Uppgjörið:Njarðvík - Valur 87-61 | Njarðvík stakk af í seinni hálfleik og tryggði annað sætið Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 25. mars 2026 21:39 Brittany Dinkins var frábær í liði Njarðvíkur Hulda/Vísir Njarðvík tók á móti Val í lokaumferð Bónus deild kvenna í kvöld. Njarðvík var í baráttu um 2. sæti deildarinnar á meðan Valskonur voru búnar að tryggja sér 4. sætið. Eftir frekar jafnan leik framan af var það Njarðvík sem sigldi fram úr í lokinn og fóru á endanum með öruggan 26 stiga sigur 87-61 og tryggði sér um leið 2.sætið. Leikurinn fór heldur hægt af stað og lítið skorað í byrjun. Valur opnaði leikinn á þriggja stiga körfu frá Guðbjörgu Sverrisdóttur og voru það Valskonur sem voru með yfirhöndina í upphafi leiks. Njarðvík gekk erfiðlega að koma stigum á töfluna fyrst um sinn en náði þó að finna smá takt undir lok fyrsta leikhluta og smeigja sér fram úr Valsliðinu og leiða leikinn með þrem stigum eftir fyrsta leikhluta 23-20. Heimakonur héldu áfram þar sem frá var horfið í upphafi annars leikhluta og sýndi Brittany Dinkins ítrekað að það sé nær ómögulegt að stöðva hana þegar hún kemst á ferðina. Bæði lið skiptust á áhlaupum og þegar leið á leikhlutann skiptust þau á að leiða leikinn. Það voru gestirnir af Hlíðarenda sem fóru inn í hálfleikinn með forystu en Valur leiddi með minnsta mun 35-36. Valur mætti með krafti út í seinni hálfleikinn og bætti við forystu sína. Leikhlutinn var að byrja mjög keimlíkur þeim fyrsta þar sem Valur var með yfirhöndina en aftur náði Njarðvík að snúa þessu við þegar leið á. Atvik leiksins Hulda María Agnarsdóttir setti mikilvægan þrist sem kom Njarðvík yfir og Njarðvík stal boltanum strax aftur og setti auðveld stig á töfluna. Þetta var kveikjan sem Njarðvík þurfti og þær leiddu með tíu stigum eftir þriðja leikhluta 61-51. Njarðvík setti fyrstu átta stig fjórða leikhluta og ljóst í hvað stefndi. Eftir lofandi leik framan af þá endaði þetta bara með hreinni slátrun þar sem Njarðvík fór afar illa með lið Vals og fór að lokum með 26 stig sigur 87-61. Stjörnur og skúrkarBrittany Dinkins var óstöðvandi í kvöld. Þvílíkur kraftur og hraði sem hún býr yfir. Það er ekki hægt að stöðva hana þegar hún kemst á ferðina! Hún endaði leikinn með 38 stig og tók auk þess tíu fráköst og gaf átta stoðsendingar.Ég var mjög hrifin af Ingu Leu í þessum leik líka. Hún leysti sitt hlutverk virkilega vel og var að setja sterk stig. Hún endaði með níu stig.Hjá Val varð þetta bara hrun um miðjan þriðja leikhluta og lítið sem hægt er að taka út úr þessu heilt yfir hjá þeim.DómararnirKristinn Óskars, Bjarni Hlíðkvist og Guðmundur Ragnar sáu um flautuna í kvöld.Heilt yfir var þetta bara fínasta dómgæsla hjá þeim í kvöld.Stemingin og umgjörðÞað er alltaf stuð og stemning í IceMar höllinni og þar var enginn undantekning í kvöld. Forsmekkurinn fyrir úrslitakeppnina og þokkalega vel mætt.Einar Árni Jóhannsson þjáflari NjarðvíkurAnton Brink/Vísir„Með góðum varnarleik fylgdi svo fínt tempó í sókninni“„Ánægður með liðið mitt“ sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur eftir sigurinn í kvöld.„Við spiluðum hörku fína vörn í gegnum allan leikinn og ég var ánægður varnarlega í fyrri hálfleik en mér fannst seinni hálfleikurinn bara virkilega öflugur og með góðum varnarleik fylgdi svo fínt tempó í sókninni“Leikurinn var mjög jafn fyrstu 25 mínúturnar en svo stakk Njarðvík af og fór að lokum með öruggan og sannfærandi sigur.„Við náum góðu áhlaupi sem að var fyrst og fremst í stoppum. Við vorum að gera þeirra helstu skorurum [Reshawna] Stone og [Alyssa] Cerino mjög erfitt fyrir. Ég var hrikalega ánægður með Söru [Björg Logadóttir] og Kristínu Björk [Guðjónsdóttur] sem að létu Stone hafa fyrir öllu“„Hún skorar níu stig snemma í leiknum og endar í þrettán þannig held að það sé grunnurinn af öllu að hægja á henni og þær gerðu það feykilega vel með hörku liðsvörn og þá náttúrulega breikkar bilið og stemningin einhvern veginn öll með okkur“ sagði Einar Árni Jóhannsson.Jamil Abiad er þjálfari ValsVísir/Pawel„Vorum ekki mikið að stressa okkur á úrslitum“„Við vorum án tveggja lykilmanna í kvöld en það er enginn afsökun til að tapa leiknum“ sagði Jamil Abiad þjálfari Vals eftir tapið í kvöld.„Við gerðum okkar besta í kvöld og við vildum fá öðruvísi hluti úr leiknum í kvöld. Við vorum ekki mikið að stressa okkur á úrslitum“„Við vildum sýna gott framlag og baráttu. Við vorum með persónuleg markmið sem við settum okkur í kvöld og það var okkar megin áhersla í kvöld“Leikurinn var jafn lengst af en Njarðvík stakk af um miðbik þriðja leikhluta og hljóp með leikinn.„Orkan í liðinu fór svolítið í seinni hálfleik á meðan Njarðvík urðu orkumeiri. Við hættum að fylgja okkar varnarplani mun meira í seinni hálfleik“„Við fórum að skipta meira og við vildum að ungu stelpurnar okkar fengu tækifæri til þess að sýna sig því þær hafa verið risa stór hluti af okkar árangri í ár og við þurfum á þeim að halda í úrslitakeppninni svo þetta var stór leikur fyrir þær og við vildum gefa þeim tækifæri og sjálfstraust í dag“ sagði Jamil Abiad. Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Valur