekki hafa staðist væntingar. Sýningin hefur fengið harða útreið í fjölmiðlum í Svíþjóð þar sem sársvekktir foreldrar hafa farið fram á að fá endurgreiðslu. Tónleikarnir fara fram í Eldborgarsal Hörpu á sunnudag klukkan 18:00 en breyting hefur orðið á og mun K-Pop Superstars þar stíga á svið í stað K-Pop Infinity. Um er að ræða tónleika þar sem meðal annars verða spiluð lög úr K-Pop Demon Hunters teiknimyndinni sem var ein sú vinsælasta í fyrra og lög kóresku poppsveitarinnar BTS svo eitthvað sé nefnt. „Ég skrifa þér þessi skilaboð vegna þess að það er mér mikilvægt að vera hreinskilinn varðandi þá ákvörðun sem hefur verið tekin,“ segir í tölvupósti til tónleikagesta í Hörpu. „Gæði sýningarinnar K-Pop Infinity stóðust ekki væntingar þegar sýningin var frumsýnd í Kaupmannahöfn og við höfum því ákveðið að taka hana af dagskrá í Hörpu.“ Segir að í stað K-Pop Infinity hafi verið fundinn margreyndur og góður valkostur. Gerður hafi verið samningur við sýninguna K-Pop Superstars. Tekið er fram að miðinn gildi á hina nýju tónleika þó krefjast megi endurgreiðslu. Um sé að ræða „kröftuga sýningu með átta atvinnuflytjendum sem hafa sýnt meira en 100 sýningar víðs vegar um Bretland og eru þekkt fyrir dýnamíska framsetningu og ekta K-Pop tónleikaupplifun.“ Auglýsing á vegum hópsins á Youtube. Sársvekktir sænskir foreldrar Í umfjöllun sænska ríkisútvarpsins er vitnað í sársvekkta sænska foreldra sem mættu með börn sín á tónleika K-Pop Infinity í Stokkhólmi. Foreldrarnir segja sveitina í raun ekkert hafa sungið heldur einungis hreyft varir og þá hafi dans þeirra ekki verið upp á marga fiska. „Þau voru eins og einhverjir unglingar, stóðu þarna á sviðinu og hreyfðu munninn yfir upptöku,“ hefur sænska ríkisútvarpið eftir sænska föðurnum André Wahlström sem greiddi rúmar átján þúsund krónur fyrir miða á tónleika sveitarinnar í Stokkhólmi fyrir sig og dóttur sína. Hann segir dóttur hans hafa verið sársvekkta og þakkar fyrir að hún hafi ekki verið örfáum árum eldri. Yfirlýsing frá tónleikahaldara: Góðan daginn Breyting á K-POP INFINITY Þú átt miða á viðburðinn K-POP SUPERSTARS sem fer fram19.04.2026 18:00 Skilaboð frá viðburðarhaldara: Kæri gestur, Ég heiti Morten og er skipuleggjandi K-Pop Infinity sýningarinnar sem fer fram í Hörpu þann 19. apríl. Ég skrifa þér þessi skilaboð vegna þess að það er mér mikilvægt að vera hreinskilinn varðandi þá ákvörðunnar sem hefur verið tekið. Gæði sýningarinnar K-Pop Infinity stóðust ekki væntingar þegar sýningin var frumsýnd í Kaupmannahöfn og við höfum því ákveðið að taka hana af dagskrá í Hörpu. Í staðinn höfum við fundið margreyndan og góðan valkost og höfum því gert samning við sýninguna K-Pop Superstars. Kröftuga sýningu með átta atvinnuflytjendum sem hafa sýnt meira en 100 sýningar víðs vegar um Bretland og eru þekkt fyrir dýnamíska framsetningu og ekta K-Pop tónleikaupplifun. Nánari upplýsingar um K-Pop Superstars og nýju sýninguna næsta sunnudag má finna HÉR.Þetta þýðir eftirfarandi fyrir þig: - Miðinn þinn gildir áfram á K-Pop Superstars - Ef þú vilt ekki sækja nýju sýninguna átt þú að rétt á fullri endurgreiðslu. Vinsamlegast hafðu samband við miðasölu Hörpu ef svo er. Takk fyrir skilninginn og stuðninginn. Við vonumst innilega til að fá að sjá þig á K-Pop Superstars þann 19. apríl. Eins og að fylgjast með leikfimitíma Einnig er rætt við svekkta foreldra í sænska miðlinum Aftonbladet og vísað til þess að margir skrifi neikvæðar umsagnir á samfélagsmiðla. „Börnin fóru þaðan mjög vonsvikin. Ekki bara smá óánægð heldur virkilega döpur og svekkt. Það er kannski það sem gerir mann reiðastan, að skipuleggjendum takist að taka eitthvað sem börn elska virkilega og breyta því í svo slæma upplifun að þau upplifa sig svikin,“ skrifar eitt foreldranna. Vitnað er til þess að í markaðsefni fyrir tónleikanna sé tónleikagestum lofað sýningu sem „enduruppgötvi“ hvað lifandi popp geti verið. Þá er skrifuð tónlistargagnrýni um tónleikana í Göteborgs-Posten en K-Pop Infinity hélt einnig tónleika þar. Lýsir blaðamaðurinn því að upplifunin hafi oft verið eins og að fylgjast með leikfimitíma. „Kannski er þetta betra en að sjá aldrei K-Pop á sviði, en þetta er bara eitthvað svo slappt. Sérstaklega í samanburði við K-Pop sem er svo vel úthugsað og nákvæmt, þar sem listamennirnir leggja sig virkilega fram. Það er svolítið eins og sýningin hafi verið búin til af einhverjum sem elskar ekki K-Pop í raun og veru eða hefur ekki lagt sig fram um að virkja krakkana í salnum almennilega. Ungu aðdáendurnir eiga betra skilið.“ Tónlist Tónleikar á Íslandi Harpa Mest lesið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið „Það voru margir með tár á hvarmi“ Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni Lífið Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Lífið „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Sjá meira
Yfirlýsing frá tónleikahaldara: Góðan daginn Breyting á K-POP INFINITY Þú átt miða á viðburðinn K-POP SUPERSTARS sem fer fram19.04.2026 18:00 Skilaboð frá viðburðarhaldara: Kæri gestur, Ég heiti Morten og er skipuleggjandi K-Pop Infinity sýningarinnar sem fer fram í Hörpu þann 19. apríl. Ég skrifa þér þessi skilaboð vegna þess að það er mér mikilvægt að vera hreinskilinn varðandi þá ákvörðunnar sem hefur verið tekið. Gæði sýningarinnar K-Pop Infinity stóðust ekki væntingar þegar sýningin var frumsýnd í Kaupmannahöfn og við höfum því ákveðið að taka hana af dagskrá í Hörpu. Í staðinn höfum við fundið margreyndan og góðan valkost og höfum því gert samning við sýninguna K-Pop Superstars. Kröftuga sýningu með átta atvinnuflytjendum sem hafa sýnt meira en 100 sýningar víðs vegar um Bretland og eru þekkt fyrir dýnamíska framsetningu og ekta K-Pop tónleikaupplifun. Nánari upplýsingar um K-Pop Superstars og nýju sýninguna næsta sunnudag má finna HÉR.Þetta þýðir eftirfarandi fyrir þig: - Miðinn þinn gildir áfram á K-Pop Superstars - Ef þú vilt ekki sækja nýju sýninguna átt þú að rétt á fullri endurgreiðslu. Vinsamlegast hafðu samband við miðasölu Hörpu ef svo er. Takk fyrir skilninginn og stuðninginn. Við vonumst innilega til að fá að sjá þig á K-Pop Superstars þann 19. apríl.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Harpa Mest lesið „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Lífið Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu Bíó og sjónvarp Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Lífið Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Lífið „Það voru margir með tár á hvarmi“ Lífið Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Menning Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni Lífið Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Lífið „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Sjá meira