Leik lokið: ÍA-Ármann 103-107 | Ár­menningar kláruðu sitt

Sverrir Mar Smárason skrifar
Bragi Guðmundsson var með 25 stig í kvöld.
Bragi Guðmundsson var með 25 stig í kvöld. Vísir / Anton Brink

Skagamenn tóku á móti Ármanni í AvAir-höllinni á Akranesi í kvöld í lokaumferð Bónusdeildar karla. Fyrir leikinn var ljóst að ÍA væri fallið úr deildinni en Ármanni dugði sigur til þess að halda sér uppi.

Gestirnir úr Laugardalnum byrjuðu mun betur og komust snemma 9 stigum yfir en við það vöknuðu heimamenn og fyrsti leikhluti spilaðist nokkuð jafnt eftir það. Ármann hélt þó sinni forystu og staðan var 27-32, gestunum í vil eftir fyrsta leikhluta.

Í öðrum leikhluta juku gestirnir við forystu sína. Um miðbik leikhlutans tóku þeir algjörlega yfir leikinn og komust mest 18 stigum yfir. Gestirnir í Ármann voru greinilega vel samstilltir og ákveðnir í að halda sæti sínu í Bónusdeildinni. Stig og framlag dreifðist vel á liðið í fyrri hálfleik og allir voru að leggja hönd á plóg. Staðan í hálfleik var 47-60, Ármanni í vil.

Jafnræði var með liðunum í þriðja leikhluta. Darryl Morsell ákvað að taka málin í sínar hendur og gerði vel fyrir heimamenn sem minnkuðu muninn. Á sama tíma ákvað Bragi Guðmundsson að stíga upp og hélt gestunum alltaf nokkrum stigum yfir. Staðan eftir þriðja leikhluta var 69-79, gestunum í vil.

Heimamenn mættu af miklum krafti út í fjórða leikhluta og áfram hélt Darryl Morsell að bæta stigum á töfluna. Skagamenn minnkuðu muninn niður í tvö stig áður en Ármenningar tóku við sér. Það var gríðarleg spenna og mikill hiti í stúkunni þegar leið á leikinn. Leikur Grindavíkur og Þórs var þó löngu liðinn þar sem Grindvíkingar unnu sigur og sæti Ármanns í deildinni var tryggt. Ármann vann að lokum 4 stiga sigur á Akranesi 103-107 og því verður væntanlega fagnað vel í Laugardalnum um helgina.

Atvik leiksins

Troðsla kom frá Braga Guðmundssyni þegar 2 mínútur voru eftir af leiknum. Það var svona „statement“ augnablik enda fagnaði hann því vel þegar stúkan trylltist. Á þeim tímapunkti var Þór búið að tapa gegn Grindavík og sætið í deildinni tryggt.

Stjörnur og skúrkar

Daniel Love og Bragi Guðmundsson voru bestir í liði Ármanns í kvöld. Love með 24-4-7 og 31 framlagsstig en Bragi 25-6-2 og 25 framlagsstig.

Darryl Morsell og Gojko Zudzum stóðu upp úr hjá ÍA. Morsell með 34-7-4 og 31 framlagsstig en Zudzum með 27-12-1 og 31 framlagsstig.

Dómararnir

Það var mikill hiti á dómurunum í kvöld. Stuðningsmenn Ármanns voru duglegir að kvarta undan ákvörðunum dómaranna en unnu að lokum sigur í leiknum svo það kom ekki að sök. Í nokkur skipti var undirritaður sammála stúkunni.

Umgjörð og stemning

Mjög vel mætt frá gestunum og sýndi það mikilvægi leiksins þeirra megin. Mætingin frá stuðningsmönnum ÍA hefði mátt vera betri í síðasta leik Bónus deildarinnar í bili en kannski eðlilegt þegar liðið er fallið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira