Guðrúnu frjálst að fara með ósannindi en þurfi að ábyrgjast fyrir dómi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. mars 2026 20:55 Sema Erla Serdaroglu, formaður Solaris, og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Samsett/Vilhelm/Ívar Fannar Solaris, hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, mótmæla því að „það séu þjóðarhagsmunir að formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra fái að fara með hrein ósannindi“. Þau hafa stefnt formanninum fyrir meiðyrði. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, greindi frá því í færslu á Facebook að Solaris hefðu stefnt henni fyrir meiðyrði fyrir orð sem hún lét falla í þætti Spursmála í nóvember 2025. „Þessi málatilbúnaður sýnir fyrst og fremst að þörfin fyrir opna umræðu um þennan málaflokk er meiri en nokkru sinni. Slík umræða verður ekki þögguð niður með lögsóknum. Ég mun taka til varna með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi,“ skrifaði Guðrún. Ummæli Guðrúnar: … hvað þá heldur þegar einstaklingar hér í samfélaginu voru að fara að landamærunum í Egyptalandi, til þess að ná fólki út sem enginn vissi deili á“ „ … en það gengur náttúrulega alls ekki að hér sé eitthvað, einhver samtök sem kalla sig frjáls félagasamtök, að þau séu einhvern veginn með mútugreiðslum og öðru að taka fólk yfir landamærin sem eru lokuð og koma því fólki hér inn í landið, það gengur engan veginn.“ „ … Jah, ég ætla að leiða að því líkum að þegar að fólk er hér með einhverjar safnanir í gangi og fer með peninga út og er að greiða fyrir ákveðna þjónustu eins og einhverjir sagði, á einhverri skrifstofu í Kaíró, eða hvar sem það nú var, að fyrir hvað ertu að borga, uuu, mjög háar fjárhæðir?“ „Solaris mótmæla því að það séu þjóðarhagsmunir að formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra fái að fara fram með hrein ósannindi án þess að sjálfboðaliðar og hjálparsamtök fái rönd við reist,“ segir í yfirlýsingu frá Solaris. Þar er tekið fram að þegar Guðrún gegndi embætti dómsmálaráðherra átti hún sæti í ráðherranefnd þáverandi ríkisstjórnar um málefnið þegar fólki frá Palestínu var komið, með aðstoð samtakanna, yfir landamærin til Egyptalands. Fólkið flaug síðan á vegum Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar, IOM, til Íslands. „Til að komast um borð í vélina þurfti hver farþegi að hafa dvalarleyfi útgefið af Útlendingastofnun, undirstofnun Guðrúnar, sem og skjöl sem útbúin voru í utanríkisráðuneytinu. Guðrún hafði því vitneskju um allt ferlið,“ segir í yfirlýsingunni. „Telja samtökin því að Guðrún Hafsteinsdóttir sé, gegn betri vitund, að fara með ósannindi þegar hún sakar sjálfboðaliða samtakanna um að hafa aðstoðað fólk, „sem enginn vissi deili á “ „…með mútugreiðslum”.“ Tekið er fram að tjáningarfrelsi hennar sé ekki heft heldur sé henni frjálst „að viðhafa hver þau ósannindi sem henni hugnast“. Hins vegar verði hún að ábyrgjast þau fyrir dómi. „Stendur það fyrir dyrum og mun Solaris því ekki taka þátt í frekara hnútukasti við formann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum, heldur leyfa dómsmálinu að hafa sinn gang.“ Sjálfstæðisflokkurinn Hjálparstarf Palestína Tjáningarfrelsi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, greindi frá því í færslu á Facebook að Solaris hefðu stefnt henni fyrir meiðyrði fyrir orð sem hún lét falla í þætti Spursmála í nóvember 2025. „Þessi málatilbúnaður sýnir fyrst og fremst að þörfin fyrir opna umræðu um þennan málaflokk er meiri en nokkru sinni. Slík umræða verður ekki þögguð niður með lögsóknum. Ég mun taka til varna með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi,“ skrifaði Guðrún. Ummæli Guðrúnar: … hvað þá heldur þegar einstaklingar hér í samfélaginu voru að fara að landamærunum í Egyptalandi, til þess að ná fólki út sem enginn vissi deili á“ „ … en það gengur náttúrulega alls ekki að hér sé eitthvað, einhver samtök sem kalla sig frjáls félagasamtök, að þau séu einhvern veginn með mútugreiðslum og öðru að taka fólk yfir landamærin sem eru lokuð og koma því fólki hér inn í landið, það gengur engan veginn.“ „ … Jah, ég ætla að leiða að því líkum að þegar að fólk er hér með einhverjar safnanir í gangi og fer með peninga út og er að greiða fyrir ákveðna þjónustu eins og einhverjir sagði, á einhverri skrifstofu í Kaíró, eða hvar sem það nú var, að fyrir hvað ertu að borga, uuu, mjög háar fjárhæðir?“ „Solaris mótmæla því að það séu þjóðarhagsmunir að formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra fái að fara fram með hrein ósannindi án þess að sjálfboðaliðar og hjálparsamtök fái rönd við reist,“ segir í yfirlýsingu frá Solaris. Þar er tekið fram að þegar Guðrún gegndi embætti dómsmálaráðherra átti hún sæti í ráðherranefnd þáverandi ríkisstjórnar um málefnið þegar fólki frá Palestínu var komið, með aðstoð samtakanna, yfir landamærin til Egyptalands. Fólkið flaug síðan á vegum Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar, IOM, til Íslands. „Til að komast um borð í vélina þurfti hver farþegi að hafa dvalarleyfi útgefið af Útlendingastofnun, undirstofnun Guðrúnar, sem og skjöl sem útbúin voru í utanríkisráðuneytinu. Guðrún hafði því vitneskju um allt ferlið,“ segir í yfirlýsingunni. „Telja samtökin því að Guðrún Hafsteinsdóttir sé, gegn betri vitund, að fara með ósannindi þegar hún sakar sjálfboðaliða samtakanna um að hafa aðstoðað fólk, „sem enginn vissi deili á “ „…með mútugreiðslum”.“ Tekið er fram að tjáningarfrelsi hennar sé ekki heft heldur sé henni frjálst „að viðhafa hver þau ósannindi sem henni hugnast“. Hins vegar verði hún að ábyrgjast þau fyrir dómi. „Stendur það fyrir dyrum og mun Solaris því ekki taka þátt í frekara hnútukasti við formann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum, heldur leyfa dómsmálinu að hafa sinn gang.“
Ummæli Guðrúnar: … hvað þá heldur þegar einstaklingar hér í samfélaginu voru að fara að landamærunum í Egyptalandi, til þess að ná fólki út sem enginn vissi deili á“ „ … en það gengur náttúrulega alls ekki að hér sé eitthvað, einhver samtök sem kalla sig frjáls félagasamtök, að þau séu einhvern veginn með mútugreiðslum og öðru að taka fólk yfir landamærin sem eru lokuð og koma því fólki hér inn í landið, það gengur engan veginn.“ „ … Jah, ég ætla að leiða að því líkum að þegar að fólk er hér með einhverjar safnanir í gangi og fer með peninga út og er að greiða fyrir ákveðna þjónustu eins og einhverjir sagði, á einhverri skrifstofu í Kaíró, eða hvar sem það nú var, að fyrir hvað ertu að borga, uuu, mjög háar fjárhæðir?“
Sjálfstæðisflokkurinn Hjálparstarf Palestína Tjáningarfrelsi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira