Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 3. apríl 2026 21:22 Mímir Kristjánsson er hálfíslenskur og situr á norska þinginu fyrir vinstriflokkinn Rautt. Vísir Mímir Kristjánsson, hálfíslenskur þingmaður vinstriflokksins Rautt á norska þinginu, sendi borgara gróf skilaboð þar sem hann hótaði að siga á hann „sínum sínum“ í Vítisenglunum.
Aftenposten greinir frá þessu og hefur umrædd skilaboð undir höndum. Hluti af skjáskotunum sem miðlinum barst birti hann en miðillinn segir að Mímir hafi hótað manninum barsmíðum. Brá við að heyra Vítisenglana nefnda Maðurinn sem fékk skilaboðin hafði merkt Mími athugasemd undir færslu fréttamiðils í Jaðri þar sem hann kallaði Mími aumkunarverðan (no. ynkelig). Maðurinn vildi ekki koma fram undir nafni en að því er fram kemur í umfjöllun Aftenposten hefur hann kært málið til lögreglu. Hann segist jafnframt ekki taka þátt í neinu pólitísku starfi en hefur þó verið virkur í umræðu á samfélagsmiðlum. Hann segist ekki telja það þingmanni sæmandi að senda slík skilaboð og að Mímir hafi skotið honum skelk í bringu með því að draga Vítisenglana í málið. Þeir eru skilgreindir sem alþjóðleg glæpasamtök af Europol. Rankaði við sér og sá að sér Í samtali við NRK harmar Mímir atvikið. Hann ber við drykkju. „Ég sat á veitingastað á Spáni og hótaði einhverjum. Þetta er nettröllshegðun,“ sagði hann. Þegar hann rankaði allsgáður við sér daginn eftir sendi hann manninum fleiri skilaboð. „Hæ! Fyrirgefðu, ég ætlaði ekkert að senda svona ljót skilaboð í gær (ég var fullur). En ég velti því samt fyrir mér hvers vegna þú ert að áreita mig. Og þegar þú gerir það reglulega, viku eftir viku, hittirðu fyrr eða síðar á mig í því skapi sem ég var í í gær,“ skrifaði hann til mannsins.
Noregur Íslendingar erlendis Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira