Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. febrúar 2026 10:04 Málið komst upp þegar verið var að vigta afla úr fiskiskipinu Helgu Maríu RE-3. Brim Fiskistofa hefur ákveðið að afturkalla endurvigtunarleyfi Brim hf. í Reykjavík frá og með 9. mars næstkomandi, vegna alvarlegs brots sem átti sér stað þegar hugbúnaðarinnsigli vogar var rofið án þess að gripið væri til viðeigandi ráðstafana, til að mynda að fá vogina löggilda upp á nýtt.
Samkvæmt úrskurði Fiskistofu urðu veiðieftirlitsmenn þess varir í janúar síðastliðnum að hugbúnaðarinnsigli vogar sem notuð var til vigtunar á afla væri rofið. Málið var tekið til skoðunar og Brim gefið tækifæri til að koma athugasemdum á framfæri. Samkvæmt svörum fyrirtækisins hafði vogið bilað og rafvirki skipt um kraftnema og kaliberað vogina. Mannleg mistök hefðu leitt til þess að láðst hafði að kalla til löggildingaraðila til að láta löggilda vogina eftir viðgerðina. Brim benti hins vegar á að vigtun með annarri vog hefði skilað sömu niðurstöðu og hin vogin. Að því er fram kemur í úrskurði Fiskistofu gat Brim ekki sýnt fram á það hvenær viðgerðin hefði farið fram né hvað var gert. Þannig væri ekki hægt að segja til um hvort átt hafi verið við hugbúnað sem leitt hefði til innsiglisrofs. Brim hefði brotið gegn reglugerð með því að tryggja ekki að sú vog sem notuð var við endurvigtun uppfyllti skilyrði löggildingar. Fiskistofu bæri að afturkalla vigtunarleyfi aðila ef hann, fyrirsvarsmenn hans, starfsmenn eða aðrir sem störfuðu í þágu hans hefðu brotið gegn lögum eða reglum settum samkvæmt lögum. Það var niðurstaða Fiskistofu að Brim hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi með því að hafa ekki tryggt að innsigli vogarinnar sem notuð var til vigtunar sjávarafla væri órofið. „Við mat á þeim hagsmunum sem brotið ógnar lítur Fiskistofa til þess að þeir sem hafa leyfi Fiskistofu til endurvigtunar á sjávarafla, eru með leyfisveitingunni treyst til þess að framkvæma, í samræmi við ákvæði laga og reglugerða, vigtun á sjávarafla sem veiddur er úr auðlind sem er í eigu allra landsmanna. Leyfið er veitt í trausti þess að leyfishafi hagi framkvæmd vigtunar í samræmi við lög og að öll framkvæmd einkennist af því öryggi og festu sem endurspegli hina ríku almannahagsmuni sem felist í vigtuninni, enda byggist endanleg aflaskráning á henni,“ segir í úrskurðinum.
Sjávarútvegur Brim Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Sjá meira