Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. febrúar 2026 07:54 Löggæsluyfirvöld vilja að tæknifyrirtækin séu duglegri við að taka efni úr dreifingu. Getty/Arne Dedert Barnaníðsmálum á Bretlandseyjum hefur fjölgað verulega og lögregluyfirvöld handtaka nú um þúsund grunaða barnaníðinga í hverjum mánuði. Þá hefur börnum sem er bjargað frá misnotkun fjölgað um helming á síðustu fimm árum.
Frá þessu greinir Guardian, sem hefur eftir National Crime Agency (NCA) að aukningin sé drifin áfram af tækniþróun og normalíseringu barnaníðs á netinu. Stofnunin segir fjölda ábendinga um einstaklinga sem hafa áhuga á barnaníði hafa tífaldast á áratug. Rob Jones, sem fer fyrir aðgerðum hjá NCA, segir að mikið af því efni sem sé í dreifingu á netinu sé þekkt, það er að segja búið að vera í dreifingu í nokkurn tíma og til í gagnasöfnum. Þannig gætu tæknifyrirtækin verið að gera meira til að taka efnið niður, með því til að mynda að nota gervigreind til að bera kennsl á það. „Börn eru orðin háðari internetinu og það sem við sjáum hjá brotamönnunum er að þeir vinna saman og skipuleggja sig á djúpvefnum en nota hinn opna vef til að bera kennsl á og misnota börn,“ segir Jones. Hann segir algóritma sýna mönnum sem hefðu áður skoðað barnaníð svipað efni og þá væri þeim tjáð á spjallrásum að girnd þeirra og athæfi væru fullkomlega eðlileg. Samkvæmt Guardian eru lögregluyfirvöld afar ósátt við hvað tæknifyrirtækin gera lítið til að sporna við barnaníð á netinu en á sama tíma væru þau háð fyrirtækjunum varðandi samvinnu um að taka efnið niður. „Þau gætu gert miklu meira,“ segir Jones og vísar til þess að flestar myndirnar sem séu í umferð séu þekktar. Tæki og tól væru til sem nýta mætti til að finna efnið og í raun ættu engar þekktar myndir að halda áfram að vera í umferð.
Bretland Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira