Leik lokið: Álftanes-Stjarnan 124-115 | Enduðu á sigri á ná­grönnunum

Ísak Orri Leifsson Schjetne skrifar
Justin James var atkvæðamikill í kvöld.
Justin James var atkvæðamikill í kvöld. Vísir/Anton Brink

Álftanesingar enduðu erfitt tímabil á því að vinna nágranna sína úr Garðabænum. Álftanes vann 124-115 sigur í leik þar sem varnarleikurinn var lagður til hliðar. 

Álftnesingar voru í þeirri stöðu að geta hvorki komist í úrslitakeppnina né fallið úr deildinni og höfðu því að engu að keppa. Stjörnumenn áttu möguleika á öðru sætinu en enduðu í því þriðja.

 Justin James skoraði 27 stig fyrir Álfrane og Dúi Þór Jónsson bætti við 24 stigum en fimm leikmenn liðsins skoruðu átján stig eða meira.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira