Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar 4. apríl 2026 14:31 Það er athyglisvert að sjá og heyra sömu stjórnmálamenn og áður kölluðu eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB berjast nú gegn því að þjóðin fái yfirhöfuð að taka afstöðu til þess hvort klára eigi samning við ESB sem síðar færi í þjóðaratkvæði. Þessi viðsnúningur vekur eðlilega spurningar um hvort hér ráði í raun hagsmunir annarra en almennings. Sterk tengsl virðast vera á milli stjórnmála og sérhagsmunahópa sem hafa verulegan fjárhagslegan ávinning af því að Ísland standi utan ESB. Þetta kom skýrt fram í umræðum um veiðigjöld, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn og fleiri flokkar áttu fundi með Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) til að samræma andstöðuna. Fyrirtæki í greininni njóta þess að geta fjármagnað sig á erlendum vöxtum og starfað í umhverfi sem veitir þeim samkeppnisforskot til fjárfestinga innanlands. Fjármálakerfið og verðbólguhvatar Svipað mynstur má sjá í fjármálakerfinu. Bankar landsins hafa skilað miklum hagnaði á undanförnum árum í umhverfi hárra vaxta og verðbólgu með verðtryggða íslenska krónu. Á sama tíma sitja helstu stjórnendur þeirra saman í hagsmunasamtökum fyrirtækja á fjármálamarkaði þar sem rætt er um lykilmál markaðarinns eins og þjónustugjöld, vaxtamál og fleira. Það er eðlilegt að spurt sé: hvar liggja mörkin milli eðlilegs samráðs og óeðlilegs samræmingar á fákeppnismarkaði? Samtök atvinnulífsins og fákeppni Samtök atvinnulífsins (SA) hafa nýlega ráðið fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins sem framkvæmdastjóra. Mynstrið á verslunarmarkaði er kunnuglegt: lengi hefur verið bent á að verðhækkanir komi fram áður en kostnaðarhækkanir skila sér að fullu sem tryggir betri afkomu. Sem dæmi má nefna að olíufélögin eru nú með 20 króna hærri álagningu en var í desember síðastliðnum, sem eitt og sér ýtir verðbólgu upp um um allt að 0,4%. Þrátt fyrir mikla þekkingu á verðmyndun á olíumarkaði hefur hvorki framkvæmdastjóri SA né formaður kallað eftir samtali við olíufélögin sem starfa á fákeppnismarkaði. Fyrir um tveimur árum breytti þáverandi ríkisstjórn, þar sem fyrrverandi fjármálaráðherra og núverandi framkvæmdastjóri SA var búvörulögum undir því yfirskyni að styrkja stöðu bænda. Ýmsir aðilar þar á meðal Samkeppniseftirlitið vöruðu við breytingunum þar sem þær gætu dregið úr samkeppni. Í kjölfarið keypti Kaupfélag Skagfirðinga fyrirtækið Kjarnafæði — viðskipti sem ekki hefðu verið möguleg fyrir lagabreytinguna. Því má velta því fyrir sér hvort umrædd breyting hafi verið gerð sérstaklega svo KS gæti keypt Kjarnafæði. Samkvæmt nýustu gögnum Hagstofu Íslands hafa búvörur hækkað um 8 -12%. Tilviljun? Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, orðaði þetta svo: „Ýmislegt er nú heimilt í rekstri afurðastöðva sem forsvarsmenn annarra fyrirtækja gætu fengið fangelsisdóm fyrir að gera, til dæmis að hafa með sér samráð um verðlagningu” Verðtryggð og vísitölutengd húsaleiga Heimar, Reitir, Eik, Alma og Ívera högnuðust samtals um 36,6 milljarða árið 2025 og hafa byggt upp umtalsverð eignarsöfn. Leigusamningar eru að stórum hluta verðtryggðir og tengdir vísitölu sem þýðir að hækkandi verðbólga skilar sér beint í hærri leigu. Í slíku umhverfi hafa þessir aðilar augljósa hagsmuni af núverandi kerfi, þar sem háir vextir og verðtrygging ráða miklu. Við inngöngu í ESB og við upptöku evru þá munu vextir lækka (eins og almennt hefur gerst í ESB löndum sem gerir fólki auðveldar með að kaupa sér þak yfir höfuðið í stað þess að vera á leigumarkaði. Forstjóri Heima fasteignafélags sem er fyrrverandi formaður Samtaka atvinnulífsins og einn af þeim sem kom til greina sem formaður Sjálfstæðisflokksinns er nú farin að beita sér í umræðunni um ESB þar hann ber saman Ísland og fátæk umsóknarríki þegar eðlilegur samanburður væri að bera Ísland saman við þróuð ríki, enda markmiðið nokkuð augljóst að afvegaleiða umræðuna eins og kostur er. Sérhagsmunir eða almannahagsmunir?. Það er því varla tilviljun hverjir standa harðast gegn breytingum. Þetta eru þeir sem hafa mest að tapa á því að almenningur losni undan verðtryggingu, fái stöðugri gjaldmiðil og njóti lægri vaxta — þróun sem myndi fylgja auknu frelsi í viðskiptum og fjárfestingum. Þegar þessi atriði eru sett saman blasir við samtryggt kerfi þar sem áhrif og aðgengi að stjórnmálum eru veruleg. Þetta eru aðilar sem hafa bæði hvata og getu til að viðhalda háu vaxta- og verðbólgustigi, sem og verðtryggingu krónunnar í stað þess að horfa til hagsmuna þjóðarinnar. Lokaorð Það er því eðlilegt að spyrja: Á stefna landsins að ráðast af sérhagsmunum fárra eða vilja almennings? Látum þjóðina ráða Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar