„Það vantaði fræðsluefni um konur og íþróttir“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. mars 2026 13:14 Lára Hafliðadóttir og Hafrún Kristjánsdóttir standa fyrir verkefninu „Konur í íþróttum.“ UMFÍ Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna í dag var nýtt fræðsluverkefni fyrir konur í íþróttum frumsýnt.
Verkefnið Konur í íþróttum er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík (HR), Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ), Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ). Markmiðið er að efla þekkingu og fræðslu, styrkja heilsu og vellíðan íþróttakvenna, hámarka frammistöðu þeirra og draga úr líkum á meiðslum. Fræðsluefnið var frumsýnt í má finna hér en það samanstendur af 44 myndböndum, þar sem fjölbreyttur hópur sérfræðinga fjallar um lykilþætti tengda líkamlegri, andlegri og félagslegri velferð íþróttakvenna. Fjör á frumsýningunni á föstudag. UMFÍ Myndböndin eru skipulögð eftir efni fyrir yngri íþróttakonur og fyrir eldri iðkendur, þjálfara, foreldra og aðra sem koma að íþróttastarfi. „Það vantaði fræðsluefni um konur og íþróttir og sérstaklega fræðsluefni fyrir ungar íþróttakonur. Og við bara bjuggum til þann vettvang. Það er mikilvægt fyrir íþróttakonur, foreldra þeirra og þjálfara að skilja að konur eru með öðruvísi líkama en karlar og hvort og þá hvernig það getur haft bein eða óbein áhrif á íþróttaiðkun,“ segir Hafrún Kristjánsdóttir, deildarforseti íþróttafræðideildar HR. Hafrún Kristjánsdóttir sátt með frumsýninguna.UMFÍ Hafrún og og Lára Hafliðadóttir, starfsmaður KSÍ á Vísindasviði og doktorsnemi í íþróttavísindum við HR hafa leitt verkefnið og gegnt lykilhlutverki í þróun, innihaldi og heildarhugsun efnisins. „Ég vona að fræðslan auki þekkingu og skilning og stuðli að opnari umræðu um sérkenni kvenna, ekki aðeins meðal íþróttakvennanna sjálfra heldur einnig hjá öllum sem tengjast þeim á einhvern hátt. Markmiðið er meðal annars að styðja ungar íþróttakonur í gegnum þær flóknu breytingar sem eiga sér stað á unglingsárunum og þannig hafa jákvæð áhrif á þátttöku þeirra í íþróttum, líðan og heilsu,“ segir Lára. Fræðsluefnið er í fyrirlestrarformi á myndbandsupptökum.UMFÍ Konur eru alls konar en ekki litlir karlar „Það er margþættur munur á milli kynjanna, konur eru því ekki litlir karlar. En það er líka margþættur munur innan kvenna. Konur eru nefnilega alls konar, og ekki er ráðlagt að setja þær allar undir sama hattinn. Flottir fulltrúar KSÍ á frumsýningu fræðsluefnisins á föstudag. vísir Einstaklingsmiðuð nálgun er því alltaf mikilvæg, hjá konum sem körlum. Sömuleiðis hafa margar rannsóknir sýnt að líkamar karla sem kvenna bregst við þjálfun á svipaðan hátt og að grunnlögmál þjálffræðinnar eru þau sömu hjá kynjunum, eftir kynþroskaskeiðið. Að því sögðu búa konur yfir ákveðnum sérkennum sem eiga lítið eða ekki við um karla. Má þar nefna margþætt áhrif kynþroskaskeiðsins, meðganga og endurkoma eftir fæðingu, breytingaskeiðið, endómetríósa, PCOS, brjóstaheilsa og þá er tíðahringurinn einskorðaður við konur, eins og við vitum. Fjör á frumsýningunni.UMFÍ Þessir þættir geta haft bein og/eða óbein áhrif á íþróttakonur, m.a. frammistöðu, meiðslahættu, brottfall, líðan og heilsu. Þess vegna er mjög mikilvægt að auka fræðslu og þekkingu á þessu sviði, opna umræðuna og gera ákveðna þætti minna taboo sem hafa verið það í gegnum tíðina,“ segir Hafrún. Hér má sjá allt fræðsluefnið og nánari kynningu á verkefninu.
Konudagur ÍSÍ KSÍ Háskólar Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Hjalti stýrir Skagamönnum Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Spurs knúðu fram oddaleik Tilfinningaríkur sigur Littler Dagskráin í dag: Baráttan um þriðja sætið í Bestu deild karla Snýr aftur heim til Víkinga Sabalenka þakklát eftir sigur Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Martin valinn mikilvægastur Allegri ráðinn þjálfari Napoli Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Sjá meira