Afsökunarbeiðni, skítkast og popúlismi - Alvarleg staða á Alþingi Hjörvar Sigurðsson skrifar 19. febrúar 2026 09:31 Í gær gerðist tvennt athyglisvert á Alþingi. Þingfundur hófst á því að forseti gaf orðið stökum þingmanni sem steig upp í pontu og bað þingheim og ráðherra afsökunar á þeim orðum sem þingmaðurinn lét falla á þingfundi degi áður. Það athyglisverða var að ekki fleiri gerðu slíkt hið sama. Staðreyndin er sú að þó að orð þingmannsins hafi verið honum, sem og Alþingi í heild, ósæmandi með öllu voru þau langt frá því að vera þau alvarlegustu, óheiðarlegustu, eða illkvitnustu sem bárust úr pontu Alþingis þennan hálftíma, hvað þá þennan þingfund. Fjórum mínútum áður hafði ráðherra nefnilega staðið frammi fyrir þingheim og fullyrt að þingmaðurinn, sem og samflokksmenn hans, séu, og hafi verið alveg síðan ráðherra settist á þing, á móti því að „verja kjör hinna verst settu“ í samfélaginu og hafi þess heldur haft það að leiðarljósi að slá „skjaldborg um ríkustu fjölskyldur landsins“. Þetta er popúlismi í sinni skýrustu mynd. Það er alvarlegt að fulltrúi ríkisstjórnarinnar tali með þessum hætti. Enn alvarlegra er þó sú staðreynd að þetta er ekki nýtt af nálinni. Þessi popúlíski málflutningur hefur verið ríkjandi meðal flokks ráðherra, sem og fulltrúa annara flokka í ríkisstjórninni, til margra ára. Popúlismi er eitt helsta mein okkar tíma og er sem rýtingur í síðu íslensks samfélags hvert sinn sem honum er hleypt inn fyrir veggi Alþingis. Hitt sem var athyglisvert var að viðbrögð almennings, ef marka má athugasemdir á samfélagsmiðlum, voru að ráðast að þingmanninum sem þó hafði manndóm til að biðjast afsökunar á sínu staka skítkasti en láta vera að ávíta þá sem makað hafa skít á veggi Alþingis í meira en ár samfleytt án einnar einustu afsökunarbeiðni. Hvar er þessi hneykslan þegar Inga Sæland ásakar stjórnarandstöðuna í heild sinni um að herja stríð gegn fátæku fólki? Hvar er þessi hneykslan þegar Ásthildur Lóa vænir stjórnarandstöðuna um að spilla viljandi framgang mála sem þau þó vita að séu þjóðinni til hagsbóta í þágu eigin pólitískra hagsmuna? Hvar er þessi hneykslan þegar Sigurjón Þórðarson skammar þingheim fyrir það eitt að vera ósammála áformum ríkisstjórnarinnar? Hvar er þessi hneykslan þegar Þorgerður Katrín ásakar minnihlutann um að treysta ekki þjóðinni? Hvar er þessi hneykslan þegar meirihlutinn vanrækir ítrekað skyldur sínar gagnvart minnihlutanum? Hvar er þessi hneykslan þegar ríkisstjórnin leggur það fyrir minnihlutann að eiga umræður um mikilvæg mál á sama tíma og þau læsa lykilupplýsingar bakvið trúnaðarskyldu og birta þær aðeins fáum aðilum? Hvar er þessi hneykslan þegar forsætisráðherra segir einkareknu fyrirtæki að "passa sig" fyrir það eitt að fylgja ekki aðgerðum ríkisstjórnarinnar? Hvar er þessi hneykslan þegar fjármálaráðherra stígur upp í pontu og talar niður til minnihlutans á sama tíma og hann svarar ekki spurningum sem lagðar eru fyrir hann? Hvar er þessi hneykslan þegar Ásthildur Lóa stígur upp í pontu til að hneykslast yfir ósæmandi orðræðu þingmanns örfáum mínútum eftir að hafa sjálf gert slíkt hið sama? Hvar er þessi hneykslan þegar fulltrúar ríkisstjórnarinnar snúa ítrekað út úr, víkja hjá því að svara spurningum og kjósa þess heldur að grafa undan fulltrúum minnihlutans með ásökunum um annarlegan ásetning? Að horfa upp á framkomu fulltrúa þessarar ríkisstjórnar á þingfundum hefur í raun verið áfall. Hún vekur upp mjög svo daprar minningar af andfélagslegum grunnskólabörnum og leikjum þeirra og aðferðarfræði - gaslýsing, hefndargirni, o.s.frv. Það er auðvelt að missa trú á framtíð þingræðis á Íslandi horfandi upp á þá heift og þá vanvirðingu sem minnihlutanum er sýnt. Enn verra er það þó að sjá hvað almenningur virðist taka þessari popúlísku nálgun fagnandi. Þó held ég í vonina um að ekki sé í raun að ræða samþykkt almennings á þessum popúlisma heldur að almenningur viti einfaldlega ekki hvað er að eiga sér stað innan veggja Alþingis. Því hvet ég þig, kæri lesandi, til að kveikja á Alþingisrásinni stöku sinnum og sjá hvernig þau sem hafa það hlutverk að setja lífi þínu skorður og skilgreina samband þitt við nágranna þína haga sér, og ákveða hvort að þú sért tilbúinn að ljá hegðuninni nafn þitt. Höfundur er tölvunarfræðingur og talsmaður gegn popúlisma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alþingi Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Skoðun Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Sjá meira