Tinda­stóll - Grinda­vík 92-87 | Stólarnir lögðu topp­lið deildarinnar að velli í frá­bærum leik

Hjörvar Ólafsson skrifar
Taiwo Badmuns, Adaman Drungilas og Júlíus Ármann Ágústsson áttu góðan leik fyrir Tindastól í kvöld. 
Taiwo Badmuns, Adaman Drungilas og Júlíus Ármann Ágústsson áttu góðan leik fyrir Tindastól í kvöld.  Vísir/Pawel

Tindastóll bar sigurorð af Grindavík, toppliði Bónus-deildar karla í körfubolta, þegar liðin leiddu saman hesta sína í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld en leikurinn var liður í 19. umferð deildarinnar. 

Fyrsti leikhluti var mikil skemmtun en bæði lið spiluðu allt í senn hraðan, skilvirkan og skemmtilegan körfubolta sem var í háum gæðaflokki. Leikurinn var endanna á milli og hvorugt liðið freistaði þess að hægja tempóið á leiknum sem var jákvætt fyrir þá sem horfðu.

Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 26-30 Grindavík í vil. Leikmenn Tindastóls komu svo af mun meiri krafti úr blokkunum í upphafi annars leikhluta og náðu 8-0 kafla sem breytti stöðunni í 34-30. Varnir beggja liða hertust töluvert í öðrum leikhluta og hraðinn sem var í leiknum framan af vék fyrir hita og baráttu.

Tindastóll náði tíu stiga áhlaupi undir lok fyrri hálfleiks en Júlíus Orri Ágústsson setti niður sjö af þeim stigum. Sá góði kafli Tindastóls varð til þess að heimamenn fóru með sex stiga forystu, 46-40, inn í búningsklefa í hálfleik.

Gestirnir frá Grindavík komu svo ferskari út úr klefanum inn í þriðja leikhluta og skoruðu fyrstu sex stig leikhlutans. Staðan var þar af leiðandi jöfn, 46-46. Daniel Mortensen negldi svo niður þrist og Grindavík komin 48-49 yfir.

Dedrick Basile átti fínan leik fyrir Tindastól. Vísir/Pawel

Átta stig frá Adamas Drungilas, Sigtryggi Arnar Björnssyni og Dedrick Basile þýddu svo að Tindatóll var kominn með 56-49 forystu. Þá var komið að Jordan Sample sem skoraði fjögur stig í röð fyrir Grindavík og staðan 56-53 fyrir Tindastóli.

Þegar liðin fóru inn í fjórða og síðasta leikhlutann voru heimamenn með þriggja stiga forskot, 63-60, en mestu hafði munað sjö stigum á liðunum þegar þarna var komið og þau höfðu níu sinnum skipt um að leiða.

Áfram var jafnræði með liðunum í fjórða leikhluta. Þriggja stiga körfur frá Ólafi Ólafssyni og Deandre Kane í upphafi leikhlutans komu gestunnum 67-68 yfir. Þriggja stiga körfur frá Taiwo Badmus og Sigtryggi Arnari Björnssyni breyttu svo stöðunni í 77-71 Tindastóli í vil.

Ólafur Ólafsson setti niður stór skot sem héldu Grindavík inni í leiknum. Vísir/Hulda Margrét

Deandre Kane fékk þá dæmda á sig tæknivillu og Davis Geks setti niður víti sem kom Tindastóli sjö stigum yfir. Ólafur Ólafsson lagaði svo stöðuna fyrir Grindavík í 78-74 með þriggja stiga körfu.

Tindstóll var sterkari aðilinn á lokakafla leiksins og fór að lokum með fimm stiga sigur, 92-87, af hólmi. Grindavík er eftir sem áður á toppi deildarinnar með 32 stig en Tindastóll og Stjarnan koma þar á eftir með 28 stig hvort lið. 

Atvik leiksins

Troðsla Taiwo Badmus í fyrri hálfleik var augnakonfekt og sterkur kandídat í tilþrif umferðarinnar í Bónus-körfuboltakvöldi sem hefst fljótlega eftir að þessum leik lýkur. Endilega kíkið á troðsluna þar ef þið misstuð af henni.

Grindvíkingar voru svo afar ósáttir þegar Júlíus Orri fékk að taka víti aftur á ögurstundu í stöðunni 89-87 en Jordan Sample var talinn hafa farið og snemma af stað til þess að taka frákastið. Erfitt var að sjá hvor að þetta var réttur dómur eða ekki en dómararnir voru ekki vissir í sinni sök. 

Stjörnur og skúrkar

Adamas Drungilas var stigahæstur á vellinum með 25 stig og reif þar að auki niður 13 fráköst. Júlíus Orri átti góða spretti og skilaði 14 stigum og stal þremur boltum. Dedrick Basile mataði samherja sína með 11 stoðsendingum.

Hjá Grindavík var Ólafur Ólafsson atkvæðamestur með 22 stig og Deandre Kane kom næstur með 21 stig. Jeremy Pargo fann hins vegar ekki fjölina sína hjá gestunum en sjö af 24 skotum hans fóru ofan í. 

Þrátt fyrir að hafa skorað 14 stig hefur Jeremy Pargo átt betri leiki fyrir Grindavík. Vísir/Hulda Margrét

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, þeir Kristinn Óskarsson, Davið Kristján Hreiðarsson og Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, fengu verðugt verkefni og skiluðu því af sér með sóma. Þeir höfðu góða stjórn á leiknum og fá af þeim sökum átta í einkunn.

Stemming og umgjörð

Grettismenn voru í góðum gír og studdu sitt lið með háværum köllum og fögrum söng. Þeir Grindvíkingar sem löðgu leið sína á Sauðárkrók voru einnig í fínu stuði og gerðu sitt til þess að hvetja sína menn til dáða.

a deildarmeistari en Grindavík er langt komið með að tryggja sér titilinn. Liðin mætast í 19. umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira