Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Agnar Már Másson skrifar 13. mars 2026 17:46 Andstæðingar sameiningar hreppanna tveggja hafa myndað framboð fyrir komandi kosningar. Vísir Framboðslistinn Framtíð Árneshrepps mun bjóða fram í hreppnum í komandi sveitarstjórnarkosningum en framboðið vill höfða til þeirra sem eru mótfallnir mögulegri sameiningu við Kaldrananeshrepp. Íbúar kjósa um sameininguna í mars en sveitarstjórnarkosningar eru í maí.
Í fréttatilkynningu er greint frá þessu nýja framboði, sem kynnir sig sem raunverulegan valkost fyrir þá sem telja ekki tímabært að ganga til sameiningar. Sigrún Sverrisdóttir úr Litlu-Ávík leiðir listann. Kosið verður um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps dagana 14. til 28. mars. Sveitarstjórnarkosningar eru 16. maí. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna taldi sameiningu félaganna geta styrkt samfélagið án þess að íbúar þurfi að afsala sér áhrifum eða nærþjónustu en Framtíð Árneshrepps segir ljóst að skiptar skoðanir séu meðal íbúa um hvort slíkt skref sé rétt á þessum tímapunkti. Listi Framtíðar Árneshrepps: Sigrún Sverrisdóttir - Litla-Ávík Þorgerður Lilja Björnsdóttir – Melar 1 Héðinn Birnir Ásbjörnsson - Djúpavík Hilmar Vilberg Gylfason - Krossnes Róbert Hlífar Ingólfsson – Árnes 2 Thomas Elguezabal - Norðurfjörður Pétur Freyr Ragnarsson - Munaðarnes Kristjana María S. Ásbjörnsdóttir - Djúpavík Davíð Már Bjarnason – Litla-Ávík Kristmundur Kristmundsson - Gjögur „Það er kominn tími til að næsta kynslóð í Árneshreppi axli ábyrgð og leysi okkar tryggu fyrirrennara af, að vernda hagsmuni byggðarinnar. Á listanum er breiðfylking fólks sem annað hvort hefur alist upp í hreppnum eða hefur fest þar rætur eftir að hafa heillast af svæðinu og samfélaginu. Fólk sem er ekki tilbúið að leggja árar í bát fyrr en nauðsynlegt er“ Meðal stefnumála listans er fjölgun starfa í hreppnum, bættar samgöngur, skipulag nýrra íbúðalóða, opnari stjórnsýsla og aukið íbúðasamráð en einnig vilja þau koma hreppnum á kortið sem fjarvinnustað. Þá er tekið fram að engar áherslubreytingar verði varðandi virkjunarframkvæmdir – sem er væntanlega vísun í Hvalárvirkjun – en mikilvægt sé að framkvæmdin verði samfélaginu til góðs með aðkomu að samfélagsverkefnum og sterku aðhaldi varðandi umgengni og frágang.
Kaldrananeshreppur Árneshreppur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira