Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Kristján Már Unnarsson skrifar 4. febrúar 2026 22:40 Grétar Br. Kristjánsson lögmaður var starfsmaður Loftleiða og síðar Flugleiða meginhluta starfsævi sinnar. Egill Aðalsteinsson Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina.
Flug með pílagríma til og frá Sádí-Arabíu hefur í hálfa öld verið þýðingarmikill þáttur í alþjóðaútrás íslenskra flugfélaga. Íslenska flugfólkið kynntist þar framandi siðum, eins og sjá mátti í frétt Sýnar. „Það var verið að lífláta fólk. Hálshöggva fólk og höggva af þeim hendur á torgum. Þetta var náttúrlega einhver viðbjóður sem mig langaði ekki til að upplifa,“ sagði Þuríður Sigurðardóttir, söngkona og fyrrverandi flugfreyja. Þuríður Sigurðardóttir söngkona starfaði sem flugfreyja í pílagrímafluginu.Egill Aðalsteinsson Þóra Guðmundsdóttir, stofnandi Air Atlanta, veit til þess að einn hópur starfsmanna félagsins hafi farið að sjá slíka aftöku. „Og áttu mjög erfitt á eftir. En við vorum mjög hörð á því að þeir færu ekki. Þá yrði tekið á málum,“ sagði Þóra. Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda Air Atlanta.Egill Aðalsteinsson Grétar Br. Kristjánsson, sem lést í fyrrasumar, lýsti því í viðtali sem tekið var nokkrum mánuðum áður, hvernig hann ásamt tveimur öðrum starfsmönnum Flugleiða dróst óvart inn í mannþröng í miðborg Jedda án þess að vita hvað var að gerast. Bíl hafi verið ekið inn á torgið. „Út úr honum drógu þeir mann, bundinn með hendur fyrir aftan bak. Og áður en við vissum af var komin á loft sveðja og það var búið að höggva af honum höfuðið. Og við vorum sennilega ekki lengra í burtu en tveir metrar,“ sagði Grétar. „Maður var hálshöggvinn þarna fyrir framan okkur. Þetta var eitthvað svo óraunverulegt. En samt sáum við höfuðið fara af.“ Þáttinn um pílagrímaflugið má nálgast á vefsjónvarpinu Sýn+. Hér má sjá kafla úr þættinum þar sem þau Grétar, Þóra og Þuríður segja frá þessum óhugnaði: Kynningarstiklu þriðju þáttaraðar Flugþjóðarinnar má sjá hér:
Flugþjóðin Fréttir af flugi Sádi-Arabía Icelandair Air Atlanta Tengdar fréttir Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42 Hreyflarnir hrikalegir á nýju Boeing 777-þotum Atlanta Flugfélagið Air Atlanta byggir nú upp farþegaflota sinn á ný eftir hrun í covid-faraldrinum og er þessa dagana að bæta við sig tveimur Boeing 777-breiðþotum til viðbótar við tvær sömu gerðar sem félagið fékk í fyrra. 18. júlí 2024 21:21 Stefnir í stærsta ár Air Atlanta með allt að tuttugu breiðþotur Flugfélagið Air Atlanta hefur fest kaup á fimm nýjum breiðþotum, meðal annars til að nota í umfangsmiklu pílagrímaflugi. Forstjórinn segir stefna í að árið verði það allra stærsta í sögu félagsins með allt að tuttugu risaþotur í rekstri. 11. apríl 2024 20:55 Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta. 11. júlí 2024 21:42
Hreyflarnir hrikalegir á nýju Boeing 777-þotum Atlanta Flugfélagið Air Atlanta byggir nú upp farþegaflota sinn á ný eftir hrun í covid-faraldrinum og er þessa dagana að bæta við sig tveimur Boeing 777-breiðþotum til viðbótar við tvær sömu gerðar sem félagið fékk í fyrra. 18. júlí 2024 21:21
Stefnir í stærsta ár Air Atlanta með allt að tuttugu breiðþotur Flugfélagið Air Atlanta hefur fest kaup á fimm nýjum breiðþotum, meðal annars til að nota í umfangsmiklu pílagrímaflugi. Forstjórinn segir stefna í að árið verði það allra stærsta í sögu félagsins með allt að tuttugu risaþotur í rekstri. 11. apríl 2024 20:55
Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47