Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. apríl 2026 21:07 FH-ingar eru með pálmann í höndunum eftir sigur kvöldsins. Vísir/Anton Brink FH-ingar eru einum sigri frá sæti í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta eftir nauman sigur gegn nágrönnum sínum í Haukum í kvöld, 27-23. Heimamenn í FH voru sterkari aðilinn í upphafi leiks og náðu fljótt fínni forystu. Haukar fóru illa að ráði sínu sóknarlega og skoruðu aðeins tvö mörk á fyrstu tíu mínútum leiksins. FH-ingar nýttu sér það og náðu fjögurra marka forskoti í stöðunni 6-2. Gunnari Magnússyni, þjálfara Hauka, leist ekki á blikuna og tók leikhlé. Við það batnaði leikur Hauka sem unnu sig hægt og bítandi aftur inn í leikinn. Gestirnir í Haukum fengu loksins markvörslu eftir leikhléið og það sem eftir lifði fyrri hálfleiks var leikurinn meira í járnum. Þegar um fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum náðu Haukar að minnka muninn niður í tvö mörk, sem varð svo munurinn á liðunum þegar flautað var til hálfleiks. Staðan 14-12, FH í vil, þegar hálfleiksflautið gall og liðin gengu til búningsherbergja. Síðari hálfleikur var svo nokkurnveginn framhald af því sama. FH-ingar voru með forystuna og Haukar gerðu hvað þeir gátu til að brúa bilið. Það virtist þó vera sama hvað gestirnir í Haukum reyndu, alltaf varð eitthvað til þess að FH-ingar héldu forystunni. Eftir bara sæmilegan fyrri hálfleik kom Daníel Freyr Andrésson inn í mark FH-inga og varði oft og tíðum eins og óður maður. Ekki var það að hjálpa gestunum. Að lokum reyndust FH-ingar einfaldlega sterkari og sigldu fram úr undir lok leiks. Heimamenn unnu að lokum fjögurra marka sigur, 27-23, og fara nú á Ásvelli einum sigri frá úrslitaeinvíginu. Haukar eru hins vegar með bakið upp við gamla góða vegginn. Atvik leiksins Dómarar leiksins þurftu í tvíganga að fara í skjáinn til að meta það hvort þyrfti að reka einhvern úr gestaliðinu í sturtu. Ólafur Ægir Ólafsson fékk að líta beint rautt spjald þegar um tíu mínútur lifðu leiks fyrir að reka olnbogann upp í andlitið á Ómari Darra Sigurgeirssyni þegar Ólafur sótti sjálfur að marki. Beint rautt fyrir sóknarbrot er kannski ekki mjög algengt, en það gerist þó. Stjörnur og skúrkar Í leik þar sem Garðar Ingi Sindrason skorar ekkert mark fyrir FH þurfa aðrir í hvíta liði Hafnarfjarðar að stíga upp. Birkir Benediktsson var frábær í liði FH og skoraði átta mörk úr níu skotum fyrir liðið og þá átti Jón Bjarni Ólafsson flotta innkomu á línuna, skoraði fimm mörk úr jafn mörgum skotum og fiskaði nokkur víti. Þá átti áðurnefndur Daníel Freyr frábæran seinni hálfleik í marki FH-inga og endaði með tólf varin skot, þar af þrjú víti. Hins vegar þurfa margir í Haukaliðinu að skoða sín mál eftir leik kvöldsins. Skarphéðinn Ívar Einarsson skoraði sjö mörk fyrir liðið og Freyr Aronsson sex, en fyrir utan þá voru fáir að skila framlagi sóknarlega. Dómararnir Þeir Anton Pálsson og Jónas Elíasson fengu krefjandi verkefni í kvöld. Svo sem ekki við öðru að búast þegar þessi tvö lið mætast, og hvað þá í úrslitakeppni. Þeir félagar þurftu í tvígang að fara í skjáinn og hefðu mögulega getað gefið Frey Aronssyni beint rautt spjald fyrir brot á Garðari Inga snemma í seinni hálfleik, en hann slapp með tveggja mínútna brottvísun. Í seinna skiptið sem dómararnir fóru í skjáinn komust þeir að þeirri niðurstöðu að reka Ólaf Ægi í sturtu og heilt yfir voru þeir með nokkuð góð tök á leiknum. Stemning og umgjörð Það eru alltaf læti þegar þessi tvö lið mætast, og hvað þá í undanúrslitum Íslandsmótsins. Stemningin í stúkunni var góð og stuðningsmenn beggja liða létu vel í sér heyra frá upphafi til enda. FH Haukar