Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Lovísa Arnardóttir skrifar 2. febrúar 2026 14:49 Meirihluti í borgarstjórn hefur óskað eftir því að forsætisnefnd skoði hvernig sé hægt að bæta fundi borgarstjórnar. Vísir/Vilhelm Fulltrúar meirihluta í borgarstjórn telja ekki tímabært að festa í sessi óundirbúnar fyrirspurnir á fundum borgarstjórnar. Fulltrúarnir beina því til næstu forsætisnefndar að kanna með hvaða hætti sé hægt að bæta fundi borgarstjórnar.
Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í forsætissnefnd, lagði til á síðasta fundi nefndarinnar að í ljósi góðrar reynslu af tímabundnu hálfs árs tilraunaverkefni með óundirbúnar fyrirspurnir á borgarstjórnarfundum á síðasta kjörtímabili yrðu þær teknar upp aftur og yrðu fyrsti liður á dagskrá fundar. Í tillögunni hennar var gert ráð fyrir að hálftími yrði tekinn í þennan dagskrárlið og að á hverjum fundi yrðu teknar fyrir fimm fyrirspurnir sem yrði beint til borgarstjóra, með heimild til að beina þeim að borgarfulltrúum. Í greinargerð með tillögunni kom fram að tilraunin hefði fengið góðan hljómgrunn á síðasta kjörtímabili. Markmið fyrirspurnatímans hafi verið að gera borgarstjórnarfundina skilvirkari, sveigjanlegri, auka upplýsingaflæði og gagnsæi auk þess að glæða áhuga almennings og fjölmiðla á borgarmálefnum. Mikilvægt fyrir kosningar „Þessi dagskrárliður er enn mikilvægari nú, ekki síst í ljósi þess að þak hefur verið sett á tímalengd borgarstjórnarfunda með þeim afleiðingum að fá mál komast á dagskrá borgarstjórnarfunda og mikilvæg mál frestast jafnvel svo mánuðum skiptir. Þá er þessi dagskrárliður ekki síst nauðsynlegur nú í aðdraganda sveitarstjórnarstjórnarkosninga til að auka upplýsingaflæði til borgarbúa í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í vor,“ sagði að lokum í greinargerð. Tillagan var felld með þremur atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúar meirihlutans á fundinum voru þær Sanna Magdalena Mörtudóttir úr Sósíalistaflokknum, Guðný Maja Riba úr Samfylkingunni og Helga Þórðardóttir úr Flokki fólksins auk áheyrnarfulltrúanna Alexöndru Briem, Pírötum, og Stefáns Pálssonar, Vinstri grænum. Margar aðrir leiðir standi borgarfulltrúm til boða Í bókun fulltrúa meirihlutans segir að samstarfsflokkarnir telji ekki tímabært að festa dagskrárliðinn í sessi. Borgarfulltrúum standi margar aðrar leiðir til boða til að leita upplýsinga. Þá benda þau á að dagskrá borgarstjórnarfunda sé oft umfangsmikil og mikilvægt sé að fjalla um sem flest mál á dagskrá. Fulltrúar meirihlutans ítreka mikilvægi þess að fundir hefjist á réttum tíma svo hægt sé að nýta tímann vel. Flokkarnir taka undir með Sjálfstæðisflokki að ástæða sé til að kanna með hvaða hætti sé hægt að bæta fundi borgarstjórnar „og efla það lýðræðislega samtal sem þar á sér stað.“ Fulltrúar meirihlutans beina því til næstu forsætisnefndar að skoða það. Marta segir að með því að fella tillöguna sýni meirihlutinn að hann hafi ekki áhuga á að gera fundina skilvirkari og gagnsærri. Vísir/Arnar Marta Guðjónsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem lagði tillöguna fram, lagði einnig fram bókun á fundinum þar sem hún sagði að í ljósi þess hversu stutt sé í kosningar hefði verið mikilvægt að taka upp þennan dagskrárlið til að auka upplýsingaflæði til borgarbúa. „Meirihlutaflokkarnir sýna svo ekki verður um villst að þeir hafa engan áhuga á að gera borgarstjórnarfundina skilvirkari og gagnsærri,“ segir að lokum. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins ásamt áheyrnarfulltrúum Pírata og Vinstri grænna lögðu þá fram svohljóðandi gagnbókun: „Fulltrúar samstarfsflokkanna í forsætisnefnd telja í ljósi reynslunnar síðustu mánuði, þar sem óánægja er með að málum á dagskrá hafi verið frestað vegna tímaskorts, að ekki fari vel á því að bæta nú við nýjum dagskrálið á fundi borgarstjórnar.“ Vill skipa spretthóp Magnea Gná Jóhannsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins, lagði einnig fram bókun þar sem hún tók undir mikilvægi þess að tengja borgarstjórnarfundi betur við það sem er að gerast í borginni og auka samtal á milli borgarfulltrúa. Hún lagði fram sína eigin tillögu og lagði til að skipaður yrði spretthópur sem hefði það hlutverk að móta tillögur um hvernig megi tengja umræður í borgarstjórn betur við það sem er að gerast í borginni og efla samtal kjörinna fulltrúa á borgarstjórnarfundum. Samkvæmt tillögu hennar yrði það verkefni hópsins að leggja mat á hvort taka eigi upp nýja umræðuliði, svo sem störf borgarstjórnarinnar eða óundirbúnar fyrirspurnir til borgarstjóra og formanna ráða.
Borgarstjórn Sveitarstjórnarmál Reykjavík Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira