„Vona að þeir haldi í sín gildi og verði svolítið hugrakkir“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. apríl 2026 11:00 Örvar Eggertsson (til vinstri) var markahæstur í liði Stjörnunnar í fyrra með fjórtán mörk í Bestu deildinni. vísir/anton Halldór Árnason, sérfræðingur Stúkunnar, segir að lágmarkskrafa hjá Stjörnunni sé að ná í Evrópusæti. Hann segir Garðabæjarliðið hafa að mestu litið vel út á undirbúningstímabilinu.
Stjörnunni er spáð 3. sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. Eftir að hafa misst af Evrópusæti 2024 endaði Stjarnan í 3. sæti Bestu deildarinnar í fyrra. Liðið endaði fimmtán stigum á eftir Íslandsmeisturum Víkings. Halldór telur að Stjörnumenn stefni hátt í sumar. „Ég held að væntingarnar séu klárlega að berjast um titilinn og ég hugsa að það sé hreinlega krafa á að ná Evrópusæti aftur og að komast eitthvað áfram í Evrópu,“ sagði Halldór er hann var beðinn um að rýna í lið Stjörnunnar. Klippa: Besta-spáin 2026 - 3. sæti „Stjörnuliðið er gott lið. Það er vel mannað og búið að leggja töluvert í það. Ef maður horfir á veturinn fram að þessum fræga leik á móti KR í Lengjunni, þessum fræga leik, má segja að Stjarnan hafi verið besta liðið á Íslandi á undirbúningstímabilinu. Ég held þeir hafi spilað ellefu eða tólf leiki fram að þeim leik og unnið hvern einasta og marga mjög sannfærandi.“ Gamla góða Stjarnan Leikstíll Stjörnunnar breyttist talsvert seinni hluta síðasta tímabils. Halldór vonast til að Stjörnumenn fari af þeirri braut í sumar. „Maður sér teikn á lofti með að Stjarnan fari meira í það sem þeir voru þekktir fyrir þangað til seinni partinn í fyrra. Leikstíllinn gjörbreyttist eftir að Steven Caulker kom, til hins verra að mínu mati. Mér finnst ég sjá jákvæð teikn á lofti með bæði pressu og uppspil; gömlu góðu Stjörnuna,“ sagði Halldór. „Þeir spiluðu mjög góðan fyrri hálfleik á móti Víkingi í úrslitum Bose-mótsins og mér líst ágætlega á Stjörnuna þrátt fyrir þennan KR-leik sem að, þar sem allt gekk á afturfótunum. Ég vona að þeir haldi í sín gildi, vera svolítið hugrakkir að spila og pressa. Þeir eru með gott lið og geta barist um titilinn ef allt gengur upp.“ Stjarnan sækir KA heim í 1. umferð Bestu deildarinnar klukkan 17:00 sunnudaginn 12. apríl.
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira