„Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. mars 2026 07:46 Trump virðist í ham. Fyrst var það Íran og næst ætlar hann að „frelsa“ Kúbu. Getty/Nathan Howard „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti þegar hann ræddi við blaðamenn í Hvíta húsinu í gær. Þúsundir voru án rafmagns á Kúbu í gær, sem hefur sætt miklum þrýstingi frá stjórnvöldum vestanhafs.
New York Times greindi frá því í gær að Bandaríkjastjórn hefði krafist þess að forsetinn Miguel Díaz-Canel afsalaði sér embættinu. „Að taka Kúbu... Ég meina, hvort ég frelsa hana, tek hana. Ég held að ég geti gert hvað sem ég vil við hana,“ sagði Trump í gær. „Þjóðin er mjög veik fyrir núna.“ Rafmagnsleysi hefur verið viðvarandi vandamál á Kúbu, þar sem inniviðir hafa grotnað niður. Bandaríkjastjórn hafa hins vegar gert illt verra með því að hafa í hótunum við alla þá sem selja Kúbu olíu. Hún hefur krafist þess að stjórnvöld á Kúbu opni hagkerfið og sleppi öllum pólitískum föngum. NBC birti myndskeið í gær þar sem aðstoðarforsætisráðherra Kúbu, Oscar Pérez-Oliva Fraga, sagði stjórnvöld reiðubúin til að greiða fyrir fjárfestingum og viðskiptum við Bandaríkin. Samningar náðust um fjárfestingar bandarískra aðila á Kúbu í stjórnartíð Barack Obama en kerfið á Kúbu átti erfitt með að aðlagast og þegar Trump tók við dró hann í land. Stjórnvöld vestanhafs eru sögð vilja bíða með að greiða fyrir fjárfestingum á Kúbu, þar til þarlend stjórnvöld hafa sýnt fram á að þau séu raunverulega reiðubúin til að ráðast í breytingar.
Bandaríkin Kúba Donald Trump Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira