Eygló fær rós í hnappagatið í miðri meiðslamartröðinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. apríl 2026 07:33 Eygló Fanndal Sturludóttir fagnar sigri sínum á Evrópumótinu í fyrra. @eyglo_fanndal Eygló Fanndal Sturludóttir, ríkjandi Íþróttamaður ársins 2025, hefur verið tilnefnd sem lyftingakona ársins hjá Evrópska lyftingasambandinu.
Eygló tryggði sér Evrópumeistaratitilinn í -71 kílóa flokki í apríl í fyrra og varð þá fyrsti Íslendingurinn til að verða Evrópumeistari í opnum aldursflokki í ólympískum lyftingum. Þessi árangur lagði ekki aðeins grunninn að sigri hennar í kjörinu á Íþróttamanni ársins heldur hefur Eygló einnig fengið flotta alþjóðlega viðurkenningu. Hún er nefnilega meðal tíu kvenna sem tilnefndar eru sem lyftingakonur ársins hjá Evrópska lyftingasambandinu. Verðlaunin verða veitt á Evrópumeistaramótinu í Georgíu um miðjan apríl. Meiðsladraugurinn hefur ekki látið Eygló vera síðan að EM-gullið kom í hús, hún missti fyrst af heimsmeistaramótinu í lok síðasta árs vegna meiðsla og annað áfall á dögunum varð til þess að hún getur ekki varið titil sinn á Evrópumótinu í ár. Í síðustu viku greindi Eygló frá því að hún hefði rifið brjóskþófa á æfingu sem endaði með því að Eygló féll í yfirlið á sjúkrahúsinu. Meiðslin litu þó betur út en hún óttaðist í fyrstu og Eygló ætti að geta byrjað æfingar aftur fljótlega. Fréttir gærdagsins eru dýrmætar fyrir Íþróttamann ársins á þessum erfiðu vikum. View this post on Instagram A post shared by EWF (@ewfsport)
Lyftingar Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira