Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 15:47 Ársæll Guðmundsson, skólameistari í Borgarholtsskóla, er kominn í veikindaleyfi fram í apríl Sýn Ársæll Guðmundsson, skólameistari í Borgarholtsskóla, er kominn í veikindaleyfi en hann gerir ráð fyrir að snúa aftur til starfa úr leyfi 1. apríl og sitja út sinn skipunartíma í embætti skólameistara sem að óbreyttu lýkur í júní. Hann segist hvorki hafa heyrt frá fyrrverandi né núverandi menntamálaráðherra og segir það vera alveg nýja upplifun eftir áratuga langan feril sem skólastjórnandi að verða fyrir „sleggju ríkisstjórnarinnar.“
Þetta segir Ársæll í samtali við Vísi, en líkt og kunnugt er tilkynnti ráðuneytið Ársæli í lok nóvember að staða hans yrði auglýst og skipunartími hans ekki sjálfkrafa framlengdur þegar skipunartími hans rennur út í sumar. Ekkert heyrt í yfirmanninum Ingu Sæland „Eins og staðan er núna þá er ég í veikindaleyfi til 1. apríl en ég er bara skipaður skólameistari áfram og bara eins og hver annar í veikindaleyfi. Þannig að það er algjörlega óbreytt staða,“ segir Ársæll. „Ég hef ekki heyrt neitt frá núverandi menntamálaráðherra eða fyrrverandi. Þeir hafa hvorugir haft samband við mig, bara ekki neitt. Og núverandi ráðuneytisstjóri hefur ekki haft samband heldur þannig ég veit bara ekkert,“ bætir hann við. Óljóst hvað verður um fyrirhugaðar kerfisbreytingar Þær skýringar voru einkum gefnar á sínum tíma að ástæða þess að staðan yrði auglýst væri sú að til stæði að ráðast í miklar breytingar á stjórnsýslu framhaldsskólakerfisins, og því þætti eðlilegt að auglýsa þær stöður skólameistara sem losna í ljósi þeirra kerfisbreytinga sem væru í farvatninu. Síðan hafa orðið ráðherraskipti í mennta- og barnamálaráðuneytinu og lítið hefur spurst af því hver staðan er vegna þeirra breytinga sem stjórnvöld hugðust boða sem meðal annars myndu fela í sér stofnun svæðisskrifstofa um framhaldsskóla. „Það var notað sem ástæða fyrir því að auglýsa stöðuna hjá mér. Þannig ef það verður ekki þá er þetta mjög skrýtið,“ segir Ársæll, sem segir að Félag skólameistara hafi farið fram á að ákvörðunin verði dregin til baka þar sem forsendur væru brostnar. Hann segir tímann verða að leiða í ljós hvað verður en eins og er sé staða hans frekar óljós. „Það bara kemur í ljós. Ég verð í veikindaleyfi til 1. apríl og vænti þess að ég verði búin að ná góðri heilsu þá, en ég veit ekkert frekar en þú.“ „Stórfurðulegt mál“ eftir ríflega þrjátíu ára feril Það eina sem hann hafi heyrt á þessu ári hafi verið frá mannauðsstjóra ráðuneytisins sem hafi spurt hvort hann „vilji ekki ganga frá þessu svo hann geti farið að auglýsa stöðuna,“ eins og Ársæll lýsir því. Hann rifjar upp að fyrirhugaðar breytingar með stofnun svæðisskrifstofa hafi meðal annars falið í sér að skólameistarar yrðu ekki lengur embættismenn, og því hafi það verið notað sem rök fyrir því að auglýsa ætti stöðuna „Og ég spyr, af hverju á að fara að auglýsa stöðuna og ráða annan embættismann? Ef að það varð að auglýsa hana af því það átti ekki að ráða embættismann,“ segir Ársæll. „Þetta er bara alveg stórfurðulegt mál. Ég er nú búinn að vera stjórnandi í skólum í þrjá áratugi, eða frá 1994, og ég hef nú bara aldrei upplifað annað eins,“ segir Ársæll. Hann hafi starfað fyrir nokkra ráðherra á sínum ferli og hafi átt mjög góð samskipti við þá flesta, þar til nú. „Ég er bara steinhissa og eigum við ekki bara að orða þetta þannig að það er mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið, án þess að vita nokkuð út af hverju og engar skýringar, og þær skýringar sem voru gefnar þær halda ekki.“ „Það er búið að vera að skipa nýja skólameistara af því að sumir hafa sagt upp störfum og aðrir hætt, en ég er sá eini sem hef fengið tilkynningu um að staðan sé auglýst fyrir utan Árna Ólafs náttúrlega á Egilsstöðum síðan í kjölfarið,“ rifjar Ársæll upp. Í vikunni birtust svör Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem spurði ráðherra um embætti skólameistara framhaldsskóla. Fram kemur meðal annars í svari ráðherra að sex embætti skólameistara framhaldsskóla hafi verið auglýst á tímabilinu 1. mars til 1. desember í fyrra og að á sama tímabili hafi einum skólameistara verið tilkynnt um að ráðherra hygðist auglýsa stöðuna, það er staða Ársæls í Borgarholtsskóla.
Mál skólameistara Borgarholtsskóla Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira