Tók áhættu sem er að borga sig: „Stefnir í rosalegt kvöld“ Aron Guðmundsson skrifar 28. febrúar 2026 11:31 Bjarki Þór Pálsson, skipuleggjandi Glacier Fight Night og þjálfari hjá Reykjavík MMA hefur stillt upp bardagakvöldi á heimsmælikvarða í Framheimilinu í kvöld. Vísir Stærsta MMA bardagakvöld Íslandssögunar fer fram í Framheimilinu í kvöld. Skipuleggjandi kvöldsins tók áhættu með því að keyra stærð og umgjörð kvöldsins. Sú áhætta virðist vera að borga sig. „
Við erum að þrefalda stærðina á kvöldinu,“ segir Bjarki Þór Pálsson, skipuleggjandi Glacier Fight Night og þjálfari hjá Reykjavík MMA. „Við tókum áhættu með því en fundum fyrir svo rosalegum meðbyr eftir fyrsta bardagakvöldið og ákváðum því að keyra þetta upp í alvöru stærð. Það hefur gengið vel. Það eru bara örfáir miðar eftir. Stefnir í rosalegt kvöld.“ Áhorfendafjöldinn þrefaldast milli bardagakvölda, farið er úr Andrews Theater á Ásbrú yfir í Framheimilið í Úlfarsárdal. „Á fyrsta kvöldinu voru um fimm hundruð áhorfendur. Við erum að fara í fimmtán hundruð núna. Það eru um fjörutíu miðar eftir. Ég vissi alltaf að fólk væri spennt fyrir þessu. En ég vissi ekki að móttökurnar yrðu svona jákvæðar og góðar. Ég er ótrúlega ánægður með þetta.“ Fimm titilbardagar Öllu verður til tjaldað. Umgjörðin verður á heimsmælikvarða og mun svipa til bardagakvölds á vegum UFC. Mosfellingurinn Hákon Örn Arnórsson úr Reykjavík MMA mætir þekktum og reynslumiklum bardagakappa í Ali Albazi í aðalbardaga kvöldsins. Bróðir Ali, Amir, er meðal fremstu UFC bardagakappa í fjaðurvigt. „Við drögum stúkurnar í salnum út og fjörutíu VIP borð í verða kringum bardagabúrið. Það verður stór skjár hjá sviðinu þar sem að bardagakapparnir labba út á leið sinni í búrið. Svo verðum við með fjóra risaskjái yfir búrinu sjálfu. Bara í raun eins og er gert í UFC. Það verður ljósashow og svakaleg veisla í vændum.“ Ellefu bardagar eru á dagskrá þar sem fremsta bardagafólk landsins frá Mjölni og Reykjavík MMA keppir á móti bardagafólki erlendis frá. View this post on Instagram A post shared by Glacier Fight Night (@gfn_mma) „Það eru fimm titilbardagar á dagskránni. Við byrjum á sex upphitunarbardögum, svokölluðum prelims þar sem við sjáum mikið af breskum bardagamönnum mæta Íslendingum. Svo erum við einnig með Frakka sem og Þjóðverja. Þetta er mjög stappað og gott kvöld.“ Leikplanið klárt og sigur yrði stór fyrir Hákon Eins og fyrr sagði mætir Hákon Örn Arnórsson Írakanum Ali Albazi í aðalbardagakvöldsins. Ali er reynslumikill bardagakappi og hættulegur. Auk þess að vera skipuleggjandi bardagakvöldsins er Bjarki Þór einnig þjálfari Hákons. „Þetta verður krefjandi bardagi fyrir Hákon. Þetta er mjög góður andstæðingur. Hann er mikill glímumaður og Hákon er meira fyrir það að halda bardaganum standandi. Þá er hann reynslumikill. Við höfum verið að búa til gott leikplan fyrir þetta. Aðallega að nota höggin til þess að koma sér ekki í hættu á að vera tekinn niður. Þetta yrði rosalega stór sigur fyrir Hákon því Ali er er mjög vel metinn erlendis. Þetta verður krefjandi en ég hef fulla trú á okkar manni.“ View this post on Instagram A post shared by Glacier Fight Night (@gfn_mma) UFC tengingar muni ekki hjálpa Ali þegar inn í búrið verður komið. „Hann er alltaf að fara vera einn í búrinu þegar að hann mætir Hákoni.“ Sýnt verður beint frá bardagakvöldinu hjá Livey. Þar er hægt að kaupa aðgang að bardagakvöldinu. Fyrir þau sem vilja mæta á sjálft bardagakvöldið er lítið eftir af miðum en hægt að kaupa þá á vefsíðu Moment.
MMA Mest lesið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Handbolti Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Fótbolti Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Íslenski boltinn Snorri semur til 2032 Handbolti „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ Fótbolti KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Körfubolti Fleiri fréttir Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Díana fer aftur til Fram Ganverjar fá reynslubolta til starfa fyrir HM Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Flick fannst grasið ekki nógu vel slegið hjá Atlético Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Ólympíukóngurinn fjárfestir í skák eins og Haaland Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal Dagskráin: Geta Liverpool og Barcelona komið til baka í Meistaradeildinni? Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ancelotti gefur Neymar vonarglætu „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Við héldum haus sem að við gerðum ekki í síðasta leik“ „Það var mikil barátta og þeir geta alveg slegist“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Uppgjörið:Keflavík-KR 101-65: Keflavíkurkonur tryggðu sér oddaleik Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Vignir Vatnar einn á toppnum Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Sjá meira