Seldu skuldlaust hótel og fóru að leika sér Stefán Árni Pálsson skrifar 26. mars 2026 13:01 Stefán hefur haft nóg að gera í kringum allt sem kemur að hlöðunni undanfarin ár. Í Íslandi í dag kynntist Tómas Arnar Þorláksson lífinu og listinni í Leifshúsi og manninum sem rekur það. Stefán Tryggva- og Sigríðarson seldi hótel ásamt konu sinni fyrir nokkrum árum síðan.
Hann nýtti söluhagnaðinn í að umbreyta hlöðu í sýningarsal og fjósi og fjárhúsi í gistiaðstöðu. Síðan þá hafa listamenn úr öllum áttum fengið að dvelja á býlinu án þess að greiða einn einasta eyri fyrir. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni þar sem Stefán fer nánar út í ferlið allt og sögu hlöðunnar. „Þegar ég reyni að útskýra hvað við erum að gera hérna þá verður fólk eitt spurningamerki,“ segir Stefán og heldur áfram. „Við erum að borga af þessu húsnæði fasteignagjöld, hita og hvað sem fylgir. Ég er alltaf að gera eitthvað hérna. Stutta útgáfan af þessari sögu er að ég er að gera þetta fyrir erfidrykkjuna mína. Það svar dugar oftast og fólk fer þá ekkert að spyrja meira heldur hugsar frekar, já hann er svona ruglaður þessi.“ Hann segir að á fimm árum hafi húsnæðið og gæði þess spurst út án þess að auglýst hafi verið. Sautján ár í hótelbransanum Áður en Stefán sneri sér að þessu ráku þau hjónin hótelið Hótel Natura á lóðinni fyrir neðan. Þau seldu hótelið árið 2022 sem gerði þeim kleift að gera meira af því sem þau hafa gaman af. „Við ólum upp okkar krakka hér. Síðan þegar ég er orðinn þreyttur á því að vera í kúabúskapnum þá förum við yfir í ferðaþjónustuna og byggjum upp þetta hótel þarna niður frá. Við erum alveg á fullu í því í sautján ár og fengum þá nóg af því. Við seldum þá skuldlaust hótel og þess vegna höfum við getað leikið okkur svolítið hérna.“
Ísland í dag Hótel á Íslandi Tónlist Mest lesið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Sjá meira