Sigurganga stráka Guðjóns Vals heldur áfram en tap hjá Bjarka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2026 19:34 Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach og heldur áfram að gera góða hluti. Getty Guðjón Valur Sigurðsson stýrði Gummersbach til sigurs í fjórða deildarleiknum í röð í þýsku Bundesligunni í kvöld. Bjarki Már Elísson og félagar töpuðu aftur á móti í Meistaradeildinni.
Gummersbach vann í kvöld átta marka heimasigur á ThSV Eisenach, 35-27. Gummersbach var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17-13. Íslendingarnir voru rólegir í fyrri hálfleiknum, Elliði Snær Viðarsson nýtti eina skotið sitt en Teitur Örn Einarsson klikkaði á báðum skotum sínum. Elliði bætti við einu marki í seinni hálfleik og skoraði því tvö mörk en Teitur komst ekki á blað. Hann gaf þó eina stoðsendingu inn á línuna. Miro Schluroff var markahæstur með tólf mörk. Gummersbach er í sjötta sætinu með 29 stig, þremur stigum á eftir Kiel sem situr í fimmta sætinu. Gummersbach hefur unnið 13 af 21 deildarleik tímabilsins og aðeins tapað fimm leikjum. Íslenski landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson og félagar hans í ungverska liðinu Vesprém koma stigalausir heim frá Póllandi eftir tap í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld. Vesprém tapaði með einu marki, 36-35, í æsispennandi leik á móti heimamönnum í Industria Kielce. Bjarki nýtti öll þrjú skotin sín í fyrri hálfleiknum en Vesprém var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 19-17. Bjarki fékk ekki að spila í seinni hálfleiknum. Vesprém var 34-33 yfir en tapaði síðustu tveimur mínútunum 3-1 og þar með leiknum 36-35.
Þýski handboltinn Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira