Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Agnar Már Másson skrifar 19. mars 2026 21:51 „Heldur fólk virkilega að einhver geti sagt [Donald] Trump forseta til verka?“ spurði Netanjahú, þegar hann neitaði því að Ísraelsmenn hefðu dregið Bandaríkin í stríðið. Ronen Zvulun/AP Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, heldur því fram að Íranir geti ekki lengur auðgað úran, sem þarf til þess að búa til kjarnorkuvopn, eða framleitt frekari skotflaugar. Hann neitar því að Ísraelsmenn hafi dregið Bandaríkjamenn í stríðið og segir Ísraelsmenn ætla að hætta að ráðast á olíuinnviði Írans.
Ísraelski forsætisráðherrann greindi frá þessu á blaðamannafundi í dag, þegar tuttugu dagar eru liðnir frá því að stríðið í Íran hófst með samhentri árás Bandaríkjamanna og Ísraelshers á Íran. „Við erum að vinna,“ sagði Netanjahú. „Og það er verið að leggja Íran í eyði,“ bætti hann við samkvæmt Reuters. Ráðherrann sagði þá að eldflauga- og drónabirgðir Írana myndu vera eyðilagðar. „Það sem við erum að ráðast á núna eru verksmiðjur sem framleiða hluti til þess að búa til skotflaugar og búa til kjarnorkuvopnin sem [Íranir] eru að reyna að framleiða,“ sagði Ísraelinn. Hann færði aftur á móti engar sönnur fyrir fullyrðingum sínum um að Íranir væru nú ófærir um að auðga úran, sem ef maður vill nýta úran til að framleiða kjarnorkuvopn. Sjá einnig: Hvað er auðgað úran? (2018) Kjarnorkuáætlun Írana var þungamiðja samningaviðræðna milli Trump-stjórnarinnar í Bandaríkjunum og írönsku klerkastjórnarinnar, sem runnu þó út í sandinn þegar ísraelskum og bandarískum sprengjum fór að rigna yfir Teheran hinn 28. febrúar, meðal annars á aðsetur æðstaklerksins Ali Khamenei, sem féll í árásunum. Síðan þá hafa Íranir svarað með því að skjóta eldflaugum á Ísrael og önnur Persaflóaríki. Þá hafa írönsk stjórnvöld ráðist á olíuskip úti á Hormússundi, en sundið er ein mikilvægasta flutningsleið fyrir olíubirgðir heimsins og hefur röskunin á skipaumferð um Hormússund haft tilheyrandi áhrif á olíuverð víða um heim. Þrátt fyrir að stríðið hafi nú staðið yfir í tæplega þrjár vikur telur Netanjahú of snemmt að segja til um það hvort Íranir muni sjálfir fara út á götur til þess að steypa ríkisstjórn sinni af stóli, að því er fram kom í máli forsætisráðherrans. „Það er upp á írönsku þjóðina komið að sýna það,“ sagði Netanjahú. „Að velja augnablikið og grípa tækifærið.“ Þrátt fyrir að stríðið hafi að mestu leyti verið háð með loftárásum hingað til sagði ísraelski ráðherrann að einn liður stríðsins þyrfti að eiga sér stað landi og bætti við að „margir möguleikar“ væru í stöðunni hvað „landþátt“ stríðsins,“ án þess að fara í frekari málalengingar. Donald Trump Bandaríkjaforseti neitaði því aftur á móti í dag að hann hygðist senda bandaríska hermenn til Mið-Austurlanda. Netanjahú fann sig einnig knúinn til að neita því að Ísraelsmenn hefðu dregið Bandaríkin í stríðið. „Heldur fólk virkilega að einhver geti sagt Trump forseta til verka?“ bætti hann spyrjandi við en hátt í 1.300 manns eru sagðir hafa fallið í Íran frá upphafi stríðs að sögn AP. Auk þess nefndi Netanjahú að Ísraelsmenn hyggðust láta af árásum á olíuinnviði Írana, eftir að Trump krafðist þess af þeim fyrr í dag.
Íran Ísrael Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Kjarnorka Kjarnorkuvopn Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Sjá meira