Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sif Sigmarsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 07:00 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur.
Michael starfaði sem logsuðumaður í gullnámu í Kirgistan. Í byrjun árs 2016 gæddu samstarfsmenn Michael sér á þjóðarrétti Kirgistan, pylsu úr hrossakjöti sem kallast chuchuk. Eins og samtímamanni sæmir smellti Michael mynd af pylsunni. Myndinni deildi hann á Facebook ásamt hnyttnum texta þar sem hann kvað pylsuna líkjast hrossatyppi. Starfsmönnum námunnar var hins vegar ekki skemmt. Þeim misbauð brandari Skotans um þjóðarpylsuna svo mjög að þeir gerðu uppreisn. Með naumindum tókst að koma Michael undan æstum múg, sem hugðist koma honum fyrir kattarnef, og út á flugvöll. Þar beið hans hins vegar lögreglusveit. Michael var handtekinn og honum tjáð að hann gæti átt yfir höfði sér fimm ára fangelsi. Hrossapylsur frá Kirgistan hafa að sögn ekkert með typpi að gera.GETTY Slaufunaræði og byltingarforingjar Í nýjum hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar fordæmdi fyrrverandi þingmaður Pírata, Helgi Hrafn Gunnarsson, „slaufunaræðið“ sem gekk yfir Ísland fyrir nokkrum árum. Helgi Hrafn kvað um „ofbeldismenningu“ hafa verið að ræða þar sem „hópar fólks tóku sig saman og meiddu og skemmdu fyrir þeim sem voru þeim ósammála.“ „Ef maður sagði nokkurn skapaðan hlut sem var fræðilega, hugsanlegt hægt að skilja á einhvern annan hátt heldur en veg helstu byltingarforingjanna, þá tók sig til hópur sem beinlínis vildi eyðileggja allt fyrir manni,“ sagði Helgi Hrafn um málið í Facebook færslu. „Félagslífið, fjölskylduna, vinnuna, allt.“ Hvernig getur útlendingur bara sagt þetta? Skotinn Michael Mcfeat slapp með skrekkinn: Honum var vísað frá Kirgistan. Ekki voru allir á eitt sáttir. Mayram Nuraliyeva, kokkur á veitingahúsi í Moskvu, hnoðaði hrossakjöt af ástríðu þegar blaðamann The Times bar að garði. „Þetta er einn af okkar ljúffengustu réttum,“ sagði hún og hóf að troða kjötinu í lambagarnir, en Mayram sérhæfir sig í að útbúa þjóðarrétt heimalands síns, Kirgistan. Mayram var í sárum yfir brandaranum um hrossatyppið. „Hvernig getur útlendingur bara mætt til landsins, borðað matinn okkar og látið svo út úr sér eitthvað þessu líkt?“ sagði hún og hristir höfuðið. „Ástandið var svo miklu betra á Sovét-tímanum þegar fólk gat ekki bara sagt hvað sem því datt í hug.“ Fögur í orði Veröld þar sem „fólk getur ekki bara sagt hvað sem því dettur í hug“ getur virst fögur í orði. Sagan sýnir hins vegar að á borði er hún langt frá því að vera sú útópía sem stefnt var að. Sovétríkin liðu undir lok. Helgi Hrafn Gunnarsson virðist bjartsýnn á að slaufunaræðið sé liðið hjá. En er raunin sú? Hætti í fússi Rithöfundurinn Arundhati Roy, höfundur metsölubókarinnar Guð hins smáa, hætti í fússi við þátttöku í Kvikmyndahátíðinni í Berlín í síðustu viku. Hátíðin er styrkt af þýska ríkinu. Við opnun hennar leitaðist dómnefndin við að koma sér hjá því að svara fyrir stuðning þýskra stjórnvalda við Ísraelsríki og framgöngu þess í Gaza. Sagði pólski kvikmyndaframleiðandinn Ewa Puszczyńska spurninguna „ósanngjarna“ og kvaðst ekki geta borið ábyrgð á ákvörðunum þýskra yfirvalda. Formaður dómnefndarinnar, þýski leikstjórinn Wim Wenders, kvað „kvikmyndir geta breytt heiminum“ en „ekki með pólitík“. Roy „bauð við“ ummælunum og kvað þau tilraun til að „þagga niður samtal um glæpi gegn mannkyninu ... þegar listamenn, rithöfundar og kvikmyndagerðarfólk ættu að vera að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að stöðva þá.“ Í ljós kom að það var ekki aðeins dómnefndin sem krafin var svara um pólitísk málefni lítt tengd hlutverki þeirra á kvikmyndahátíðinni. Harry Potter leikarinn Rupert Grint var spurður að því hvað honum fyndist um fasisma („ég er augljóslega á móti honum,“ var svarið) og leikkonan Michelle Yeoh, frá Malasíu, var spurð að því hvað henni fyndist um ástandið í Bandaríkjunum, svo fátt eitt sé nefnt. Leikarinn Rupert Grint kynnir nýjustu mynd sína á Kvikmyndahátíðinni í Berlín. Aðspurður segist hann á móti fasisma.GETTY Framkvæmdastýra hátíðarinnar fann sig knúna til að stíga fram og árétta það sem mörgum hefði þótt liggja í augum uppi í lýðræðisríki. „Listamönnum er frjálst að nýta sér tjáningarfrelsi sitt eins og þeir kjósa,“ sagði hún. Hún kvað hins vegar „ekki hægt að ætlast til þess að þeir tjáðu sig um hvert einasta pólitíska álitaefni sem einhverjum dytti í hug að spyrja þá um nema þeir kysu svo.“ Hvað myndi Mayram segja? Í Brennu-Njáls sögu kveður Skarphéðinn Njálsson andstæðing sinn í kútinn með því að saka hann um að „stanga úr tönnum“ sér „rassgarnarenda merarinnar“ sem hann át. Á sögutíma Njálu, og nánast fram á 19. öld, þótti fátt jafnófínt hér á landi og að leggja sér hrossakjöt til munns. Hvað ætli Mayram frá Kirgistan segði ef hún frétti að hrossakjötsát væri notað sem móðgun? Það virðist í auknum mæli viðtekið að fólk megi hafa eigin skoðanir. Rétturinn til að hafa ekki skoðun er hins vegar ekki öllum tryggður. Á list að vera pólitísk? Á hún ekki að vera pólitísk? Má halda kvikmyndahátíð án þess að gera helstu spellvirki mannkyns að þungamiðju hennar? En íþróttamót? Þorrablót? Viðskiptaþing? Má setja upp leiksýningu án þess að vekja athygli á uppgangi fasisma? Má halda kökubasar án þess að minna á hungursneyð í Súdan? Má fara á djammið án þess að minnast fallinna hermanna í Úkraínu? Má poppa og horfa á Netflix án þess að rifja upp helförina? Sitt sýnist hverjum. Það er einmitt fegurð þess að lifa ekki í Sovétríkjunum sálugu.
Samhengið með Sif Podcast með Sölva Tryggva Helgi Hrafn Gunnarsson Píratar Facebook Sovétríkin Bókmenntir Bandaríkin Þýskaland Kirgistan Menning Tengdar fréttir „Við kölluðum það einu sinni sexisma og rasisma“ Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist aldrei geta samþykkt að það sé í lagi að meiða fólk til hlýðni við ákveðnar skoðanir. 16. febrúar 2026 08:06 Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? 12. febrúar 2026 07:01 Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01 Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00 Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01 Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. 15. janúar 2026 07:00 Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“ Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins. 9. janúar 2026 07:02 Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Þegar þetta er skrifað stend ég frammi fyrir félagslega flóknu úrlausnarefni. 18. desember 2025 07:01 Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Í fyrra fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Við upphaf talningar blasti við að Íhaldsflokkurinn hafði beðið afhroð. Það aftraði þó ekki flokksjálkum frá því að halda öðru fram í kosningasjónvarpinu. 11. desember 2025 07:01 Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Ég var á leiðinni í göngutúr í vikunni og vantaði hlaðvarp til að hlusta á. Ég bað ChatGPT um meðmæli. Gervigreindarforritið var ekki lengi að grafa upp hlekki á fimm áhugaverð hlaðvörp um efni sem ég hafði tilgreint, birta um þau útdrátt og tilvitnanir í viðmælendur. 4. desember 2025 07:01 Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Árið 2015 greindi breski rithöfundurinn Matt Haig aðdáendum frá umfjöllunarefni næstu bókar sinnar á Twitter. Viðbrögðin urðu önnur en hann ætlaði. 27. nóvember 2025 07:02 Nýsloppin við vinstra vókið þegar það hægra mætti „Allar konur breytast að endingu í móður sína – það er þeirra harmleikur,“ ritaði Oscar Wilde. 20. nóvember 2025 07:01 Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira
„Við kölluðum það einu sinni sexisma og rasisma“ Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist aldrei geta samþykkt að það sé í lagi að meiða fólk til hlýðni við ákveðnar skoðanir. 16. febrúar 2026 08:06
Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? 12. febrúar 2026 07:01
Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01
Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00
Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01
Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. 15. janúar 2026 07:00
Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“ Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins. 9. janúar 2026 07:02
Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Þegar þetta er skrifað stend ég frammi fyrir félagslega flóknu úrlausnarefni. 18. desember 2025 07:01
Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Í fyrra fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Við upphaf talningar blasti við að Íhaldsflokkurinn hafði beðið afhroð. Það aftraði þó ekki flokksjálkum frá því að halda öðru fram í kosningasjónvarpinu. 11. desember 2025 07:01
Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Ég var á leiðinni í göngutúr í vikunni og vantaði hlaðvarp til að hlusta á. Ég bað ChatGPT um meðmæli. Gervigreindarforritið var ekki lengi að grafa upp hlekki á fimm áhugaverð hlaðvörp um efni sem ég hafði tilgreint, birta um þau útdrátt og tilvitnanir í viðmælendur. 4. desember 2025 07:01
Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Árið 2015 greindi breski rithöfundurinn Matt Haig aðdáendum frá umfjöllunarefni næstu bókar sinnar á Twitter. Viðbrögðin urðu önnur en hann ætlaði. 27. nóvember 2025 07:02
Nýsloppin við vinstra vókið þegar það hægra mætti „Allar konur breytast að endingu í móður sína – það er þeirra harmleikur,“ ritaði Oscar Wilde. 20. nóvember 2025 07:01