Tveggja ára reynsla af samkeppnisundanþágum á kjötmarkaði Breki Karlsson og Ólafur Stephense skrifa 27. mars 2026 14:46 Á Vísi birtist frétt í síðustu viku um 0,7% hækkun matarverðs milli mánaða, byggð á gögnum frá Verðlagseftirliti Alþýðusambandsins. Með fréttinni fylgdi myndin sem er hér að neðan. Það vekur óneitanlega athygli að af þeim tíu vöruflokkum, sem hækka mest (1 til 2,6% í mánuðinum), eru allir nema tveir búvörur þar sem innlend framleiðsla er stærstur hluti framboðsins. Á topp tíu-hækkunarlistanum eru fjórir flokkar kjötvara. Um síðustu helgi voru einmitt liðin tvö ár frá því að Alþingi samþykkti afar umdeildar breytingar á búvörulögum, sem veittu kjötafurðastöðvum víðtækar undanþágur frá samkeppnislögum. Ýmislegt er nú heimilt í rekstri afurðastöðva, sem forsvarsmenn annarra fyrirtækja gætu fengið fangelsisdóm fyrir að gera, til dæmis að hafa með sér samráð um verðlagningu, verkaskiptingu eða aðra þætti starfseminnar. Þeim er sömuleiðis heimilt að sameinast án afskipta samkeppnisyfirvalda og er áhrifa þeirra ákvæða þegar tekið að gæta. Undanþágurnar ná til allra kjötafurðastöðva án tillits til þess hvaða kjöttegundir þær vinna, hver fjárhagsstaða þeirra er eða hvert rekstrarformið er. Lagabreytingarnar gengu miklu lengra en undanþágur í nágrannalöndunum, þótt stundum sé því ranglega haldið fram af stuðningsmönnum þeirra að löggjöfin hafi eingöngu verið löguð að því sem gerist í öðrum Evrópulöndum. Þáverandi meirihluti atvinnuveganefndar Alþingis hélt því fram, þegar hann lagði fram hið umdeilda þingmál eftir miklar breytingar, að samþykkt þess þýddi að hagræðing myndi nást í kjötvinnslu og árangurinn yrði sá að bændur fengju mun hærra afurðaverð, „án þess að hækka þurfi verð til neytenda.“ Núna sjáum við hvernig það gengur. Það er afar brýnt að Alþingi samþykki frumvarp atvinnuvegaráðherra, sem miðar að því að vinda ofan af hinum misráðnu breytingum frá því fyrir tveimur árum og takmarka sömuleiðis undanþágur mjólkuriðnaðarins frá samkeppnislögum. Það er reginmisskilningur að til að bæta hag neytenda sé rétt að takmarka samkeppni. Það er nauðsynlegt að auka hana – í landbúnaði eins og annars staðar. Breki er formaður Neytendasamtakanna. Ólafur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Breki Karlsson Neytendur Samkeppnismál Undanþága kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar Skoðun Vaxtarmörk eða valdsmörk sveitarstjórna Orri Björnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Sjá meira
Á Vísi birtist frétt í síðustu viku um 0,7% hækkun matarverðs milli mánaða, byggð á gögnum frá Verðlagseftirliti Alþýðusambandsins. Með fréttinni fylgdi myndin sem er hér að neðan. Það vekur óneitanlega athygli að af þeim tíu vöruflokkum, sem hækka mest (1 til 2,6% í mánuðinum), eru allir nema tveir búvörur þar sem innlend framleiðsla er stærstur hluti framboðsins. Á topp tíu-hækkunarlistanum eru fjórir flokkar kjötvara. Um síðustu helgi voru einmitt liðin tvö ár frá því að Alþingi samþykkti afar umdeildar breytingar á búvörulögum, sem veittu kjötafurðastöðvum víðtækar undanþágur frá samkeppnislögum. Ýmislegt er nú heimilt í rekstri afurðastöðva, sem forsvarsmenn annarra fyrirtækja gætu fengið fangelsisdóm fyrir að gera, til dæmis að hafa með sér samráð um verðlagningu, verkaskiptingu eða aðra þætti starfseminnar. Þeim er sömuleiðis heimilt að sameinast án afskipta samkeppnisyfirvalda og er áhrifa þeirra ákvæða þegar tekið að gæta. Undanþágurnar ná til allra kjötafurðastöðva án tillits til þess hvaða kjöttegundir þær vinna, hver fjárhagsstaða þeirra er eða hvert rekstrarformið er. Lagabreytingarnar gengu miklu lengra en undanþágur í nágrannalöndunum, þótt stundum sé því ranglega haldið fram af stuðningsmönnum þeirra að löggjöfin hafi eingöngu verið löguð að því sem gerist í öðrum Evrópulöndum. Þáverandi meirihluti atvinnuveganefndar Alþingis hélt því fram, þegar hann lagði fram hið umdeilda þingmál eftir miklar breytingar, að samþykkt þess þýddi að hagræðing myndi nást í kjötvinnslu og árangurinn yrði sá að bændur fengju mun hærra afurðaverð, „án þess að hækka þurfi verð til neytenda.“ Núna sjáum við hvernig það gengur. Það er afar brýnt að Alþingi samþykki frumvarp atvinnuvegaráðherra, sem miðar að því að vinda ofan af hinum misráðnu breytingum frá því fyrir tveimur árum og takmarka sömuleiðis undanþágur mjólkuriðnaðarins frá samkeppnislögum. Það er reginmisskilningur að til að bæta hag neytenda sé rétt að takmarka samkeppni. Það er nauðsynlegt að auka hana – í landbúnaði eins og annars staðar. Breki er formaður Neytendasamtakanna. Ólafur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar